Fréttablaðið - 11.05.2010, Qupperneq 8
8 11. maí 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Samfylkingarfélagi í Reykjavík bo ar til félagsfundar
um pólitíska ábyrg og si fer i í íslenskum stjórnmálum
mi vikudaginn 12. maí. Fundurinn ver ur haldinn á
Hallveigarstíg 1 og hefst kl. 20.30.
_____________________________________________
Frummælendur ver a stjórnmálafræ ingarnir:
Au ur Styrkársdóttir
og
Birgir Hermannsson
_____________________________________________
A loknum framsöguerindum svara frummælendur
spurningum fundarmanna og taka átt í umræ um.
Fjölmennum!
Stjórn Samfylkingarfélagsins í Reykjavík
ábyrg
Pólitísk
www.xs.isAllir velkomnir
VEISTU SVARIÐ?
VIÐSKIPTI Reiknað er með því að
starfsmenn tölvuleikjafyrirtækis-
ins CCP, sem meðal annars fram-
leiðir netleikinn EVE Online, verði
í lok þessa árs rúmlega 620 tals-
ins. Þetta kemur fram í auglýsingu
sem fyrirtækið birti um helgina
þar sem óskað var eftir 150 nýjum
starfsmönnum.
Hilmar Veigar Pétursson, fram-
kvæmdastjóri CCP, segir kall eftir
auknum starfskrafti í takt við
áætlanir fyrirtækisins um vöxt og
aukningu umfangs, en fyrirtækið
er nú með þrjá leiki í framleiðslu
og er með skrif-
stofur í New-
castle, Atlanta
og í Shanghaí.
„ Þ et t a er
samkvæmt
áætlun sem við
höfum unnið
eftir síðustu
þrjú ár,“ segir
Hilmar Veigar
og bætir við að
fjöldi ráðninga
nú hafi verið ákveðinn í október í
fyrra. Helstu nýbreytnina nú segir
hann vera hvað fyrirtækið auglýsi
á áberandi hátt eftir nýjum starfs-
krafti, en það sé til þess að sem
flest gott fólk viti af þeim.
Þá segir Hilmar engar áætlanir
uppi um að skrá fyrirtækið á mark-
að. Ekki væri tilefni til að lesa
annað úr því að einnig hafi verið
um helgina auglýst eftir „corpor-
ate controller“ (fyrirtækisstjóra
sem starfar undir fjármálastjóra)
með reynslu af hlutafjárútboðum
annað en að CCP leitaðist ávallt við
að ráða sem hæfast fólk með sem
víðtækasta reynslu. - óká
HILMAR V.
PÉTURSSON
Tölvuleikjafyrirtækið CCP auglýsir eftir 150 nýjum starfsmönnum:
Aukningin í takt við áætlanir
1 Guðlaug K. Pálsdóttir varð
fyrir því að krókódíll át golfkúl-
una hennar. Hvar gerðist þetta?
2 Hver er knattspyrnustjóri
nýkrýndra meistara Chelsea?
3 Hver er leiðtogi sjálfstæðis-
manna í Hafnarfirði?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 34
REYKJAVÍK Reykjavíkurborg hefur
auglýst eftir kauptilboðum í
byggingarrétt fyrir íbúðarhús í
grónum hverfum í borginni. Um
er að ræða tólf lóðir. Fimm lóðir
fyrir keðjuhús eru við Lautar-
veg, í Blesugróf, Jöldugróf og
Bleikargróf eru fimm lóðir fyrir
einbýlishús og við Lambasel er
einbýlishúsalóð þar sem bygging-
arréttur er seldur með grunni. Þá
er einnig auglýst til sölu einbýlis-
húsalóð við Bauganes.
Frestur til að skila inn kauptil-
boðum er til 19. maí.
Reykjavíkurborg augýsir:
Lóðir í gömlum
hverfum til sölu
ELDGOS Um fjörutíu jarðskjálftar
mældust undir Eyjafjallajökli um
hádegisbil í gær. Flestir mældust
á 18 til 20 kílómetra dýpi og jókst
sprengivirkni í kjölfarið. Gos-
mökkurinn náði hæst sex kíló-
metra hæð og bændur á stóru
svæði undir Eyjafjöllum hafa
þurft að þola öskufall í langan
tíma.
Öskuskýið undir Eyjafjöllum
náði frá Skógum í austri að Selja-
völlum en var mest á bæjum í
Drangshlíð og Skarðshlíð. Að
sögn ábúenda hafði öskufallið þar
staðið næsta óslitið í á annan sól-
arhring samkvæmt stöðuskýrslu
Veðurstofu Íslands og jarðvís-
indastofnunar Háskóla Íslands
frá því klukkan þrjú í gær.
Þar kemur fram að mjög dró úr
gosvirkni þegar leið á daginn og
telst svipuð og undanfarna daga.
Hins vegar hafði gosvirknin verið
mun meiri en undanfarið eftir
jarðskjálftahrinuna með aukinni
gjóskuframleiðslu og hækkandi
gosmekki. Klepragígur hleðst upp
í ískatlinum, en hraunrennsli er í
lágmarki þar sem um sprengigos
er að ræða þessa dagana. Ekkert
bendir til gosloka.
- shá
Jarðskjálftavirkni jókst tímabundið í Eyjafjallajökli um hádegi í gær:
Aukin virkni í kjölfar skjálfta
EYJAFJALLAJÖKULL Dökkur gosmökkur stóð upp af eldstöðvunum eftir jarðskjálfta-
hrinuna í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
50
40
30
20
10
0
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR
REYKJANESBÆR
SAMKVÆMT KÖNNUN FRÉTTABLAÐSINS OG STÖÐVAR 2 11. MAÍ
1 6 3 10 7 0 0
Ko
sn
in
ga
r
10
,3
56
,3
51
,2
26
,4
5,
2
12
,1
■ Kosningar 2006
A-listinn
33
,2
4
KÖNNUN Sjálfstæðisflokkurinn tapar
einum bæjarfulltrúa í Reykjanesbæ
í komandi sveitarstjórnarkosning-
um en heldur hreinum meirihluta
bæjarfulltrúa samkvæmt nýrri
könnun Fréttablaðsins og Stöðvar
2, sem gerð var í gærkvöldi.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist
með stuðning 51,2 prósenta þeirra
bæjarbúa sem afstöðu tóku í könn-
uninni. Það er 5,1 prósentustigi
undir kjörfylgi flokksins í sveit-
arstjórnarkosningunum 2006,
þegar flokkurinn fékk 56,3 prósent
atkvæða.
Samkvæmt niðurstöðum könnun-
arinnar fengi Sjálfstæðisflokkur-
inn sex bæjarfulltrúa af ellefu, en
er með sjö í dag.
Vinstri græn ríflega tvöfalda
fylgi sitt frá síðustu kosningum, og
mælast nú með stuðning 12,1 pró-
sents íbúa í Reykjanesbæ, og einn
bæjarfulltrúa. Flokkurinn fékk 5,2
prósent í síðustu kosningum, sem
dugði þeim ekki til að ná manni í
bæjarstjórn.
Samfylkingin er næststærsti
flokkurinn í bænum með rúmlega
helming af fylgi Sjálfstæðisflokks-
ins. Samfylkingin nýtur stuðnings
26,4 prósenta samkvæmt könnun
Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Yrðu
niðurstöður kosninga í takt við
þessa niðurstöðu fengi flokkurinn
þrjá bæjarfulltrúa.
Framsóknarflokkurinn nýtur
stuðnings 10,3 prósenta samkvæmt
könnuninni, og fengi samkvæmt því
einn bæjarfulltrúa.
Samfylkingin og Framsóknar-
flokkurinn buðu fram sameiginlega
í kosningunum 2006, undir merkj-
um A-lista. Flokkarnir fengu þá
33,2 prósent atkvæða og fjóra bæj-
arfulltrúa. Þeir fá núna samanlagt
36,7 prósent og sama fjölda bæjar-
fulltrúa.
Samkvæmt könnuninni yrðu því
ekki miklar breytingar á fjölda
bæjarfulltrúa. Samfylking og
Framsóknarflokkur fengju saman-
lagt sama fjölda og flokkarnir eru
með sameiginlega í dag, en Vinstri
græn bæta við sig manni á kostnað
Sjálfstæðisflokks.
Hringt var í 800 manns mánu-
daginn 10. maí. Þátttakendur voru
valdir með slembiúrtaki úr þjóð-
skrá. Svarendur skiptust jafnt eftir
kyni, og hlutfallslega eftir aldri.
Spurt var: Hvaða lista myndir
þú kjósa ef gengið yrði til sveit-
arstjórnarkosninga í dag? Ef ekki
fékkst svar var spurt: Hvaða flokk
er líklegast að þú myndir kjósa?
Ef ekki fékkst svar var að lokum
spurt: Er líklegra að þú myndir
kjósa Sjálfstæðisflokkinn eða ein-
hvern annan flokk? Alls tóku 55,9
prósent afstöðu til spurningarinn-
ar. brjann@frettabladid.is
Sjálfstæðisflokkur
heldur meirihluta
Litlar breytingar mælast á stuðningi við stjórnmálaflokka í Reykjanesbæ sam-
kvæmt könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Sjálfstæðisflokkurinn heldur meiri-
hluta með sex bæjarfulltrúa af ellefu. Vinstri græn tvöfalda fylgi sitt frá 2006.