Fréttablaðið - 11.05.2010, Side 21

Fréttablaðið - 11.05.2010, Side 21
3 GÆLUDÝRHVATASTAÐIR er einangrunarstöð gæludýra í Hrísey og hóf starfsemi í janúar 2008. Þar dvelja gæludýr í 28 daga frá komunni til landsins. 115 þúsund krónur kostar fyrir kött en frá 150 til 200 krónur fyrir hund. www.hvatastadir.is Dýr sem setið hefur eitt að athygl- inni finnur fyrir breytingu þegar barn kemur inn á heimilið. Kett- ir halda sig oftar frá hinu óþekkta en hundar eru forvitnir, að sögn Hönnu Maríu Arnórsdóttur dýra- læknis og hún ráðleggur fólki að undirbúa hunda minnst tveimur mánuðum fyrir komu barnsins. „Ef umgengni við hundinn á að breytast, til dæmis ef hann má ekki lengur koma upp í rúm eða vera inni í svefnherbergi, uppi í sófum eða annað, þarf að byrja á að venja hann af því þar sem lítill tími verður til þess eftir að barnið er komið,“ útskýrir Hanna María en hún segir álag á hundinn fylgja því ef hegðunarreglur breytast skyndilega. Hún segir einnig gott ráð að kynna hundinum lyktina af barninu með því að leggja sokk eða samfellu af barninu í bæli hunds- ins. „Lyktin verður áhugaverð og hundurinn þekkir hana þá þegar barnið kemur heim.“ Hanna María segir flesta hunda taka nýju barni sem einu af fjöl- skyldunni og vilji passa það held- ur en hitt. Hafa þurfi þó í huga að grátur og skrækir í barninu geta gert hundinn órólegan, eins þegar hann sér foreldrana stökkva til við þessi sömu hljóð. Hann gæti jafn- vel litið á barnið sem bráð. Því sé mikilvægt að halda andrúmsloft- inu afslöppuðu og skilja barn og hund aldrei eftir ein saman í her- bergi. „Það er sama hversu ljúfan þú telur hundinn vera, það er aldrei hægt að vita hvernig hann bregst við,“ segir Hanna María. „Þegar barnið fer að skríða verður hund- urinn fyrir enn meira áreiti þar sem barnið þekkir ekki mörkin. Hundurinn reynir að víkja eins og hann getur en ef hann getur ekkert gert lætur hann vita á ein- hvern hátt. Því verður að hindra að slíkar aðstæður komi upp.“ Einn- ig er ekki ráðlegt að gefa hundin- um skipanir með látum ef hann á til dæmis að yfirgefa herbergi. Hamagangur vekur bara enn meiri áhuga hjá hundinum. Spurð um hreinlæti kringum nýfætt barn segir Hanna María rannsóknir sýna að börn sem alast upp í kringum dýr verði síður veik. Í raun sé mannfólkið sem komi í heimsókn hættulegra því það beri með sér smitandi bakteríur. Ekki skuli þó leyfa dýrum að sleikja andlit ungbarna og ormahreinsa þurfi dýrin tvisvar til fjórum sinnum á ári en ormasýking getur verið alvarleg ungbörnum. heida@frettabladid.is Dýrin þarf að venja við Líf allra í fjölskyldunni tekur stakkaskiptum þegar nýr einstaklingur kemur í heiminn. Gæludýrin eru þar engin undantekning og þarf að undirbúa þau vel fyrir komu ungabarnsins. Hanna María Arnórsdóttir dýralæknir segir nauðsynlegt að ormahreinsa ketti og hunda reglulega þar sem ungbörn eru á heimil- inu. Í heimsókn var hundurinn Simbi með eiganda sínum Kristínu Grétarsdóttur þegar ljósmyndara bar að garði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Ég lifi varla lengur en fimmt- án ár. Mér líður illa án þín. Hugleiddu það áður en þú tekur mig að þér. Gefðu mér tíma og svigrúm til að skilja til hvers þú ætlast af mér. Hrós þitt og umbun er sem sól- argeisli, refsing sem þungur dómur. Reiðstu ekki sakleysi mínu, ég vil þér vel. Þú hefur þína atvinnu, átt þína vini og ánægjustundir. Ég á aðeins þig. Talaðu við mig. Enda þótt ég skilji ekki mál þitt, þá skil ég tón raddar þinnar. Augu mín og látbragð eru mín orð. Áður en þú slærð mig, bið ég þig að muna, að með beittum tönnum get ég kramið hönd þína, en ég mun aldrei beita þig ofbeldi. Ef þér finnst ég leiðinlegur vegna annríkis þíns, mundu þá að stundum líður mér illa og verð pirraður, til dæmis í sól- arhita. Annastu mig þegar ég verð gamall. Án þín er ég hjálparvana. Deildu með mér gleði þinni og sorgum. Veittu mér hlutdeild í lífi þínu, því … Ég elska þig. Bæn hundsins Reiðskólinn Vindhóll Mosfellsdal Reiðnámskeið fyrir börn og unglinga Vikulöng námskeið sem hefjast 8. júní og standa yfir í 8 vikur Kennt er allan daginn frá klukkan 9-16. Heitur matur í hádeginu Dagsetningar sem í boði eru: Farið verður vandlega yfir umhirðu hestsins ásamt almennri reiðkennslu. Leiðbeinandi er Anna Bára Ólafsdóttir Nánari upplýsingar og bókanir í síma 861-4186 www.vindholl.is „Stærsta minnsta búð landsins!“ sími: 845 3090 - www.robur.is Umboðsmenn: Reykjanesi, Ísafirði, Akureyri, Húsavík og Neskaupstað HÁGÆÐA SÆNSKT HUNDAFÓÐUR Frí heimsending á Stór-Reykjavíkursvæðinu Stöðugt fleiri velja ROBUR fyrir hundana sína. Uppistaðan í ROBUR er kjúklingur, hrísgrjón, dýrafita, kartöfluprótein, eggjaduft, steinefni, maís- og fiskimjöl og ýmiss vítamín. ROBUR inniheldur einnig fæðubótarefnið MacroGard® sem styrkir og byggir upp ofnæmiskerfi unghunda og við- heldur því hjá fullvaxta einstaklingum. ROBUR er ríkt af omega-3 og omega-6 fitusýrum sem stuðla að heilbrigðri húð og gljáandi feldi. ROBUR er glúten-frítt fóður (inniheldur ekki unnið hveiti). 8 tegundir á lager Hundakex og nammi fyrir allar stærðir hunda DÝRABÆR • Hlíðasmára 9, Smáralind og Kringlu Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is - sími 512 5473 Henný Árnadóttir henny@365.is - sími 512 5427 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is - sími 512 5447

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.