Fréttablaðið - 04.05.2010, Síða 14

Fréttablaðið - 04.05.2010, Síða 14
14 4. maí 2010 ÞRIÐJUDAGUR timamot@frettabladid.is Félag heyrnarlausra var stofnað árið 1960 og á því hálfr- ar aldar starfsafmæli. Formaður félagsins, Heiðdís Dögg Eiríksdóttir, segir margt hafa áunnist í réttindabaráttu heyrnarlausra á Íslandi en þó megi betur gera ef duga skal. „Eitt helsta baráttumál heyrnarlausra er að tryggja betur aðgengi okkar að samfélaginu. Við höfum til dæmis lítið sem ekkert aðgengi að sjónvarpsefni og förum því oft á mis við mikilvægar upplýsingar. Það eru til dæmis miklar umræður um rannsóknarskýrsluna og eldgosið núna, en allt er þetta okkur lokað. Helst að við fáum fréttirnar hraðsoðnar á fimm mínútum á dag. Bæta þarf úr þessu og viðurkenna okkur og málið. Eða eins og einn heyrnarlaus sagði þá er málið lykill- inn að menningu heyrnarlausra í samfélaginu,“ segir hún. Beðin um að útskýra þetta nánar segir Heiðdís mikilvægt að táknmál sé viðurkennt sem móðurmál á Íslandi. „Um það voru flestir sammála á sérstöku málþingi sem efnt var til fyrr á árinu í tilefni af afmælinu. Táknmál heyrnarlausra á Íslandi og íslenska eru nefnilega mjög ólík tungumál og það væri mikil viðurkenning fyrir heyrnarlausa ef það yrði viðurkennt sem móðurmál á Íslandi.“ Heiðdís segir að mikið hafi verið barist fyrir þessari samþykkt en málið hafi því miður af einhverjum ástæðum alltaf strandað inni á þingi. Margt hefur þó áunnist í réttindabaráttu heyrnarlausra á Íslandi að hennar sögn. Hún tekur túlkaþjónustuna sem dæmi. „Ótrúlegt en satt þá útskrifuðust fyrstu lærðu túlk- arnir á Íslandi ekki fyrr en árið 1997. Fyrir þann tíma var fólk ekki formlega menntað sem túlkar þótt margir hafi reynt að aðstoða okkur. Dyr voru því víða lokaðar og allt harðlæst hvað menntun viðvíkur. Nám og kennsla heyrnar- lausra var heldur ekki byggð upp til jafns við almennt nám og því höfðu margir ekki tök á því að fara í framhaldsnám. Því hefur mjög mikið breyst með tilkomu túlka.“ Annasamt verður hjá Félagi heyrnarlausra á næstunni, sem er meðal annars að flytja í nýtt og betra húsnæði að Grensásvegi 50 í maí. Þá eru mennta-, heilbrigðis- og félags- málaráðuneytin að kortleggja þjónustu við heyrnarlausa á Íslandi og félagið hefur fengið það hlutverk að koma með til- lögur að úrbótum. „Niðurstöðurnar koma í júní og þá er bara vonandi að menn bretti upp ermar og taki á þessum málum í eitt skipti fyrir öll,“ segir Heiðdís, vongóð um framhaldið. roald@frettabladid.is FÉLAG HEYRNARLAUSRA Á ÍSLANDI: HEFUR STARFAÐ Í HÁLFA ÖLD Viljum jafnfræði í samfélaginu MARGT Á DÖFINNI Heiðdís tók við formennsku Félags heyrnarlausra í júní á síðasta ári og sat þar áður í stjórn félagsins. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR GESTUR EINAR JÓNASSON FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1950. „Ég veit ekki neitt skemmtilegra en flugið.“ Gestur Einar Jónasson er leikari og flugmaður og hefur starfað við fjölmiðla í fjöldamörg ár. 60 ára Sæmundur Valtýsson er sextugur í dag 4. maí Í tilefni dagsins býður hann í kaffi laugardaginn 8. maí næstkomandi í sal Sjálfsbjargarheimilisins, Hátúni 12 milli klukkan 14 og 16. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Anna Sigurkarlsdóttir lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn 26. apríl. Útför hennar fer fram frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 8. maí kl. 14.00. Bílferð verður frá Digraneskirkju kl. 12.40. Magnús Guðjónsson Sigríður Magnúsdóttir Stefán Niclas Stefánsson Sigurkarl Magnússon Agnes Eydal Guðjón Magnússon Gillian Haworth barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Gestur Mosdal Kristjánsson Forsæti II Flóahreppi, andaðist á Ljósheimum Selfossi fimmtudaginn 29. apríl. Jarðarförin fer fram frá Villingaholtskirkju föstudag- inn 7. maí kl. 14.00. Þeir sem vildu minnast hins látna, vinsamlegast láti Vinafélag Ljósheima og Fossheima njóta þess. Helga Kristín Þórarinsdóttir Guðbjörg Þ. Gestsdóttir Þráinn Elíasson Kristján Gestsson Anna Guðbergsdóttir María Gestsdóttir Böðvar Sverrisson Valgerður Gestsdóttir Bjarki Reynisson Lárus Gestsson Elísabet Pálsdóttir og fjölskyldur. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vináttu við and- lát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu Láru Loftsdóttur. Þökkum starfsfólki Hrafnistu Reykjavík góða umönn- un og hlýju. Pálfríður Benjamínsdóttir Hákon Örn Halldórsson Sóley B. Frederiksen Lindy Ottosen Jörgen Pétursson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sigurbjörg Hjálmarsdóttir Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð áður Gullsmára 8, Kópavogi, lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi, laugardaginn 1. maí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Hjálmar Viggósson Ragnheiður Hermannsdóttir Magnea Viggósdóttir Kenneth Morgan Erna Margrét Viggósdóttir Kristján Þ. Guðmundsson Helen Viggósdóttir Þórarinn Þórarinsson barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur samúð og hluttekningu við andlát og útför föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, Þórs Jóhannessonar. Sérstakar þakkir viljum við tjá starfsfólki Beykihlíðar, Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri. Árni V. Þórsson Ragna Eysteinsdóttir Nanna B. Þórsdóttir Hjörvar Þórsson Andrea Thorsson Ásdís Þórsdóttir Guðmundur Ólafsson Gunnur Petra Þórsdóttir Ólafur Þórarinsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir mín, amma, langamma, systir og mágkona, Sigríður Kristín Jakobsdóttir, Hlíðarhúsum 3, áður til heimilis að Hjallabraut 33, Hafnarfirði, andaðist á Landspítalanum við Hringbraut aðfaranótt 28. apríl sl. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 7. maí kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir. Þeir sem vilja minnast hennar vinsamlega láti Krabbameinsfélag Íslands njóta þess. Ólafur Björnsson Þorbergur Björn Ólafsson Ólafur Friðrik Ólafsson Jóhann Helgi Ólafsson Vilhjálmur Snær Ólafsson Sigríður Erla Ólafsdóttir Diljá Ösp Þorbergsdóttir Þóra Jakobsdóttir Bjarni Ellert Bjarnason Sigrún Jakobsdóttir Þórdís Jakobsdóttir Stefán Gylfi Valdimarsson Gunnlaug Jakobsdóttir Gunnlaugur Sigurðsson Okkar ástkæra dóttir, systir, mágkona og barnabarn, Unnur Lilja Stefánsdóttir, sem lést af slysförum þann 25. apríl 2010 verður jarð- sett í Útskálakirkju þriðjudaginn 4. maí nk. kl. 14.00. Súsanna Poulsen Stefán Snæbjörnsson Ingibjörg Þorvaldsdóttir Einir Heiðarsson Heiðrún Tara Stefánsdóttir Ástþór Sigurðsson Absalon Poulsen Álfheiður Jónasdóttir Absalon Poulsen Unnur Stefánsdóttir og frændsystkini. Hvalstöðin í Hvalfirði er hvalskurðar- og vinnslustöð í Hvalfirði, sem var reist á þessum degi árið 1948 en þá var engin hvalstöð fyrir í landinu. Hvalur hf. lét reisa hvalstöðina undir Þyrilsklifi og var meðal annars notast við bryggju og bragga sem bandamenn höfðu reist þar á stríðsárunum. Hvalir voru skornir á hvalstöðinni á hverju sumri og störfuðu þar um hundrað manns þegar mest var að gera. Fyrstu áratugina var hvalurinn helst unninn í lýsi, mjöl og hundafóður en farið var að frysta kjöt til manneldis þegar viðskipti við Japana hófust. Hvalveiðar lögðust svo af um tíma en hvalstöðinni var engu síður haldið við og sumarið 2009 hófst þar aftur hvalskurður. Heimild: www.wikipedia.org. ÞETTA GERÐIST: 4. MAÍ 1948 Hvalstöðin hóf starfsemi

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.