Fréttablaðið - 04.05.2010, Side 21

Fréttablaðið - 04.05.2010, Side 21
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 „Þetta er flott keppni, sem getur opnað ýmsar dyr,“ segir Karl Fridrik Hjaltason, nemi í klass- ískum ballett við Listdansskóla Íslands. Hann heldur utan til Sví- þjóðar um miðjan mánuðinn til að taka þátt í Storadal-dansen, klass- ískri sólódanskeppni, sem er þekkt á Norðurlöndunum og er mikil viðurkenning fyrir alla sem taka þátt í henni. „Það er náttúrlega frábært tæki- færi að fá að fara þarna út, ég átti alls ekki von á því þar sem ein- hverjir 32 sóttust eftir því,“ segir Karl. Hann sigraði í einstaklings- keppni í klassískum ballett hér- lendis í febrúar og öðlaðist þar með rétt á þátttöku í keppninni í Svíþjóð. Óhætt er að segja að Karl hafi náð langt á skömmum tíma því ekki eru nema tvö og hálft ár síðan hann hóf nám í klassískum ballett. „Ferillinn minn byrjaði í samkvæmisdansi hjá Dansskóla Jón Péturs og Köru og svo skipti ég yfir í Dansskóla Auðar Har- alds. Þetta var mjög skemmtileg- ur tími, ég starfaði með mörgum af stærstu nöfnunum í bransanum og vann til gullverðlauna. Sam- kvæmisdansinnn er hins vegar dýrt sport og meðal annars þess vegna ákvað ég að prófa ballettinn og þá varð ekki aftur snúið.“ Karl stundar nú nám við Mennta- skólann í Hamrahlíð og tekur klassíska ballettinn með. „Ég byrja snemma á morgnana og mæti til skiptis í skólann eða dansinn og fer svo á milli eftir þörfum. Helm- ingur tímans fer í nám og helm- ingurinn í dans,“ útskýrir hann og getur þess að hann stefni á að taka ballettinn á sem skemmstum tíma. „Svo vil ég vinna erlendis í nokkr- ar vikur og ferðast eitthvert um heiminn.“ Spurður hvaða þýðingu sigur í Svíþjóð gæti haft segist Karl taka öllu með ró. „Verður maður bara ekki að vona það besta en vera viðbúinn því versta, gosið gæti til dæmis sett allt úr skorðum,“ segir hann og hlær. „En ef ég vinn breytir það auðvitað öllu, það yrði frábært á ferilskrána og ég þyrfti auðvitað að endurskoða framtíðar- plönin.“ roald@frettabladid.is Keppir í klassískum ballett Karl Fridrik Hjaltason heldur til Svíþjóðar um miðjan maí þar sem hann mun taka þátt í keppni í klass- ískum ballett. Hann segist taka öllu með ró en viðurkennir að sigur gæti breytt framtíðarfyrirætlunum. Karl hlakkar til að taka þátt í keppninni í Svíþjóð en með í för verða tveir aðrir Íslendingar, þær Ellen Margrét Bæhrenz og Sigrún Ósk Stefánsdóttir, sem einnig eru nemendur við Listdansskóla Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ÝMISLEGT sem viðkemur mismunandi prjóni, svo sem bútaprjón (entrelac), tvöfalt prjón, myndaprjón (intarsia), að prjóna með perlum til skrauts og margt fleira er að finna á vefsíðunni http://knitting.about. com/cs/specialtechniques/index.htm. Patti.is Landsins mesta úrval af sófasettum Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18 og Laugard. frá 11 til 16 Kynn ingar tilboð Horn sófi 2 H2 Láttu þér líða vel í sófa frá Patta 285.9 00 kr Rín 2 H2 Verð frá kynnum nýju línuna Fjölþrepa bakbrettið • Eykur sveigjanleika • Linar bakverki • Bætir líkamsstöðu • Auðvelt í notkun • Má nota hvar sem er Opið virka daga frá kl. 9 -18 www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Verð: 7.950 kr.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.