Fréttablaðið - 04.05.2010, Qupperneq 28
4. MAÍ 2010 ÞRIÐJUDAGUR4 ● fréttablaðið ● vorverkin
Annir eru miklar á vorin hjá
íslenskum fjárbændum. Það
á meðal annars við um hjónin
Jóhannes Sveinbjörnsson og
Ólöfu Björgu Einarsdóttur, sem
eru með kindur og holdakjúkl-
inga á Heiðarbæ 1 í Þingvalla-
sveit.
Skær lambsjarmur og rödd um-
hyggjusamrar móður kallast á á
fæðingardeildinni á Heiðarbæ 1,
sem Jóhannes bóndi er að útbúa í
hlöðunni. Þar hefur hver ær einka-
stíu fyrir sig og sín lömb þegar þau
eru komin í heiminn. Þangað til er
hún í almenningskró. „Hjá okkur
er sauðburðurinn aðalviðfangsefn-
ið allan maímánuð og meðan mesta
törnin gengur yfir er oft lítið sofið.
Maður gerir ekki mikið annað en
passa upp á að allt sé í góðu lagi
í fjárhúsunum. Því er vakt allan
sólarhringinn,“ segir Jóhannes og
er beðinn að útskýra aðeins nánar
um hvað málið snýst. „Það geta
komið upp vandamál í fæðing-
unni og stundum vilja ærnar stela
lömbum hver frá annarri ef marg-
ar eru að bera í sömu kró. Svo verð-
ur að gæta þess að lömbin komist
á spena, merkja þau og skeina og
passa að allar skepnurnar hafi nóg
að éta og drekka.“
Jóhannes er fæddur og uppalinn
á Heiðarbæ. Hann og Ólöf Björg
tóku við fjárbúskapnum af foreldr-
um hans, Sveinbirni Jóhannessyni
og Steinunni Guðmundsdóttur, árið
1998 og við holdakjúklingarækt-
inni í fyrra. Sveinbjörn og Steinunn
búa í húsi við hliðina og taka þátt í
bústörfunum eftir þörfum, meðal
annars um sauðburðinn auk þess
sem Skúli, bróðir Ólafar Bjargar,
sér um næturvaktir þegar mest
er að gera. Eldri börnin á bænum,
Svanborg Signý, fjórtán ára, og
Sveinbjörn, tólf ára, eru líka lið-
tæk þegar þau eru ekki í skólanum
og Steinunn Lilja, eins árs, fylgist
með litlu lömbunum af áhuga.
Um sextíu ær eru bornar af
700 á Heiðarbæ. Jóhannes segir
þeim hafa flestum gengið vel að
koma afkvæmunum í heiminn.
„Yngri ærnar þurfa frekar á fæð-
ingarhjálp að halda. Þá kalla ég á
Björgu, konu mína, ef hún er ekki
í húsunum. Það er lykilatriði að ég
fari ekki að gera neina vitleysu. Ég
er með svo stórar hendur og hún er
miklu flinkari en ég enda sveita-
stúlka vestan úr Dölum og ólst upp
við þetta frá barnsaldri.“
Fleiri vorverk eru í sveitinni
svo sem að dreifa skít og öðrum
áburði, plægja nýræktir og sá í
þær. Jóhannes kveðst hafa byrjað
búfjáráburðardreifingu fyrir sauð-
burð, meðan jörð var enn frosin,
annað verði að bíða.
Frúin er aðal sauðburðarsér-
fræðingurinn og hefur líka nóg
annað að sýsla. „Litla daman þarf
síns með og þegar unnið er allan
sólarhringinn er betra að hafa nóg
að borða,“ segir hún og bætir við:
„Það er lykilatriði að fóðra mann-
skapinn.“ - gun
Lítið um svefn í maí
Steinunn Lilja hefur gaman af kindunum og er ekki vitund hrædd við veturgömlu hrútana. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Værðin hefur yfirhöndina hjá þessari á með lömbin sín.
Jóhannes, Ólöf Björg og Sveinbjörn fá sér kaffisopa í upphituðu herbergi í fjárhús-
unum. Þar sefur Jóhannes bóndi oft þegar sauðburðurinn er að byrja, því þá er
nægilegt að vakna á tveggja tíma fresti. Unga fólkinu finnst sport að gista þar.
Heiðarbær 1 stendur á bökkum Þingvallavatns.
Jóhannes, Ólöf Björg og Steinunn Lilja fylgjast með lífinu á fæðingardeildinni.