Fréttablaðið - 13.04.2010, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 13.04.2010, Blaðsíða 24
 4 VELFERÐ BARNA – tækifæri til skimunar og þjónustu í skólakerfinu, er yfirskrift morgunverðarfundar sem samstarfshóp- urinn Náum áttum heldur á Grand hóteli Reykjavík á morgun klukkan 8.15 til 10. www.lydheilsustod.is „Ef ójafnvægi er í hreyfikerfi lík- amans þá mun það að öllum líkind- um leiða til meiðsla síðar,“ segir Einar og telur unglinga sem æfa mikið boltaíþróttir tvímælalaust þurfa að búa líkamann undir það og styrkja hann með sérstökum æfingum. „Það sem hefur breyst á síðustu árum er að krakkar æfa miklu meira hverja íþróttagrein en áður. Það gerist með betri aðstöðu,“ segir Einar. „Þeir æfa jafnvel fót- bolta fjórum sinnum í viku yfir vetrartímann í knattspyrnuhöll- unum okkar en undirlagið þar fer verr með líkamann en venjulegt gras. Svo eru þeir kannski líka í handbolta. Æfingar átta til níu sinnum í viku er of mikið, jafn- vel fyrir atvinnuíþróttamann sem gerir ekkert annað.“ Hann segir styrktarþáttinn oft verða útundan og það hefni sín. „Algengt er að krakkar komi til mín með álags- meiðsli í öxlum, hnjám, mjöðmum eða nára og oft er um vöðvaójafn- vægi í líkamanum að ræða,“ segir hann og útskýrir að þá sé átt við að einn vöðvi sé of veikur en annar of stuttur. Slíkt greini hann með prófum, meðal annars í hnébeygj- um og lendingartækni. Einar hefur verið sjúkraþjálf- ari frá 1991 og starfar nú sem sér- fræðingur í hreyfivísindum hjá KINE sem er hátæknifyrirtæki í hreyfigreiningu. Auk þess kennir hann í Heilsuskóla Keilis á Suður- nesjum. Þar verður hann með nám- skeið næsta laugardag um styrkt- arþjálfun unglinga, ætlað öllum þeim þjálfurum sem vinna með hreyfingu barna. „Styrktarþjálfun byggist á æfingum með eigin líkama en ekki lyftingu lóða, hún á auðvit- að að byrja strax í sex ára bekk og gerir það víðast hvar. Unglingum hættir hins vegar til að fara út í ofálag, það er mikið að gerast í lík- amanum hjá þeim og þeir eru að vaxa. Það sem ég vil leggja áherslu á er að gera kröfur um gæði þjálf- unar hjá þessum hópi. Það þarf að líta eftir því að krakkar beiti sér rétt og haldi góðu formi á líkaman- um í æfingum sínum,“ tekur hann fram. Líkamsræktarstöðvar eru ekki réttur staður fyrir unglinga yngri en 16 ára, nema góður leiðbein- andi sé með þeim, að mati Einars. „Það er mikill misskilningur að öll þjálfun sé alltaf góð,“ segir hann. „Þarna skiptir mestu máli að sá sem er næstur barninu á æfingum sé með hugann við efnið. Styrkt- aræfingar geta verið fjölbreyttar og skemmtilegar og auðvelt er að setja þær inn í leik og upphitun í boltagreinum.“ gun@frettabladid.is Mikið álag á líkamann er ekki endilega til bóta Unglingum sem æfa boltagreinar stíft veitir ekki af styrktarþjálfun til að forðast álagsmeiðsli í öxlum, hnjám og mjöðmum, að sögn Einars Einarssonar, sjúkraþjálfara og sérfræðings í hreyfigreiningu. „Styrktarþjálfun byggist á æfingum með eigin líkama en ekki lyftingu lóða,“ segir Einar. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM BRESKIR LÆKNAR HAFA ÁHYGGJUR AF ÞVÍ AÐ MARGAR ÞÆR UPPLÝSINGAR SEM ERU TILTÆKAR Á NETINU SÉU Í BESTA FALLI ÓÁREIÐANLEGAR EN GETI JAFNVEL VERIÐ HÆTTULEGAR. Í aukana færist að foreldrar leiti upp- lýsinga um veikindi barna sinna á Netinu, til dæmis með því að setja inn leitarorð í Google. Nýleg bresk rannsókn leiddi í ljós að stór hluti leitarniðurstaðna veiti síður en svo góð ráð. Rannsóknarhópurinn valdi nokkur vandamál og sló þeim upp í Google. Þetta voru einhverfa, brjóstagjöf með HIV, brjóstagjöf með brjósta- bólgu og grænt gubb. Komust þeir að því að aðeins 200 af 500 vefsíð- um gáfu réttar upplýsingar og að aðeins ríkisreknar síður væru alger- lega traust heimild. Þess skal geta að rannsakendur einskorðuðu sig við breskar vefsíður. Um það bil 70 prósent breskra heimila hafa aðgang að Netinu og það færist í aukana að foreldrar noti leitarvélar til að fá annað álit eða nota það jafnvel eingöngu þegar kemur að spurningum er varða heil- brigði. Læknar hafa af því áhyggjur að upplýsingar sem fólk aflar sér séu rangar og geti jafnvel verið hættu- legar. Léleg ráð á Netinu Margir leita læknisráða á Netinu en þar geta upplýsingar verið óáreiðanlegar. Borgardekk Borgartúni 24 105 Reykjavík Hæðasmára 6 201 Kópavogi Hafnarborg 220 Hafnarfjörður Opið virka daga kl. 10-20 | Laugardaga kl. 10-17 www.madurlifandi.is Þri. 13. apríl Heilsa óháð holdarfari, Anna Ragna Magnúsardóttir doktor í heilbrigðisvísindum Fim. 15. apríl Hvað á ég að gefa barninu mínu að borða? Ebba Guðný Guðmundsdóttir kennari Þri. 20. apríl Skemmtileg og auðveld leið að heilbrigðum lífsstíl Benedikta Jónsdóttir heilsuráðgjafi og Trausti Eysteinsson Lífstílsráðgjafi Fös. 23. apríl *Húmor og gleði … dauðans alvara!* Edda Björgvinsdóttir leikkona Þri. 27. apríl Góð heilsa er auðveldari en þú heldur, Matti Ósvald heilsufræðingur Námskeið á næstunni hjá Maður Lifandi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is sími 512 5473 Henný Árnadóttir henny@365.is sími 512 5427 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is sími 512 5447 Miðvikudaga

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.