Fréttablaðið - 04.05.2010, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 4. maí 2010 13
Allir sem séð hafa leikrit eftir Dario Fo vita líka að mikill
broddur getur fólgist í pólitísk-
um farsa. Vel heppnaður pól-
itískur listagjörningur opnar
nýjar víddir í hugsuninni og
vinnur gegn þrengingu á mögu-
leikum stjórnmálanna. Dæmi
um það eru víðar en við höld-
um og ekki úr vegi að nefna til
dæmis rammpólitísk barnaleik-
rit Egners um Dýrin í Hálsa-
skógi og Kardimommubæinn.
Hver myndi ekki vilja kjósa ljúf-
mennið Bastían bæjarfógeta ef
hann væri í framboði í Reykja-
vík? Og af hverju eru stjórn-
málamennirnir okkar ekki eins
og Bastían? Hin útopíska borg-
armynd í leikritinu um Kardi-
mommubæinn vekur þannig
gagnrýnar spurningar um
stjórnmál sem snúast ekki leng-
ur um einföld gildi. Íslensk
stjórnmál eru hins vegar ekkert
til að spauga með. Það er einn
margra lærdóma sem draga má
af skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis um bankahrunið. En
svo má kannski taka hinn pól-
inn í hæðina; að grínið hafi ekki
gengið nógu langt. Að minnsta
kosti stefnir allt í að grínfram-
boð Besta flokksins vinni stór-
sigur í borgarstjórnarkosn-
ingum í Reykjavík. Stefnumál
Besta flokksins eru þess eðlis
að um þau er erfitt að fjalla með
gagnrýnu hugarfari þar sem þau
eru frekar þokukennd og þar að
auki meira eða minna sett fram
í hálfkæringi. Hér er því á ferð
pólitískur gjörningur sem allt
stefnir í að verði einstaklega
vel heppnaður. Spurningin er
hins vegar hverjir hlaupa apríl
á endanum; hvort það verði ekki
bara fyrst og fremst kjósendur
flokksins.
Hitt er ljóst að valfrelsi þarf
að auka í íslenskri pólitík og er
það ágætis tilbreyting frá þeim
árum þegar kjósendum í Reykja-
vík var sagt að atkvæði þeirra
væri ónýtt nema þeir veldu aðra
af tveimur risablokkum þar sem
áherslumunurinn varð æ minni.
En þar sem pólitík Besta flokks-
ins hentar ekki gagnrýninni
greiningu má spyrja sig hvernig
gjörningurinn gangi upp sem
slíkur.
Í samanburði við Kardi-
mommu bæinn þá er veruleikinn
sem Besti flokkurinn býður
upp á afar dystopískur. Flokk-
urinn lofar öllu fögru og þar á
meðal hlutum sem ekki er hægt
að standa við því að allir vita jú
að aldrei er neitt að marka lof-
orð stjórnmálamanna. Listi yfir
stefnumál flokksins er ágæt
paródía á stórorðar alhæfing-
ar stjórnmálaflokka sem tengj-
ast ekki neinum raunverulegum
aðgerðum nema í mesta lagi
að stofna hugmyndabanka. Á
heimasíðu flokksins er einhvers
konar lofgjörð um leiðtoga
flokksins, Jón Gnarr, þar sem
honum er hallmælt en jafnframt
bent á að aðrir stjórnmálamenn
séu miklu verri. Besti flokkur-
inn boðar ekki annars konar pól-
itíska siði heldur ríkjandi siði í
enn þá ýktara formi. Á bak við
þennan hálfkæring finna stuðn-
ingsmenn flokksins haldreipi í
því að þessir stjórnmálamenn
séu öðruvísi en hinir þar sem
þeir segi okkur þó að minnsta
kosti satt. En útopían er víðs-
fjarri, það sem flokksmenn kalla
innantóman vaðal stjórnmála-
manna er mætt með afskræmdri
spegilmynd, enn þá meiri froðu.
Besti flokkurinn vill stöðva
spillingu með því að stunda hana
fyrir opnum tjöldum. Kannski er
þetta það besta sem langþreyttir
Íslendingar geta gert sér vonir
um.
Torbjørn Egner vildi hins
vegar meira og leikritið um
Kardimommubæinn ber merki
þess. Í því felst sá einfaldi pólit-
íski boðskapur að allir geti orðið
góðir samfélagsborgarar ef þeir
fá tækifæri til þess. Í Kardi-
mommubænum eru engir útrás-
arvíkingar og engin athafna-
skáld. Þar væru innflytjendur
frá stríðshrjáðum löndum ekki
reknir heim og ekki tvöfaldar
biðraðir innan velferðarþjónust-
unnar. Allir fá þar störf við hæfi
og meira að segja ljón geta orðið
gildir og gegnir samfélagsborg-
arar. Þessi sýn á gott samfélag
er ögrandi en jafnframt erfið
því að hún virðist svo fjarri
þeim veruleika sem við búum
við núna. En í henni felst einnig
róttæk krafa um breytt og betra
samfélag sem ekki þótti fráleitt
að setja fram um miðja 20. öld.
Spurningin er hvers vegna slík-
ar kröfur vakna ekki við núver-
andi aðstæður. Kapítalisminn er
hruninn og við biðjum um hvað:
Siðareglur? Að einhver vara-
þingmaður segi af sér? Meira
grín og léttleika í borgarstjórn?
Stjórnmálamenn sem viður-
kenna strax í kosningabar-
áttunni að þeir séu falskir og
óáreiðanlegir? Við ættum að
leyfa okkur að biðja um aðeins
meira en kaldhæðni, uppgjöf og
vonleysi. Við ættum að biðja um
Bastían bæjarfógeta.
Bastían bæjarfógeti
Sverrir Jakobsson
sagnfræðingur
Í DAG
Kapítalisminn er hruninn og við
biðjum um hvað: Siðareglur? Að
einhver varaþingmaður segi af sér?
Meira grín og léttleika í borgar-
stjórn? Stjórnmálamenn sem viðurkenna strax í
kosningabaráttunni að þeir séu falskir og óáreiðan-
legir? Við ættum að leyfa okkur að biðja um aðeins
meira en kaldhæðni, uppgjöf og vonleysi.
Þú færð Blaðberann þinn í
Skaftahlíð 24 alla virka daga
frá kl. 9-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...
Blaðberinn
bíður þín
Sameinum krafta
-byggjum upp
4. maí Seltjarnarnes kl. 20:00 – Félagsheimili sjálfstæðisfélaganna að Austurströnd 3
5. maí Hafnarfjörður kl. 12:00 – Félagsheimili sjálfstæðisfélaganna að Norðurbakka 1a
6. maí Akranes kl. 20:00 – Dalbraut 1
7. maí Höfn í Hornafirði kl. 12:00 – Kaffihorninu
13. maí Þorlákshöfn kl. 15:00 – Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins að Selvogsbraut 4
Nánari upplýsingar: www.xd.is
Undanfarnar vikur hefur
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, rætt við
landsmenn og svarað fyrirspurnum um
rannsóknarskýrslu Alþingis á
opnum fundum.
Bjarni Benediktsson á fundum um land allt
Allir velkomnir
Sumartilboð
Tilboðið gildir frá 1.5.10 til 15.8.10 Verð 12.500 kr