Fréttablaðið - 11.05.2010, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 11.05.2010, Blaðsíða 25
ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 2010 3landið mitt ● fréttablaðið ● Hrísey er næststærsta eyja við Ís- land og liggur í Eyjafirði. Eyjan er átta ferkílómetrar að flatar- máli, rúmlega sjö kílómetra löng og tveggja og hálfs kílómetra breið. Milli Hríseyjar og Árskógs- sands gengur ferja frá morgni til kvölds. Skemmtilegt er að heimsækja þorpið sem liggur syðst á eynni en hátt í 200 manns búa á staðn- um. Meðal þess sem boðið er upp á fyrir ferðalanga eru skoðun- arferðir um eyjuna á heyvagni aftan í dráttarvél. Eins er boðið upp á ferðir í vitann á eynni en þaðan er mikið útsýni og upplifun að vera við sólarlag. Eins er heim- sókn í Holt, hús Öldu Halldórs- dóttur, áhugaverð en þar er vísir að byggðasafni og hægt að skoða hannyrðir Öldu og gamlar ljós- myndir. Sundlaugin í þorpinu er nýlega uppgerð og þegar hungr- ið sverfur að er vinalegt að setj- ast inn á eina veitingastað staðar- ins, Brekku. Á vefsíðunni www.hrisey.net má nálgast fróðleik um eyna og það sem þar er í boði. - rat Eyjan í Eyjafirði Hrísey er algróin og láglend en hún rís hæst 110 metra yfir sjávarmáli. MYND/ANNA TRYGGVADÓTTIR ● Á FERÐ UM ÍSLAND 2010 KOMIN ÚT Ferðahand- bókin Á ferð um Ísland er komin út. Enska útgáfan Around Iceland hefur komið út samfellt í 35 ár, en íslenska útgáfan kemur nú út í tuttugasta sinn og þýska útgáfan Rund um Island í þrettánda sinn. Ritunum er dreift á helstu ferðamannastaði landsins. Í þeim er umfjöllun um hvern lands- hluta, þjónustulistar sem eru uppfærðir árlega ásamt kortum með gististöðum, tjaldsvæðum og sundlaugum. Sambærileg kort eru einnig frá helstu þéttbýlis- stöðum landsins. Þá er einnig að finna hálendiskafla með hálendis- korti og þjónustulistum í bókinni. Fremst í bókinni er ýmis fróðleikur um land og þjóð, það helsta sem er á döfinni í sumar, afþreyingu og margt fleira. Útgáfufélagið Heimur gefur bókina út. Bækurnar má sjá í vef- útgáfu á www.heimur.is/world. Hjónin Einar Guðmundsson og Bríet Böðvarsdóttir, frá Seftjörn á Barðaströnd, fara í árlegar göngur með börnum sínum átta, tengdabörnum og barnabörnum. Oddrún Lilja Birgisdóttir er gift inn í stóra og myndarlega fjöl- skyldu sem tók upp á því fyrir tveimur árum að fara í skipulagð- ar göngur um landið. Gönguhóp- urinn telur um þrjátíu manns á öllum aldri og var byrjað á því að ganga Laugaveginn. „Tengdaforeldrar mínir, þau Einar Guðmundsson og Bríet Böðvarsdóttir, bændur á Sef tjörn á Barðaströnd, eiga átta börn og fylgja þeim makar og börn. Í fyrstu ferðinni byrjuðum við á því að gista í skála í Landmanna- laugum og höfðu tengdaforeldrar mínir orð á því hversu stórkostleg upplifun það væri að hafa okkur þarna öll í einu fleti. Ferðin tók fjóra daga og var gist í skálum við Hrafntinnusker, Álftavatn og Emstrur á leiðinni. Yngsti ferðalangurinn var tveggja ára en ættarhöfuðið sjötíu og sjö. Yngstu börnin voru í trússi en þau sem gengu voru allt niður í sjö ára.“ Lilja segir ferðina hafa gengið vonum framar enda hafi skipulagið verið eins og best verð- ur á kosið. „Það voru tvö systkini og makar í skipulagsnefnd en þau sáu um matarinnkaup, að panta skála og setja upp dagskrá fyrir hvern dag. Þegar við komum inn í skál- ana var fólki svo skipt í hópa og úthlutað verkefnum. Sumir voru í matreiðsluhópi en aðrir í skemmti- nefnd svo dæmi séu tekin og lagð- ist skipulagið afar vel í mannskap- inn en það er mikilvægur þáttur þegar svona margir eru á ferð. Tengdapabbi hafði hins vegar allt- af umsjón með morgunmatnum og sá til þess að allir fengu hafra- graut og lýsi.“ Ferðin gafst svo vel að þegar var ákveðið að fara í aðra að ári og þá gengum við Víknaslóðir úr Borgarfirði eystri yfir í Breiðu- vík, Húsavík og Loðmundarfjörð. Eftir þá ferð ákváðum við nokkur að fara í aðeins erfiðari ferð að ári og ætla sex systkinanna og fimm makar norður á Strandir í sumar. Við byrjum í Aðalvík og endum við Hornbjargsvita og ætlum að vera í tjaldi og með allt á bakinu að þessu sinni. Stórfjölskylduferð- in verður þó á sínum stað, þótt hún verði með aðeins öðru sniði, en við ætlum að setja upp tjaldbúðir við sveitabæ tengdaforeldra minna en ganga svo Barðaströndina bæði fjöll og strönd í dagsferðum.“ Lilja á von á því að fjölskyldu- ferðirnar verði árlegar héðan í frá enda ánægja fjölskyldunnar með þær ótvíræð. „Fólk kynnist á annan hátt í svona ferðum og verður miklu nánara.“ - ve Ferðast með stórfjölskyldunni Seftjarnarfjölskyldan í Þórsmörk eftir vel heppnaða Laugavegsgöngu. MYND/ÚR EINKASAFNI Ferðamenn að skoða Strokk leika listir sínar. ● HESTAFERÐIR Í SKAGAFIRÐI Skagfirðingar eru þekktir fyrir sína gæðinga og þeir eiga líka þæga og rólega hesta fyrir byrjendur. Ferðamenn geta því auðveld- lega fundið þar reiðskjóta við hæfi og hæfi- lega langar hestaferðir. Hægt er að leigja sér hesta, fara í eins til fjögurra tíma hestaferð- ir eða margra daga skipulagðar hálendisferðir og allt þar á milli. Skagafjörðurinn er grasi gróinn og fullur af góðum reiðleiðum og sögustöðum sem gaman er að stoppa á, auk þess sem stutt er í róandi afdalakyrrð. Víða er boðið upp á grunn- reiðkennslu og leiðsögn um landið. Af hestaleigufyrirtækjum má nefna Topp- hesta í grennd við Sauðárkrók, Hestasport − Ævintýraferðir í nágrenni Varmahlíðar, Flugu- mýri og Lýtingsstaði.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.