Fréttablaðið - 11.05.2010, Side 10
10 11. maí 2010 ÞRIÐJUDAGUR
Meira í leiðinniWWW.N1.IS / SÍMI 440 1000N1 HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
FLOTTAR FELGUR
Á FRÁBÆRU VERÐI
SATURN
STÆRÐIR: 14”, 15”, 16” OG 18”
VERÐ FRÁ: 12.500 KR. (14”)
BLAZE
STÆRÐ: 17”
VERÐ: 19.500 KR.
VANDAÐAR GÆÐA FELGUR
FRÁ LF WORKS Á FLESTAR TEGUNDIR
FÓLKSBÍLA OG JEPPLINGA
LEGEND
STÆRÐ: 17”
VERÐ: 19.500 KR.
GALAXY
STÆRÐ: 16”
VERÐ: 16.500 KR.
KYNSLÓÐABIL Rússneskur uppgjafa-
hermaður úr síðari heimsstyrjöldinni
situr með lítinn dreng í fanginu á
Rauða torginu í Moskvu. Þar var 65 ára
afmæli stríðslokanna fagnað.
NORDICPHOTOS / AFP
BELGÍA, AP Evrópskar hlutabréfa-
vísitölur hækkuðu mikið í gær eftir
að Evrópusambandið tilkynnti að
stofnaður yrði neyðarsjóður til að
koma í veg fyrir að fjárhagsvandi
Grikklands breiddi úr sér til ann-
arra landa sambandsins.
Aðildarríki Evrópusambandsins
(ESB) hafa samþykkt að leggja 750
milljarða evra, jafnvirði ríflega
123 þúsund milljarða íslenskra
króna, í neyðarsjóðinn. Aðildar-
ríki munu geta fengið lán úr sjóðn-
um til að koma í veg fyrir að þau
lendi í svipuðum skuldavanda og
Grikkir.
Evrópski Seðlabankinn mun
einnig hefja mikil uppkaup á skuld-
um aðildarríkja ESB og einka aðila
til að halda mörkuðum stöðug-
um og lækka kostnað við lántök-
ur. Bandaríski seðlabankinn mun
styðja við aðgerðirnar með því
að setja aftur í gang gjaldmiðla-
skiptasamninga við Evrópska
seðlabankann.
Fréttir af neyðarsjóðnum höfðu
strax mikil áhrif á gengi evrunnar
og á hlutabréfavísitölur í Evrópu.
Met var slegið í Madríd á Spáni
þar sem hlutabréfavísitalan hækk-
aði um 14,43 prósent, sem er mesta
hækkun þar á einum degi. Í Lissa-
bon í Portúgal hækkaði hlutabréfa-
vísitalan um 10,73 prósent. Það er
einnig methækkun.
Hækkunin á Spáni og í Portúgal
kemur í kjölfar ótta við að löndin
fari sömu leið og Grikkland, og
þykir benda til þess að traust á
fjármálakerfi landanna hafi auk-
ist vegna neyðarsjóðsins.
Aðrar evrópskar vísitölur hækk-
uðu einnig umtalsvert. Í París
hækkuðu hlutabréf um 9,66 pró-
sent, og FTSE-vísitalan í London
hækkaði um 5,16 prósent.
Sérfræðingar í fjármálamörkuð-
um telja að aðgerðir ESB-ríkjanna
slökkvi að mestu þá elda sem erf-
itt ástand á Grikklandi hafi kveikt.
Þeir benda þó á að til lengri tíma
skapi það veikleika þegar skuldir
ríkja sem eyði um efni fram lendi
á endanum á herðum ábyrgðar-
fyllri ríkja. Þá skorti reglur til að
koma í veg fyrir að vandamálið
komi aftur upp síðar.
brjann@frettabladid.is
Neyðarsjóður
ESB styrkir
markaðina
Methækkun varð á hlutabréfavísitölum á Spáni og
í Portúgal eftir að tilkynnt var um neyðarsjóð ESB.
Ríki ESB leggja 750 milljarða evra í sjóðinn. Evrópski
seðlabankinn beitir sér með uppkaupum á skuldum.
EFNAHAGSMÁL „Ég sé ekki fyrir mér
að hægt sé að afnema verðtrygg-
inguna á skömmum tíma, en það
er hins vegar hægt að vinna kerfis-
bundið að breytingum sem sjálf-
krafa draga úr vægi hennar,“ sagði
Gylfi Magnússon, efnahags- og við-
skiptaráðherra, á opnum fundi við-
skiptanefndar Alþingis í gær.
Leiðin til að losna við verðtrygg-
inguna sagði Gylfi vera að ná betri
tökum á stjórn peningamála,
stöðugt gengi krónu og stöðugra
verðlag. Þegar slíkt ástand hefði
varað í áratug eða svo mætti fara
að gera sér vonir um að krónan
hefði áunnið sér nægt traust til
að fólk og fjárfestar vildu festa
fé sitt í krónum til lengri tíma. Á
hinn bóginn sagði hann svo að velta
mætti upp möguleikanum á því að
skipta hér um mynt, sem myndi
breyta stöðunni talsvert.
„Það má eiginlega líta svo á að
verðtryggingin sé að hluta til sjúk-
dómseinkenni og að hluta til aðferð
til að draga úr áhrifum sjúkdóms-
ins. En sjúkdómurinn er þá að hluta
til það óstöðuga verðlag og óstöð-
uga gengi sem fylgt hefur krón-
unni í meira en 70 ár. Það er skýr-
ingin á því að við erum eina landið
í okkar heimshluta með víðtæka
verðtryggingu á fjárskuldbinding-
um til langs tíma,“ sagði Gylfi.
- óká
Verðtryggingin verður tæpast afnumin á skömmum tíma segir ráðherra:
Krónan þarf að vera stöðug í áratug
Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, efast um lögmæti verðtryggingar og
telur mögulegt að skjóta málinu til EFTA-dómstólsins. „Kalla mætti eftir áliti
dómstólsins í málarekstri sem þegar er hafinn,“ segir hann, en telur þó um
leið vænlegra að finna lausn á pólitískum vettvangi. Gísli sat fyrir svörum á
opnum fundi viðskiptanefndar í gær, ásamt fulltrúum Hagsmunasamtaka
heimilanna. Friðrik Ó. Friðriksson, hjá Hagsmunasamtökunum, sagði að í
stað þess að spyrja hvað kostaði að afnema verðtrygginguna, ætti að spyrja
hvað kostaði að gera það ekki. „Ekki fyrr en verðtrygging er aflögð verða
sameiginlegir hagsmunir allra að halda aftur af verðbólgu,“ sagði hann.
Málið til EFTA?
KYNNIR AÐGERÐIR Olli Rehn, fram-
kvæmdastjóri efnahags- og gjaldeyris-
mála innan Evrópusambandsins, kynnti
nýjan neyðarsjóð á fundi með fjölmiðla-
fólki í Brussel í Belgíu í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP