Fréttablaðið - 04.05.2010, Qupperneq 10
10 4. maí 2010 ÞRIÐJUDAGUR
fyrir “efi
n” í lífin
u
Hvað ef...
Hver veit?
Við vitum aldrei hvað dregur á daga
OKKAR. Því er gott að vita að það séu
traustar undirstöður til staðar þegar við
þurfum á þeim að halda.
o
þ
Líf og ábyrgð einstaklinga breytist
og það er mikilvægt að tryggingarvernd
þín taki mið af því.
Hafir þú gengið í hjónaband, keypt stærra
INDLAND, AP Mohammed Ajmal
Kasab, eini árásarmaðurinn af
tíu sem lifði af, var í gær dæmd-
ur sekur um aðild að hryðju-
verkaárásum á Mumbaí á Ind-
landi árið 2008.
Tveir Indverjar, sem ákærðir
höfðu verið fyrir að veita árás-
armönnunum aðstoð, voru hins
vegar sýknaðir.
Kasab gerði ásamt félaga
sínum árás á aðallestarstöðina í
Múmbaí, þar sem þeir hófu skot-
árás á fólk.
Alls kostuðu árásirnar á nokkr-
ar helstu byggingar borgarinnar
166 manns lífið. - gb
Dómur felldur á Indlandi:
Árásarmaður
dæmdur sekur
VEIFAR DÓMNUM Ujjwal Nikam sak-
sóknari sýnir fjölmiðlum dóminn.
NORDICPHOTOS/AFP
BRETLAND, AP Flokksleiðtogarnir David
Cameron, Nick Clegg og Gordon Brown
þeyttust um Bretland í gær til að afla flokk-
um sínum atkvæða. Þingkosningar verða á
fimmtudag.
Þeir notuðu hvert tækifæri til að skjóta
hver á annan. Þannig sagði Clegg að Camer-
on hefði sýnt af sér ólýsanlegan hroka
þegar hann sagðist sigurviss um helgina,
en Cameron svaraði í gær og sagðist ekki
taka neitt gefið í þeim efnum.
Gordon Brown forsætisráðherra viður-
kenndi að hann væri að berjast fyrir pólit-
ísku lífi sínu í þessum kosningum sem færu
fram í skugga efnahagshruns.
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun, sem
dagblaðið Guardian birti í gær, er Íhalds-
flokki Camerons spáð 33 prósent atkvæða,
en Verkamannaflokkur Browns og Frjáls-
lyndir demókratar Nicks Cleggs eru jafnir
með 28 prósent atkvæða.
Verkamannaflokkurinn hefur verið með
345 þingsæti á kjörtímabilinu sem er að
ljúka, en til þess að fá meirihluta á þingi
þarf 326 þingsæti af 650.
Allt stefnir í að enginn flokkanna þriggja
nái hreinum meirihluta á þingi, sem þýðir
að Clegg kemst í lykilstöðu. Hann getur sett
skilyrði fyrir stjórnarsamstarfi og tekið
boði þess flokks sem fellst á fleiri af stefnu-
málum frjálslyndra.
- gb
Bretar búa sig undir meirihlutalaust þing eftir kosningarnar á fimmtudag:
Atkvæðaveiðar í hámarki
CAMERON HLEYPUR David Cameron, leiðtogi breska
Íhaldsflokksins, var ekkert að fela sig fyrir ljósmyndur-
um þegar hann brá sér út að skokka í gær.
NORDICPHOTOS/AFP
SVEITARFÉLÖG Alls hafa níu sveitar-
félög fengið viðvörun frá eftirlits-
nefnd með fjármálum sveitarfélaga
á síðustu tólf mánuðum. Þetta
kemur fram í svari Kristjáns Möll-
er, ráðherra sveitarstjórnarmála,
við fyrirspurn Þórs Saari. Eitt
sveitarfélag til hefur verið varað
við eftir sömu reglum.
Sveitarfélagið Álftanes er það
eina sem hefur tilkynnt um fjár-
þröng á þessum tíma, en áður
hafði Bolungarvíkurkaupstaður
gert það. Samningur var gerð-
ur um fjárhagslegar aðgerðir við
Bolungarvík, en staðan á Álftanesi
var svo alvarleg að þar var skipuð
fjárhaldsstjórn.
Nefndin hefur sent sjö sveitar-
félögum bréf og gert athugasemdir
við skuldsetningu þeirra og óskað
eftir að fá ársfjórðungslegar upp-
lýsingar úr bókhaldi þeirra. Þá
fékk Sandgerðisbær athugasemd
frá nefndinni, en ákveðið var að
aðhafast ekki frekar að sinni. - kóp
Álftanes hefur eitt sveitarfélaga tilkynnt um fjárþröng:
Viðvörun send til
níu sveitarfélaga
ÁLFTANES Sveitarfélaginu Álftanesi hefur verið skipuð fjárhaldsstjórn, einu sveitar-
félaga. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
HUNDUR MEÐ HATT Á gæludýrasýningu
í Makuhari í Japan um helgina var þess-
um hundi stillt upp fyrir myndatöku.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP