Fréttablaðið - 11.05.2010, Blaðsíða 9
569 5100
skyrr@skyrr.is Velkomin
Skýrr elskar
rafræn viðskipti
Opinn morgunverðarfundur Skýrr um hagræðingu og
sparnað með rafrænum viðskiptum, miðvikudaginn 12. maí
Skýrr býður atvinnulífinu til opins morgunverðarfundar
miðvikudaginn 12. maí um hagræðingu og sparnað með
rafrænum viðskiptum.
Rafræn viðskipti og innkaup færast sífellt í aukana í
atvinnulífinu, enda gera þau vinnustöðum kleift að spara
umtalsverðar fjárhæðir og tíma.
Sérstaklega hefur þróunin verið hröð undanfarna mánuði
með tilkomu upplýsingatækniþjónustu sem líkja má við
dreifingarmiðstöð eða pósthús fyrir rafræn viðskipti.
Þessar miðstöðvar sjá um rafræna dreifingu reikninga,
pantana, hreyfingalista og annarra skjala milli aðila sem
eiga í viðskiptum.
Sem dæmi um þróunina má nefna að íslenska ríkið tekur
nú á móti rafrænum reikningum og afþakkar pappírs-
reikninga frá og með 1. maí 2010.
Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8:00, en formleg
dagskrá hefst kl. 8:30 og fundarlok eru áætluð kl. 10:00.
Þátttaka er gestum að kostnaðarlausu og fundurinn er
öllum opinn, meðan húsrúm leyfir.
Fundurinn verður haldinn í ráðstefnusal Skýrr að Ármúla 2
í Reykjavík (gengið inn frá Háaleitisbraut).
Skráning fer fram á vefsvæði Skýrr (skyrr.is).
8:00 Morgunverður
Ljúffengar veitingar að hætti hússins
8:30 Skýrr býður góðan dag
Gestur G. Gestsson, forstjóri Skýrr
8:40 Orkureikningar og NES/UBL:
Kostnaðarauki eða hagræðing?
Rúnar Óskarsson, verkfræðingur hjá Rarik
9:00 Rafræn innkaup: Innleiðing innkaupaferla
fyrir viðskiptavini
Arnar Bjarnason, markaðsstjóri Fastus
9:20 Skeytamiðlun Skýrr: Rafræn dreifing
reikninga, pantana og annarra skjala
Styrmir Kristjánsson, ráðgjafi hjá Skýrr
Fundarstjóri
Helgi Lárusson, forstöðumaður hjá
viðskiptalausnum Skýrr