Fréttablaðið - 04.05.2010, Síða 47
ÞRIÐJUDAGUR 4. maí 2010 31
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Þriðjudagur 4. maí 2010
➜ Tónleikar
20.00 Ingólfur Vilhjálmsson klari-
nettuleikari og Lluïsa Espigolé
píanóleikari flytja verk eftir Busoni,
Brahms, Berg, Stravinskí og Debussy
á tónleikum í Salnum við Hamraborg í
Kópavogi.
21.00 Tónleikar verða á Café Cultura
við Hverfisgötu 18 þar sem bandaríski
trommarinn Scott McLemore og hljóm-
sveit leika djasstónlist.
➜ Fundir
19.00 MFÍK (Menningar- og friðarsam-
tök íslenskra kvenna) verða með opinn
félagsfund í Friðarhúsinu að Njálsgötu
87. Sigrún Sigurðardóttir menningar-
fræðingur mun fjalla um líf og reynslu
flóttamanna út frá ljósmyndasýningunni
Heima – heiman sem opnaði í Ljós-
myndasafni Reykjavíkur haustið 2008.
Húsið verður opnað kl. 18.30.
➜ Sýningar
Í Eiðsskeri, sal Bókasafns Seltjarnar-
ness í Eiðistorgi, hefur verið opnuð
samsýning Eddu Guðmundsdóttur,
Georg Douglas, Jórunnar Kristinsdótt-
ur og Jóns Grétars Ingvasonar. Opið
mán.-fim. kl. 10-19, fös. kl. 10-17.
Sigurbjörn Ó. Kristinsson hefur opnað
sýningu í menningarsalnum á Hrafnistu
við Hraunvang í Hafnarfirði. Opið alla
daga kl. 14.30-22.
➜ Fyrirlestrar
12.05 Hans Tryggvason arkitekt flytur
erindi um möguleika og nálgun í hönn-
un og þróun þéttbýlis. Fyrirlesturinn
fer fram hjá Opna listaháskólanum að
Skipholti 1.
Vöðvabúntið Sylvester Stallone
segir að 99 prósenta líkur séu á
því að sögupersónan Rambo snúi
ekki aftur á hvíta tjaldið. Tvö
ár eru liðin síðan fjórða Rambo-
myndin kom út við ágætar undir-
tektir. Þá voru tuttugu ár liðin frá
gerð Rambo III. „Ég held að
Rambo hafi sungið
sitt síðasta. Ég held
að hann snúi ekki
aftur. Ég er 99
prósent viss,“
sagði Stall-
one. „Ég er mjög
ánægður með síð-
ustu mynd sem
gerðist í
Búrma.
„Ég vildi
að hún sýndi hvern-
ig borgarastyrjöld
gengur fyrir sig í
raun og veru. Það
er ekki hægt að
fegra slíka hluti.“
Rambo snýr
ekki aftur
SYLVESTER STALLONE Stallone segir að
Rambo hafi loksins sungið sitt síðasta.
Forstöðumaður Fjölskyldu-
og húsdýragarðsins segir
að hugmynd Jóns Gnarr um
ísbjörn í garðinum sé vel
framkvæmanleg. Jón segist
enda ekki vera að grínast.
„Þetta er auðvitað allt spurning um
fjármagn. Fyrir borgina held ég að
þetta sé ekki óyfirstíganlegt. Til
þess að þetta sé gert almennilega
gæti þetta kostað eins og að byggja
hálfa sundlaug,“ segir Tómas Óskar
Guðjónsson, forstöðumaður Fjöl-
skyldu-og húsdýragarðsins, þegar
hann er inntur eftir því hvort það
sé raunhæft að vera með ísbjörn í
garðinum. Besti flokkurinn, senu-
þjófur undanfarna daga, hefur
talað fyrir því í kosningabaráttunni
sinni.
Tómas upplýsir að formaður
flokksins, Jón Gnarr, ætli að setj-
ast niður með starfsfólki garðs-
ins yfir hádegismat á næstunni og
ræða við það hvernig hann telji að
megi bæta húsdýragarðinn. Þetta
vinsæla afþreyingarsvæði hefur
ekki áður verið í jafnmiklu hlut-
verki í kosningabaráttu fyrir borg-
arstjórnarkosningar og Tómas telur
það ánægjulegt að sjá Fjölskyldu-
og húsdýragarðinn aftur á dagskrá.
Meðal annarra hugmynda sem
Besti flokkurinn hefur lagt fram er
að reisa lundabjarg en sú yfirlýsing
að slátra ætti öllu sauðfé og grilla
það var hins vegar grín.
Jóni Gnarr, formanni Besta
flokksins, er full alvara með
Ísbjörn raunhæfur mögu-
leiki í Húsdýragarðinum
ísbjarnar hugmynd sinni. „Við erum
búin að hafa samband við Polarbear
International og þeir hafa sýnt þessu
verkefni mikinn áhuga. Þeir vilja
koma að þessu verkefni með öllum
mögulegum hætti og þetta er því
ekki eitthvað sem er úr lausu lofti
gripið,“ segir Jón og bendir á að það
hafi ekki verið nein sérstaklega góð
landkynning þegar landflótta ísbirn-
ir voru skotnir hér á landi. Að sögn
Jóns gengur hugmyndin út á það að
byggja sérstakt svæði fyrir ísbirni
sem hingað reka á land. Þeir yrðu
fluttir þangað, hlúð að þeim og svo
sleppt í sínu náttúrulega umhverfi.
Jón hefur engar sérstakar áhyggjur
af því að ísbirnir séu hættir að koma
hingað enda hafi sérfræðingar frá
Polarbear International bent á að
komum þeirra til Íslands muni frek-
ar fjölga heldur en hitt vegna lofts-
lagsbreytinga. „Ef svo ólíklega vill
til að það gerist þá fáum við bara
lánaðan ísbjörn frá Grænlandi til að
nýta þetta svæði.“
Jóni er einnig full alvara með
lundabjarginu enda hafi hann séð
svoleiðis í dýragarðinum í Seattle.
„Ég vil sjá Fjölskyldu- og húsdýra-
garðinn verða að einhvers konar
heimskautagarði sem komi fólki
sífellt á óvart. Þetta hefði mikið
aðdráttarafl fyrir erlenda ferða-
menn,“ segir Jón.
freyrgigja@frettabladid.is
EKKI EITTHVERT DJÓK
Tómas Óskar Guðjónsson segir það vel
raunhæft að hafa ísbjörn í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinum eins og Besti flokkur
Jóns Gnarr hefur talað fyrir. Alþjóðleg
ísbjarnasamtök hafa lýst yfir áhuga
sínum á að taka þátt í slíku verkefni.
Það er
0 kr. mínútan úr
heimasíma í heimasíma*
Nú geturðu blaðrað eins og þú vilt.
Hringdu í
800 7000
til að panta
heimasíma