Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.05.2010, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 04.05.2010, Qupperneq 6
6 4. maí 2010 ÞRIÐJUDAGUR STJÓRNMÁL Illugi Gunnarsson og Gísli Marteinn Baldursson aug- lýstu mest allra í prófkjörunum tveimur sem fram fóru í Reykja- vík árin 2006 og 2007. Þetta má sjá af saman- tekt Creditinfo á blaðaauglýs- ingum fram- bjóðenda Sjálf- stæðisflokks og Samfylking- ar fyrir þessar kosningar. Þar er reikn- að út hversu margir dálk- sentimetrar af auglýsingum birtust, og það umreiknað í heilsíðuígildi. Samantektin fyrir þingkosn- ingarnar nær aðeins til próf- kjöra frambjóð- enda í Reykja- vík. Sjálfstæðismenn raða sér þar í níu efstu sætin, en efsti Samfylk- ingarmaðurinn er Kristrún Heim- isdóttir, eins og sjá má í meðfylgj- andi töflu. Fyrir borgarstjórnarkosning- arnar birti Gísli Marteinn Bald- ursson samtals 12,7 heilar síður af auglýsingum í dagblöðum. Næst- ur honum kom Steinunn Valdís Óskarsdóttir með 10,1. Áréttað skal að tölurnar taka einungis til frambjóðenda Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Þær segja heldur ekki alla sög- una. Auglýsingar eru misdýrar Gísli Marteinn og Illugi auglýstu mest Illugi Gunnarsson auglýsti mest allra í dagblöðum fyrir prófkjörin í Reykjavík í aðdraganda þingkosninganna 2007. Gísli Marteinn Baldursson er efstur á blaði ef skoðaðar eru auglýsingar vegna borgarstjórnarkosninganna árið áður. Alþingiskosningarnar 2007 Frambjóðandi Heilsíðuígildi Uppgefnir styrkir Illugi Gunnarsson 11,8 14,5 milljónir Birgir Ármannsson 11,3 4,3 milljónir Guðlaugur Þór Þórðarson 11,3 24,8 milljónir Guðfinna S. Bjarnadóttir 9,5 ekki uppgefið Sigríður Á. Andersen 9 ekki uppgefið Sigurður Kári Kristjánsson 9 4,7 milljónir Björn Bjarnason 7,4 ekki uppgefið Ásta Möller 7,3 ekki uppgefið Dögg Pálsdóttir 7,2 ekki uppgefið Kristrún Heimisdóttir 6,8 2 milljónir Steinunn Valdís Óskarsdóttir 6,2 4,7 milljónir Ágúst Ólafur Ágústsson 5,5 ekki uppgefið Helgi Hjörvar 5,3 5,6 milljónir Pétur H. Blöndal 3,8 ekki uppgefið Össur Skarphéðinsson 3,1 3,6 milljónir Frambjóðandi Heilsíðuígildi Uppgefnir styrkir Gísli Marteinn Baldursson 12,7 10,4 milljónir Steinunn Valdís Óskarsdóttir 10,1 8,1 milljón Vilhálmur Þ. Vilhjálmsson 9 ekki uppgefið Stefán Jón Hafstein 8,9 ekki uppgefið Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir 8,4 3,7 milljónir (2,5 úr eigin vasa) Dagur B. Eggertsson 8,1 5,6 milljónir Hanna Birna Kristjánsdóttir 6,2 3,9 milljónir Kjartan Magnússon 5,3 4,4 milljónir Júlíus Vífill Ingvarsson 5 nálægt fjórum milljónum Sigrún Elsa Smáradóttir 4,4 1,1 milljón Kjartan Valgarðsson 4 1,4 milljónir Björk Vilhelmsdóttir 3 853 þúsund Bolli Thoroddsen 2,2 ekki uppgefið Oddný Sturludóttir 2,1 1,9 milljónir Jórunn Frímannsdóttir 2 4,2 milljónir (2,2 úr eigin vasa) Borgarstjórnarkosningarnar 2006 eftir stærð þeirra, í hvaða blöð- um þær birtast og staðsetningu í blöðunum, auk þess sem auglýst var víðar, til dæmis í ljósvaka og á skiltum. Þeir birtingarstjórar sem Frétta- blaðið ræddi við í gær áttu erf- itt með að slá á meðalverð á dag- blaðaauglýsingum á þessum tíma og vildu ekki gefa upp tölur sem þeir þekktu úr starfinu vegna við- skiptahagsmuna. stigur@frettabladid.is ILLUGI GUNNARSSON GÍSLI MARTEINN BALDURSSON Góður ávöxtunarkostur – einnig í áskrift Hafðu samband við ráðgjafa okkar í síma 460 4700 eða kynntu þér málið á www.iv.is @ LÍFEYRISSJÓÐIR Stjórnarmenn í Lífeyrissjóði verk- fræðinga ætla ekki að verða við áskorun aðal- fundar sjóðsins sem lýsti vantrausti á sex af sjö stjórnarmönnum og skoraði á þá að segja af sér. Á aðalfundi fyrir tveimur vikum var samþykkt ályktun um að lýsa vantrausti á stjórn sjóðsins síðastliðin starfsár. Skorað var á stjórnarmenn að segja af sér og boða til nýs aðalfundar til að kjósa nýja stjórn. Stjórnarmenn sjóðsins eru kosnir til þriggja ára í senn. Á aðalfundinum í ár var einn maður kosinn í sjö manna stjórn til þriggja ára. Sá heitir Bjarki Á. Brynjarsson, framkvæmdastjóri fyrir- tækjaráðgjafar hjá Askar Capital, og var hann kosinn formaður á fyrsta fundi eftir aðalfund. Ingólfur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðsins, sagði að enginn stjórnarmaður hefði orðið við áskorun aðalfundar um að segja af sér. Hins vegar hefur nýja stjórnin boðað til sjóð- félagafundar 21. maí þar sem fjallað verður um afskriftir og og eignasafn sjóðsins og aðgerðir sem gripið var til í tengslum við hrunið. Gerð verður grein fyrir „tryggingafræðilegri stöðu sjóðsins, endurskoðuðum eigna- og áhættustýr- ingarreglum og framtíðarstefnu nýrrar stjórnar,“ segir á vef sjóðsins. - pg Stjórn Lífeyrissjóðs verkfræðinga kaus sér nýkjörinn stjórnarmann sem formann: Sitja áfram þrátt fyrir ályktun um vantraust SKERÐING Aðalfundur lífeyrissjóðs verkfræðinga sam- þykkti nýlega að skerða greiðslur til lífeyrisþega. Einnig var samþykkt með eins atkvæðis mun vantraust á stjórnarmenn og áskorun til þeirra um að segja af sér. TAÍLAND, AP Abhisit Vejjajiva, for- sætisráðherra Taílands, hefur komið með sáttatilboð til mótmæl- enda og leggur til að þingkosn- ingar verði haldnar 14. nóvember fallist mótmælendur á tilboðið. Átta vikna stanslaus mótmæli dag og nótt hafa kostað 27 manns lífið, en mótmælendurnir krefjast þess að forsætisráðherrann segi af sér ásamt ríkisstjórn sinni, þing verði leyst upp innan mán- aðar og kosningar boðaðar innan tveggja mánaða. Mótmælendur tóku sér frest til að skoða tilboðið. - gb Nýtt tilboð frá Vejjajiva: Leggur til kosn- ingar í haust ABHISIT VEJJAJIVA Mótmælendur tóku sér frest til að skoða boðið. NORDICPHOTOS/AFP DÓMSMÁL Rúmlega tvítug kona hefur verið dæmd fyrir fjárdrátt. Hún dró sér rúmlega 160 þúsund krónur meðan hún starfaði sem verslunarstjóri hjá Dominos. Hér- aðsdómur ákvað að fresta ákvörð- un refsingar í tvö ár enda haldi konan almennt skilorð. Samkvæmt sakavottorði kon- unnar hefur hún ekki áður gerst sek um refsiverða háttsemi. Hún hefur skýlaust játað brot sitt og fram hefur komið að fjármunirn- ir komust til skila. Að öllu þessu virtu og vegna dráttar á rannsókn málsins þótti rétt að fresta ákvörðun refsingar. - jss Ákvörðun refsingar frestað: Verslunarstjóri dró sér fjármuni BANDARÍKIN, AP Mahmoud Ahmad- inejad Íransforseti segir Banda- ríkin ekki hafa fært neinar sönnur á ásakanir um að Íranir hafi í hyggju að koma sér upp kjarnorku vopnum. Ahmadinejad sagði þetta í ræðustól hjá Sameinuðu þjóðun- um í New York, þar sem í gær hófst mánaðarlöng ráðstefna 189 aðildarríkja alþjóðasamnings um bann við útbreiðslu kjarnorku- vopna. Ahmadinejad er eini þjóðarleið- toginn sem mætir á ráðstefnuna, sem haldin er á fimm ára fresti til að fara yfir efnisatriði samn- ingsins. - gb Íransforseti á kjarnorkufundi: Engar sannanir komið fram MAHMOUD AHMADINEJAD Íransforseti í ræðustól hjá Sameinuðu þjóðunum. NORDICPHOTOS/AFP Fundað um skýrsluna Þingmannanefndin sem fer yfir skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis kemur saman í dag til þess að fara yfir hana. Á fundinn mæta einnig nefndarmenn sem forsætisráð- herra skipaði til að fara yfir stjórn- sýsluna. Þá verður fundað með lögspekingum. ALÞINGI KJÖRKASSINN Spilar þú póker? Já 16,6% Nei 83,4% SPURNING DAGSINS Í DAG Þekkir þú til tryggingasvika? Segðu þína skoðun á visir.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.