Fréttablaðið - 04.05.2010, Side 11
ÞRIÐJUDAGUR 4. maí 2010 11
Markaðurinn
Fylgir Fréttablaðinu einu sinni í mánuði
Næsta blað kemur út á morgun
• Hvaða lærdóm getur viðskiptalífið dregið af rannsóknarskýrslu Alþingis?
• Fjárfestingarfélagið Gnúpur – fyrsta fórnarlamb kreppunnar
ATVINNUMÁL Hraðfrystihúsinu
– Gunnvör hf., í Hnífsdal og á
Ísafirði, verður lokað í fjórar
vikur í sumar. Ástæðan er verk-
efnaskortur og sumarleyfi. Þetta
kemur fram á vefsíðu Bæjarins
besta.
Lokunin verður frá 11. júlí til
8. ágúst, en hingað til hefur fyrir-
tækinu aðeins verið lokað í tvær
vikur yfir sumartímann. Einar
Valur Kristjánsson framkvæmda-
stjóri segir í samtali við BB að
skortur á aflaheimildum sé frum-
forsenda lokunarinnar. - kóp
Verkefnaskortur fyrir vestan:
HG verður lok-
að í fjórar vikur
MENNTUN Finnskukennslu við
Háskóla Íslands verður hætt í
sumar. Þá lýkur 44 ára samstarfi
Háskóla Íslands og CIMO, Alþjóð-
legrar miðstöðvar um hreyfan-
leika og samvinnu.
Finnska stofnunin CIMO hefur
stutt við finnskukennslu á Íslandi
frá árinu 1966 með því að senda
lektor í finnsku til HÍ. Í febrúar
2009 tilkynnti CIMO að sendi-
kennari á þeirra vegum myndi
kenna árið 2009–2010, en að því
loknu gæti samstarfið haldið
áfram að því tilskildu að HÍ stæði
straum af auknum hluta kostn-
aðarins, eða sem næmi launum
sendikennara að upphæð þúsund
evrur á mánuði, um 170 þúsund
krónur íslenskar. Að sögn Óskars
Einarssonar, rekstrarstjóra hug-
vísindasviðs, hefur ekki reynst
unnt að afla þess fjár. - sbt
Færri erlend mál kennd:
Finnskukennslu
við HÍ hætt
GRIKKLAND, AP Christine Lagarde, fjármála-
ráðherra Frakklands, segir matsfyrirtæki
fjármálaheimsins kynda undir skuldavanda
Grikkja og ætlar að láta franska eftirlitið
fylgjast grannt með þeim.
Í viðtali við franska dagblaðið Le Monde
sagði hún að lækkun Standard & Poor‘s á láns-
hæfismati gríska ríkisins fimmtán mínútum
fyrir lokun markaða jafngildi hvatningu til
afbrota, því með þessu eru allir sem eiga grísk
ríkisskuldabréf hvattir til að losa sig við þau
án umhugsunar áður en markaðir loka.
Í útvarpsviðtali sagði hún nauðsynlegt að
setja matsfyrirtækjunum strangar reglur til
að koma í veg fyrir að þau valdi ríkjum skaða
með skyndiákvörðunum.
Hún varði hins vegar 110 milljarða evra fjár-
hagsaðstoð til Grikkja, sem Alþjóðagjaldeyris–
sjóðurinn og fimmtán Evrópuríki komu sér
saman um á sunnudag. Sú fjárhæð jafngildir
nærri 19.000 milljörðum íslenskra króna.
Að undanskildum AGS greiða Þjóðverjar
stærsta hluta aðstoðarinnar, eða rúmlega 22
milljarða evra. Þýska stjórnin á erfitt með að
sannfæra almenning í Þýskalandi um nauðsyn
þessa, en á móti þarf gríska stjórnin að kljást
við almenning heima fyrir um sársaukafullan
niðurskurð á fjárlögum. - gb
Fjármálaráðherra Frakklands gagnrýnir framgöngu matsfyrirtækja í málefnum Grikkja:
Telur matsfyrirtæki kynda undir skuldavanda
LINNULAUS MÓTMÆLI Í gær voru það sorphirðufólk og
borgarstarfsmenn í Aþenu sem mótmæltu launalækk-
unum og niðurskurði grísku stjórnarinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BORGARMÁL „Mál standa þannig
að það er beðið eftir borginni og
að 100 daga kynning á málinu
fari fram,“ segir Arnar Sigur-
mundsson, formaður Landssam-
bands lífeyrissjóða, um byggingu
samgöngumiðstöðvar
í Reykjavík.
Framkvæmdir verða fjár-
magnaðar með lánsfé frá lífeyr-
issjóðunum. Arnar segir að vonir
standi til að kynningarferli fyrir
borgarbúa ljúki í sumar. Fram-
kvæmdir geti þá hafist í haust.
Ákjósanlegt hefði verið að
nýta sumarið til framkvæmda en
menn séu að falla á tíma með að
hefja framkvæmdir fyrir haust-
ið. Hann segist ekki vilja segja
um hvort væntanlegar sveitar-
stjórnarkosningar tefji málið. - pg
Samgöngumiðstöð:
100 daga kynn-
ingarferli
fram undan
FRÉTTASKÝRING
Hafa íslenskir jarðvísindamenn öll bestu gögn til að
sinna rannsóknum og eftirliti?
Samstarf við erlendar stofnanir tryggir að
íslenskir vísindamenn hafa aðgang að öllum
bestu gögnum til rannsókna vegna jarðhrær-
inga eins og eldgosanna í Eyjafjallajökli og á
Fimmvörðuhálsi.
Ingibjörg Jónsdóttir, landfræðingur við
jarðvísindadeild Háskóla Íslands, segir að
jafnan sé keypt töluvert magn gagna, enda
annast jarðvísindadeildin vöktun á fjölmörg-
um náttúrufyrirbærum á Íslandi. Á það við
um skorpu og möttul jarðar, eldstöðvar, jarð-
hitasvæði, jökla og straumvötn auk rann-
sókna á setlögum á landi og í sjó, gróðurfari
og jarðvegseyðingu.
Jarðvísindastofnun er alþjóðleg rannsókna-
stofnun á sviði jarðvísinda og í góðum tengsl-
um við norrænar systurstofnanir. Sífellt
er unnið að eflingu annarra alþjóðlegra
tengsla.
Á tímum eldsumbrota segir Ingibjörg að
alþjóðleg tengsl séu sérstaklega mikilvæg.
„Þegar eitthvað svona kemur upp á njótum
við góðs af tengingum okkar við útlönd og til
okkar er miðlað mikið af upplýsingum. Það
á ekki síst við um fjarkönnunargögn. Þessi
gögn eru fjölbreytt og geta sagt ólíka sögu.
Það verður því sífellt að bera saman gögn og
reyna að nýta það besta úr þeim öllum.“
Auk fjarkönnunargagna, eins og til dæmis
ljós-, hita- og ratsjármyndir, eru nýttar upp-
lýsingar frá staðsetningartækjum (GPS-kerfi),
þenslu- og jarðskjálftamælum. Þar stendur
íslenska vísindasamfélagið mjög vel en eins
og þekkt er hefur Veðurstofan komið upp neti
jarðskjálftamæla á undanförnum árum.
Steinunn Jakobsdóttir, jarðeðlisfræðingur
hjá Veðurstofu Íslands, segir að jarðskjálfta-
mælanet stofnunarinnar hafi verið byggt
markvisst upp frá árinu 1989 og GPS-kerf-
ið frá 1999. Einnig er kerfi þenslumæla frá
árinu 1979. Alls losa mælarnir hundraðið og
Veðurstofan hefur verið í samstarfi við erlend-
ar systurstofnanir og sjálfstæðar rannsókna-
stofnanir við uppsetningu þeirra.
Steinunn tekur fram að auðvitað mætti
bæta kerfin enn. Jarðskjálftamæla mætti
að ósekju setja upp á annesjum til að kerf-
ið nái til landsins í heild. „Eins væri gott að
fá fleiri þenslumæla því þeir hafa til dæmis
gefið okkur upplýsingar sem gerðu það kleift
að spá Heklugosi með hálftíma fyrirvara. Við
hefðum þegið að hafa slíka mæla við jöklana
á Suðurlandi núna.“ svavar@frettabladid.is
Jarðskjálftamælanet verið
byggt upp á tuttugu árum
Víðtækt samstarf innlendra sem erlendra stofnana tryggir að íslenskir jarðvísindamenn hafa aðgang að öllum
bestu gögnum við rannsóknir sínar. Undanfarið hefur mikið magn ganga verið sent hingað frá útlöndum.
UM BORÐ Í TF-SIF Jarðvísindamenn segja að tæknibúnaður um borð í nýrri flugvél Gæslunnar sé bylting.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
JARÐSKJÁLFTAMÆLINGAR Þessi skýringarmynd
Veðurstofunnar sýnir jarðskjálftavirkni hérlendis vel.
Mælakerfið gefur mikilvægar upplýsingar
um hreyfingar jarðskorpunnar.
MYND/VEÐURSTOFAN