Fréttablaðið - 04.05.2010, Qupperneq 54
38 4. maí 2010 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÖGIN VIÐ VINNUNA
LÁRÉTT
2. dóms, 6. tónlistarmaður, 8. að, 9.
árkvíslir, 11. á fæti, 12. vörubyrgðir,
14. kál, 16. hæð, 17. hyggja, 18.
lyftist, 20. hreyfing, 21. ljómandi.
LÓÐRÉTT
1. ílát, 3. bardagi, 4. víbrator, 5.
slagbrandur, 7. sígild list, 10. temja,
13. hnoðað, 15. stútur, 16. tímabils,
19. sjó.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. mats, 6. kk, 8. til, 9. ála,
11. tá, 12. lager, 14. salat, 16. ás, 17.
trú, 18. rís, 20. ið, 21. skær.
LÓÐRÉTT: 1. skál, 3. at, 4. titrari, 5.
slá, 7. klassík, 10. aga, 13. elt, 15.
túða, 16. árs, 19. sæ.
„Ég er oftast með útvarpið í
gangi og hlusta þá á Bylgjuna.
Svo set ég stundum disk í og
hlusta þá á Celine Dion. Undan-
farið ár hef ég líka hlustað
mikið á Coldplay, enda eru þeir
bestir.“
Sigríður Sigurðardóttir glerhandverks-
kona.
Grínistinn Steindi Jr. fagnaði frum-
sýningu nýs sjónvarpsþáttar síns á
Stöð 2 með veislu í Gyllta sal Hót-
els Borgar á föstudagskvöld. Ætlun-
in var að sýna þáttinn á breiðtjaldi
en þegar til kom virkaði afruglarinn
á staðnum ekki. Þá brá Ágúst Bent,
einn framleiðenda þáttanna, á það
ráð að skjótast eftir eintaki á
DVD. Þegar til kom virkaði
DVD-spilarinn á staðnum
ekki. Afruglarinn var svo
enn bilaður þegar átti
að horfa á Steindann
okkar á Stöð 2 plús.
Að endingu var
hægt að sýna gest-
um þáttinn góða í
gegnum tölvu.
Gestir í partíi Steinda létu þetta
ekki mikið á sig fá enda var vel
veitt svo biðin var þeim ekki
beint óbærileg. Meðal gesta voru
Dagur B. Eggertsson borgarfull-
trúi, rapparinn Diddi
Fel, Erpur Eyvindarson,
Jóhanna Guðrún
Jónsdóttir söngkona,
Vala Grand, Steinþór
Helgi, umboðs-
maður Hjaltalín,
Frosti Logason
útvarpsmaður og
Bragi Valdimar í
Baggalúti.
Sjúklegur fatamarkaður fór fram
í húsnæði Eskimo við Skúlatún á
laugardag og voru það systurnar
Bára, Hrafnhildur og Sigrún Hólm-
geirsdætur ásamt Andreu Brabin
og Örnu Borgþórsdóttur sem stóðu
fyrir markaðinum. Fullt var út úr
dyrum um leið og markaðurinn
hófst, enda hafa ófáir væntanlega
gert sér vonir um að komast í feitt,
og þurftu stúlkurnar að bregða á
það ráð stuttu eftir opnun að læsa
hurðinni og hleypa inn í
hollum. Mikil og löng
röð myndaðist þá fyrir
utan húsið þar sem
kaupglaðar konur
biðu fullar eftir-
væntingar eftir
því að komast
inn og versla.
- hdm, sm
FRÉTTIR AF FÓLKI
SPURNING DAGSINS
Svör við spurningum á síðu 8.
1 John Higgins.
2 Deepwater Horizon.
3 Í borginni Sjanghaí í Kína.
„Fólk úti á landi var farið að sækj-
ast eftir því að fá markaðinn í sitt
bæjarfélag og við ákváðum að
slá til. Fyrsti markaðurinn verð-
ur haldinn á Akureyri núna um
helgina og svo höfum við einnig
ákveðið að taka þátt í listahátíðinni
LungA sem fram fer á Seyðisfirði
í sumar,“ segir Þórey Björk Hall-
dórsdóttir, einn aðstandenda
PopUp-markaðarins, en hann verð-
ur haldinn í fyrsta sinn á Akureyri
nú um helgina. „Planið er að halda
þessu áfram og fara á fleiri staði í
sumar og þá verður markaðurinn
hugsanlega tvisvar í mánuði, einu
sinni í Reykjavík og einu sinni úti á
landi. Við höfum verið að reyna að
fá hönnuði sem búsettir eru ann-
ars staðar á landinu til að koma og
taka þátt í þessu með okkur.“
PopUp Verzlunin er milliliðalaus
verslun þar sem hönnuðir selja
vörur sínar beint til neytenda.
Markaðurinn var haldinn í fyrsta
sinn í ágúst í fyrra og hefur vaxið
og dafnað síðan þá. „Það er auð-
vitað mjög gleðilegt hvað markað-
urinn hefur blómstrað. Við höfum
reynt að hafa það fyrir reglu að fá
að minnsta kosti einn nýjan hönn-
uð með á hvern markað,“ segir
Þórey Björk.
Aðspurð segir hún engan norð-
lenskan hönnuð hafa boðað þátt-
töku sína um helgina en tekur fram
að enn sé laust pláss. Meðal þeirra
hönnuða sem taka þátt eru Sonja
Bent, Anna Soffía, Eygló Lárus-
dóttir og Varius.
Markaðurinn verður haldinn
í Hafnarstræti 99 og hefst hann
klukkan 13.00 og stendur til 18.00
laugardag og sunnudag. - sm
PopUp ferðast til Akureyrar
POPUP Þórey Björk Halldórsdóttir, lengst
til vinstri, ásamt Guðbjörgu Jakobsdóttur
og Björgu Guðmundsdóttur, en þær
stóðu að stofnun markaðarins.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
„Við erum að klára viðræðurnar
og vonandi náum við að landa
samingnum innan skamms,“
segir kvikmyndaframleiðandinn
Sigurjón Sighvatsson sem vinnur
að því að semja við stórleikarann
Nicolas Cage fyrir væntanlega
kvikmynd sem hann framleiðir.
Myndin heitir Dark Highway og
gerist á þjóðvegi frá sólarupprás
til sólarlags.
„Hún fjallar um mann sem þarf
að ná fundi og er að keyra úti á
þjóðvegi. Fljótlega tekur hann
eftir því að honum er veitt eftir-
för og sá aðili er ekki með neitt
gott í huga,“ útskýrir Sigurjón en
leikstjóri myndarinnar verður að
öllum líkindum Bruce McDonald.
Christopher Kyle skrifar hand-
ritið en Kyle og Sigurjón unnu
saman að gerð K19 fyrir allmörg-
um árum.
Þetta er heldur ekki í fyrsta
skipti sem leiðir Sigurjóns og
Cage liggja saman.
Cage lék aðalhlutverkið í hinni
margrómuðu Wild at Heart eftir
David Lynch, sem Sigurjón fram-
leiddi og skaut leikaranum upp á
stjörnuhimininn. Cage var til-
nefndur til Óskarsverðlauna fyrir
kvikmyndirnar Adaptation og
Leaving Las Vegas og hlaut þau
fyrir síðastnefndu myndina.
Cage er ekki eina stórstjarnan
sem Sigurjón er að landa um
þessar mundir því í bígerð er
önnur kvikmynd úr hans smiðju,
The Killer Elite, með þeim Clive
Owen og Jason Statham. -fgg
Sigurjón að landa stórlaxinum Nicolas Cage
SAMAN Á NÝ Nicolas Cage skaust upp á
stjörnuhimin Hollywood með frammi-
stöðu sinni í Wild at Heart sem Sigurjón
Sighvatsson framleiddi.
Rögnu Lóu Stefánsdóttur hefur
verið boðið að taka þátt í breskum
raunveruleikaþætti þar sem fylgst
er með lífi venjulegs fjölskyldu-
fólks. Í samtali við Fréttablaðið seg-
ist hún ekki hafa hugmynd um hvað
hún eigi að gera; hvort hún eigi að
taka þessu boði og hleypa þar með
sjónvarpsmönnum inn í líf sitt og
fjölskyldu sinnar. „Ég er eiginlega
í hálfgerðu sjokki,“ segir Ragna
Lóa sem um árabil var ein fremsta
knattspyrnukona þjóðarinnar en býr
nú í Portsmouth ásamt eiginmanni
sínum, Hermanni Hreiðarssyni,
leikmanni Portsmouth og fyrirliða
íslenska landsliðsins.
Ragna vill sem minnst um raun-
veruleikaþættina segja að svo
komnu máli enda sé ekkert frá-
gengið með þátttöku hennar. Eftir
því sem Fréttablaðið kemst næst
er um að ræða gríðarlega stóra
framleiðslu og miðað við það álit
sem Bretar hafa á Íslandi í kjölfar
Iceasave-deilunnar og öskunnar frá
Eyjafjallajökli væri þetta kærkom-
ið tækifæri fyrir Rögnu að lagfæra
aðeins ímynd þjóðarinnar. „Ég sagði
reyndar við Hermann á sínum tíma
að þegar ferillinn hans væri búinn
myndi ég taka við, hver veit nema
það sé að rætast,“ segir Ragna Lóa
og hlær. Hún hefur reyndar þurft
að þola hálf farlama Hermann sem
sleit hásinina í leik gegn Tottenham
fyrir nokkru. Tímabil Portsmouth
í heild hefur ekki verið neinn dans
á rósum því félagið féll úr ensku
úrvalsdeildinni, fjárhagsvandræði
þess hafa verið í stöðugu kastljósi
fjölmiðlanna og svona mætti lengi
telja. „Við erum samt eins og ein
stór fjölskylda, þetta hefur þjapp-
að öllum saman. Þetta er eins og að
vera á stóru ættarmóti, það leggjast
allir á eitt,“ segir Ragna sem mun að
sjálfsögðu fylgja liðinu á Wembley
þegar það etur kappi gegn millj-
arðaliði Chelsea í úrslitum enska
bikarsins.
Ragna mun hins vegar þreyta
frumraun sína í sjónvarpi þegar
hún stýrir HM 4-4-2 á Stöð 2
Sport 2, óháð því hvort hún tekur
þátt í bresku raunveruleikasjón-
varpsseríunni. Í þáttunum verða
leikir heimsmeistaramótsins í
knattspyrnu, sem fram fer í Suður-
Afríku, krufnir til mergjar en
með henni í þættinum verður Logi
Bergmann Eiðsson. „Þetta eru auð-
vitað forréttindi, að fá vinnu við
áhugamálið sitt. Fótbolti er lífið
mitt og þetta er bara happdrættis-
vinningur fyrir manneskju eins og
mig,“ segir Ragna og viðurkennir
að hjartað slái með enskum á HM
í sumar. „Margir af leikmönn-
um liðsins eru persónulegir vinir
manns og að horfa á enska landslið-
ið er bara eins og að horfa á félags-
liðið sitt. Við erum bæði alveg rosa-
lega spennt fyrir HM í sumar.“
freyrgigja@frettabladid.is
RAGNA LÓA STEFÁNSDÓTTIR: HASLAR SÉR VÖLL Í SJÓNVARPI
Boðið að taka þátt í bresk-
um raunveruleikaþætti
EFTIRSÓTT Rögnu Lóu Stefánsdóttur hefur verið boðið að taka þátt í breskum raun-
veruleikaþætti. Hún mun auk þess kryfja leiki HM í knattspyrnu til mergjar á Stöð 2
Sport 2. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Parketlakk
Ný vara á
góðu verði
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755