Fréttablaðið - 11.05.2010, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 11.05.2010, Blaðsíða 14
14 11. maí 2010 ÞRIÐJUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is Kvikmynda- gerð Björn Brynjúlfur Björnsson kvikmynda- gerðarmaður HALLDÓR Kvikmyndir eru eitt öflugasta form landkynningar og hafa veruleg áhrif á straum ferðamanna um allan heim. Landkynning eins og nú á að ráðast í fyrir 700 milljónir króna er markaðs- átak þar sem greitt er fyrir að koma upplýsingum til fólks í gegnum auglýs- ingar og önnur markaðstæki. Vandinn er sá að fólkið sem á að fá skilaboðin er eðlilega ekki alltaf áhugasamt eða mót- tækilegt fyrir áreitinu. Þegar þetta fólk hins vegar horfir á kvikmyndir eða sjónvarpsefni hefur það í flestum tilfellum sjálft greitt fyrir eða lagt eitthvað á sig til að geta horft á myndina og er því bæði móttækilegt og áhugasamt. Áhrif kvikmynda á ferðamenn til Íslands hafa því miður ekki verið rann- sökuð en nokkur þekkt dæmi mætti nefna. Þegar sjónvarpsþættirnir um Nonna og Manna voru sýndir í þýskumæl- andi hluta Evrópu jókst fjöldi ferðamanna frá Þýskalandi til Íslands árið eftir um 16%, um 24% frá Austurríki og um 48% frá Sviss. Þegar Börn náttúrunnar var sýnd í bíóhúsum og sjónvarpi í Japan sáu um 60 milljónir manna myndina. Sumarið eftir komu 27,8% fleiri ferðamenn frá Japan til Íslands en árið á undan. Samkvæmt rannsóknum koma 18% allra ferðamanna til Írlands beinlínis vegna kvikmynda. Í Danmörku er þessi tala 12% samkvæmt þarlendum rann- sóknum. Ef við gefum okkur að 10% ferðamanna til Íslands komi vegna kvikmynda eru gjaldeyristekjur af þeim 15,5 milljarðar króna. Ný skýrsla um fjármögnun íslenskra kvikmynda leiðir í ljós að ríkissjóður fær, í gegnum skattkerfið, endurgreidda alla fjárfestingu sína í kvikmyndum og gott betur. Hin jákvæðu áhrif kvikmynda á ferða- þjónustuna eru því aukaafurð sem ekki kostar samfélagið neitt. Því er enn óskilj- anlegri sú stefna núverandi ríkisstjórn- ar að skera framlög til kvikmyndasjóða niður langt umfram það sem gert er í nokkurri annarri grein. Helst má líkja þessu við að kaupa sér góðan hlaupaskó á annan fótinn – en skjóta sig í hinn. Kvikmyndagerð og ferðaþjónusta Flugtímabil: 4. maí –20. júní Bókunartímabil: 4.–11. maí Afsláttarkóði: IEX0502 með ánægju Allar nánari upplýsingar um afsláttinn á www.icelandexpress.is Bókaðu núna! Síðasti bókuna rdagur í dag! 10.000 kr. afsláttur Sumargjöf Áhyggjur af réttarríkinu Jakob Frímann Magnússon tónlist- armaður skrifaði grein í Fréttablaðið um helgina, þar sem hann lýsti andúð sinni á handtöku tveggja fyrrverandi bankastjóra Kaupþings. Jakob átaldi sérstakan saksóknara fyrir að láta stjórnast af almenningsálitinu. Hann segir ótækt að setja mennina í gæslu- varðhald áður en mál þeirra séu krufin til mergjar og dregur í efa að það stafi af sérstökum rannsóknarhagsmunum. Í framhaldinu fullyrðir hann að sér- stakur saksóknari sé beinlínis að brjóta lög og dómsmálaráðherra eigi að víkja honum úr embætti fyrir þessi vinnubrögð. Sjálft réttarríkið sé í húfi. Að skjóta fyrst og spyrja svo Brýningar um að menn skulu teljast saklausir uns sekt er sönnuð eru auðvitað góðra gjalda verðar. En athygli vekur að í sömu grein og Jakob Frímann ásakar sérstakan saksóknara um að skjóta fyrst og spyrja svo, gerir hann það nákvæmlega sama sjálfur. Dómstóll JFM Jakob Frímann var ekki viðstaddur skýrslu- tökuna áður en Hreiðar Már Sigurðs- son var handtek- inn og veit ekkert um það hvort þar hafi eitthvað komið fram sem réttlætir gæsluvarðhaldið. Engu síður telur hann sig þess umkominn að segja sérstakan saksóknara brjóta lög og kalla eftir brottrekstri hans. Af hverju bíður Jakob Frímann ekki eftir úrskurði dómstóla um þetta mál áður en hann skellir fram svo alvarleg- um ávirðingum, fyrst honum er svona annt um leikreglur réttarríkisins? Er dómstóll Jak- obs Frímanns eitthvað betri en dómstóll götunnar? bergsteinn@frettabladid.isP ólitíkin sýnir á sér ýmsar sínar verstu hliðar í umræðum um almennt skynsamleg og gagnleg áform um samein- ingu ráðuneyta og fækkun ráðherra, sem kveðið er á um í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Samfylkingin vill keyra málið áfram og sameina ráðu- neytin sem fyrst. Samfylkingarmenn geta meðal annars vísað til nýrrar skýrslu starfshóps forsætisráðuneytisins, sem gert hefur tillögur um viðbrögð stjórnsýslunnar við skýrslu rannsóknarnefnd- ar Alþingis. Starfshópurinn telur að fækkun ráðuneyta myndi ein- falda samstarfið í ríkisstjórn, styrkja forystu stjórnarinnar og bæta möguleika á fagmennsku í stjórnarráðinu með stærri einingum. Starfshópurinn hvetur hins vegar líka til þess að vandað sé til verka og fram fari fagleg greining á kostum og göllum: „Slíkar skipulagsbreytingar þarfnast ítarlegs og ígrundaðs undirbúnings og samráðs við þá sem hagsmuna eiga að gæta, s.s. starfsmenn ráðuneyta.“ Með öðrum orðum kann að vera ástæða til að flýta sér ekki um of. Innan vinstri grænna virðast ýmsir misskilja málið, kannski vilj- andi. Ásmundur Einar Daðason þingmaður hélt því til dæmis fram í fréttum að í hugmyndunum um sameiningu sjávarútvegs-, land- búnaðar- og iðnaðarráðuneytis í eitt atvinnuvegaráðuneyti fælist aðför að Jóni Bjarnasyni ráðherra; kasta ætti út eina ráðherranum sem hefði greitt atkvæði gegn því að Ísland sækti um aðild að ESB. Ekki mætti undir nokkrum kringumstæðum veikja stjórnsýsluna í sjávarútvegs- og landbúnaðarmálum í aðildarviðræðunum við ESB sem færu í hönd. Í þessum málflutningi virðist gleymast að mörg ár eru síðan byrjað var að ræða hugmyndir um eitt atvinnuvegaráðuneyti. Þær umræður hófust löngu áður en Ísland sótti um aðild að ESB og löngu áður en nokkrum manni datt í hug að Jón Bjarnason gæti orðið ráðherra. Og markmiðið er að styrkja stjórnsýsluna, ekki veikja hana. Hitt er svo annað mál að þeir, sem telja að atvinnuvegaráðu- neytin eigi að vera verðir sérhagsmuna „sinnar“ atvinnugreinar á kostnað annarra atvinnuvega eða almannahagsmuna, eru sjálfsagt mót fallnir sameiningu þeirra. Í Fréttablaðinu í dag kemur fram í máli Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, að ekkert samráð hafi verið haft við stjórnarandstöðuna um sameiningu ráðuneyta. Þó er vitað að í stjórnarandstöðuflokkunum eru margir, sem styðja slíkar hugmynd- ir. Almennt talað er ekki æskilegt að í hvert sinn, sem ný ríkisstjórn sezt að völdum, sé farið að hræra í skipulagi stjórnarráðsins. Um slíkar breytingar þarf að ríkja sem víðtækust pólitísk samstaða. Í skýrslu starfshóps forsætisráðuneytisins er einmitt hvatt til þess að leitað sé leiða til að stuðla að því að efla svokölluð sam- stöðustjórnmál, þar sem stjórnarandstaðan kæmi einnig að töku ákvarðana. Í skýrslunni er fjöldi annarra tillagna um breytingar, sem gera þarf á stjórnsýslunni til að bæta úr þeim ágöllum sem komu svo skýrt fram í hruninu. Það má alls ekki leyfa umræðum um þessar mörgu og góðu tillög- ur að snúast upp í karp um hagsmuni einstakra flokka, pólitíkusa, atvinnugreina eða hagsmunasamtaka. Þá hafa stjórnmálamennirnir lítið lært. Umræður um sameiningu ráðuneyta mega ekki snúast upp í karp og hagsmunapot. Lítið lært? Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.