Fréttablaðið - 04.05.2010, Page 21
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Þetta er flott keppni, sem getur
opnað ýmsar dyr,“ segir Karl
Fridrik Hjaltason, nemi í klass-
ískum ballett við Listdansskóla
Íslands. Hann heldur utan til Sví-
þjóðar um miðjan mánuðinn til að
taka þátt í Storadal-dansen, klass-
ískri sólódanskeppni, sem er þekkt
á Norðurlöndunum og er mikil
viðurkenning fyrir alla sem taka
þátt í henni.
„Það er náttúrlega frábært tæki-
færi að fá að fara þarna út, ég átti
alls ekki von á því þar sem ein-
hverjir 32 sóttust eftir því,“ segir
Karl. Hann sigraði í einstaklings-
keppni í klassískum ballett hér-
lendis í febrúar og öðlaðist þar
með rétt á þátttöku í keppninni í
Svíþjóð.
Óhætt er að segja að Karl hafi
náð langt á skömmum tíma því
ekki eru nema tvö og hálft ár
síðan hann hóf nám í klassískum
ballett. „Ferillinn minn byrjaði í
samkvæmisdansi hjá Dansskóla
Jón Péturs og Köru og svo skipti
ég yfir í Dansskóla Auðar Har-
alds. Þetta var mjög skemmtileg-
ur tími, ég starfaði með mörgum
af stærstu nöfnunum í bransanum
og vann til gullverðlauna. Sam-
kvæmisdansinnn er hins vegar
dýrt sport og meðal annars þess
vegna ákvað ég að prófa ballettinn
og þá varð ekki aftur snúið.“
Karl stundar nú nám við Mennta-
skólann í Hamrahlíð og tekur
klassíska ballettinn með. „Ég byrja
snemma á morgnana og mæti til
skiptis í skólann eða dansinn og
fer svo á milli eftir þörfum. Helm-
ingur tímans fer í nám og helm-
ingurinn í dans,“ útskýrir hann og
getur þess að hann stefni á að taka
ballettinn á sem skemmstum tíma.
„Svo vil ég vinna erlendis í nokkr-
ar vikur og ferðast eitthvert um
heiminn.“
Spurður hvaða þýðingu sigur í
Svíþjóð gæti haft segist Karl taka
öllu með ró. „Verður maður bara
ekki að vona það besta en vera
viðbúinn því versta, gosið gæti
til dæmis sett allt úr skorðum,“
segir hann og hlær. „En ef ég vinn
breytir það auðvitað öllu, það yrði
frábært á ferilskrána og ég þyrfti
auðvitað að endurskoða framtíðar-
plönin.“ roald@frettabladid.is
Keppir í klassískum ballett
Karl Fridrik Hjaltason heldur til Svíþjóðar um miðjan maí þar sem hann mun taka þátt í keppni í klass-
ískum ballett. Hann segist taka öllu með ró en viðurkennir að sigur gæti breytt framtíðarfyrirætlunum.
Karl hlakkar til að taka þátt í keppninni í Svíþjóð en með í för verða tveir aðrir Íslendingar, þær Ellen Margrét Bæhrenz og Sigrún
Ósk Stefánsdóttir, sem einnig eru nemendur við Listdansskóla Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÝMISLEGT sem viðkemur mismunandi prjóni, svo
sem bútaprjón (entrelac), tvöfalt prjón, myndaprjón
(intarsia), að prjóna með perlum til skrauts og margt
fleira er að finna á vefsíðunni http://knitting.about.
com/cs/specialtechniques/index.htm.
Patti.is
Landsins mesta úrval af sófasettum
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18 og Laugard. frá 11 til 16
Kynn
ingar
tilboð
Horn
sófi 2
H2
Láttu þér líða vel í sófa frá Patta
285.9
00 kr
Rín 2
H2
Verð
frá
kynnum nýju línuna
Fjölþrepa
bakbrettið
• Eykur sveigjanleika
• Linar bakverki
• Bætir líkamsstöðu
• Auðvelt í notkun
• Má nota hvar sem er
Opið virka daga frá kl. 9 -18
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Verð: 7.950 kr.