Fréttablaðið - 04.05.2010, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 04.05.2010, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 4. maí 2010 13 Allir sem séð hafa leikrit eftir Dario Fo vita líka að mikill broddur getur fólgist í pólitísk- um farsa. Vel heppnaður pól- itískur listagjörningur opnar nýjar víddir í hugsuninni og vinnur gegn þrengingu á mögu- leikum stjórnmálanna. Dæmi um það eru víðar en við höld- um og ekki úr vegi að nefna til dæmis rammpólitísk barnaleik- rit Egners um Dýrin í Hálsa- skógi og Kardimommubæinn. Hver myndi ekki vilja kjósa ljúf- mennið Bastían bæjarfógeta ef hann væri í framboði í Reykja- vík? Og af hverju eru stjórn- málamennirnir okkar ekki eins og Bastían? Hin útopíska borg- armynd í leikritinu um Kardi- mommubæinn vekur þannig gagnrýnar spurningar um stjórnmál sem snúast ekki leng- ur um einföld gildi. Íslensk stjórnmál eru hins vegar ekkert til að spauga með. Það er einn margra lærdóma sem draga má af skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið. En svo má kannski taka hinn pól- inn í hæðina; að grínið hafi ekki gengið nógu langt. Að minnsta kosti stefnir allt í að grínfram- boð Besta flokksins vinni stór- sigur í borgarstjórnarkosn- ingum í Reykjavík. Stefnumál Besta flokksins eru þess eðlis að um þau er erfitt að fjalla með gagnrýnu hugarfari þar sem þau eru frekar þokukennd og þar að auki meira eða minna sett fram í hálfkæringi. Hér er því á ferð pólitískur gjörningur sem allt stefnir í að verði einstaklega vel heppnaður. Spurningin er hins vegar hverjir hlaupa apríl á endanum; hvort það verði ekki bara fyrst og fremst kjósendur flokksins. Hitt er ljóst að valfrelsi þarf að auka í íslenskri pólitík og er það ágætis tilbreyting frá þeim árum þegar kjósendum í Reykja- vík var sagt að atkvæði þeirra væri ónýtt nema þeir veldu aðra af tveimur risablokkum þar sem áherslumunurinn varð æ minni. En þar sem pólitík Besta flokks- ins hentar ekki gagnrýninni greiningu má spyrja sig hvernig gjörningurinn gangi upp sem slíkur. Í samanburði við Kardi- mommu bæinn þá er veruleikinn sem Besti flokkurinn býður upp á afar dystopískur. Flokk- urinn lofar öllu fögru og þar á meðal hlutum sem ekki er hægt að standa við því að allir vita jú að aldrei er neitt að marka lof- orð stjórnmálamanna. Listi yfir stefnumál flokksins er ágæt paródía á stórorðar alhæfing- ar stjórnmálaflokka sem tengj- ast ekki neinum raunverulegum aðgerðum nema í mesta lagi að stofna hugmyndabanka. Á heimasíðu flokksins er einhvers konar lofgjörð um leiðtoga flokksins, Jón Gnarr, þar sem honum er hallmælt en jafnframt bent á að aðrir stjórnmálamenn séu miklu verri. Besti flokkur- inn boðar ekki annars konar pól- itíska siði heldur ríkjandi siði í enn þá ýktara formi. Á bak við þennan hálfkæring finna stuðn- ingsmenn flokksins haldreipi í því að þessir stjórnmálamenn séu öðruvísi en hinir þar sem þeir segi okkur þó að minnsta kosti satt. En útopían er víðs- fjarri, það sem flokksmenn kalla innantóman vaðal stjórnmála- manna er mætt með afskræmdri spegilmynd, enn þá meiri froðu. Besti flokkurinn vill stöðva spillingu með því að stunda hana fyrir opnum tjöldum. Kannski er þetta það besta sem langþreyttir Íslendingar geta gert sér vonir um. Torbjørn Egner vildi hins vegar meira og leikritið um Kardimommubæinn ber merki þess. Í því felst sá einfaldi pólit- íski boðskapur að allir geti orðið góðir samfélagsborgarar ef þeir fá tækifæri til þess. Í Kardi- mommubænum eru engir útrás- arvíkingar og engin athafna- skáld. Þar væru innflytjendur frá stríðshrjáðum löndum ekki reknir heim og ekki tvöfaldar biðraðir innan velferðarþjónust- unnar. Allir fá þar störf við hæfi og meira að segja ljón geta orðið gildir og gegnir samfélagsborg- arar. Þessi sýn á gott samfélag er ögrandi en jafnframt erfið því að hún virðist svo fjarri þeim veruleika sem við búum við núna. En í henni felst einnig róttæk krafa um breytt og betra samfélag sem ekki þótti fráleitt að setja fram um miðja 20. öld. Spurningin er hvers vegna slík- ar kröfur vakna ekki við núver- andi aðstæður. Kapítalisminn er hruninn og við biðjum um hvað: Siðareglur? Að einhver vara- þingmaður segi af sér? Meira grín og léttleika í borgarstjórn? Stjórnmálamenn sem viður- kenna strax í kosningabar- áttunni að þeir séu falskir og óáreiðanlegir? Við ættum að leyfa okkur að biðja um aðeins meira en kaldhæðni, uppgjöf og vonleysi. Við ættum að biðja um Bastían bæjarfógeta. Bastían bæjarfógeti Sverrir Jakobsson sagnfræðingur Í DAG Kapítalisminn er hruninn og við biðjum um hvað: Siðareglur? Að einhver varaþingmaður segi af sér? Meira grín og léttleika í borgar- stjórn? Stjórnmálamenn sem viðurkenna strax í kosningabaráttunni að þeir séu falskir og óáreiðan- legir? Við ættum að leyfa okkur að biðja um aðeins meira en kaldhæðni, uppgjöf og vonleysi. Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 9-17. ...góðar fréttir fyrir umhverfið Blaðberinn... Blaðberinn bíður þín Sameinum krafta -byggjum upp 4. maí Seltjarnarnes kl. 20:00 – Félagsheimili sjálfstæðisfélaganna að Austurströnd 3 5. maí Hafnarfjörður kl. 12:00 – Félagsheimili sjálfstæðisfélaganna að Norðurbakka 1a 6. maí Akranes kl. 20:00 – Dalbraut 1 7. maí Höfn í Hornafirði kl. 12:00 – Kaffihorninu 13. maí Þorlákshöfn kl. 15:00 – Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins að Selvogsbraut 4 Nánari upplýsingar: www.xd.is Undanfarnar vikur hefur Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, rætt við landsmenn og svarað fyrirspurnum um rannsóknarskýrslu Alþingis á opnum fundum. Bjarni Benediktsson á fundum um land allt Allir velkomnir Sumartilboð Tilboðið gildir frá 1.5.10 til 15.8.10 Verð 12.500 kr
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.