Fréttablaðið - 11.05.2010, Qupperneq 34
22 11. maí 2010 ÞRIÐJUDAGUR
menning@frettabladid.is
Leikhús ★★★★
Villidýr/Pólitík
eftir Ricky Gervais
Þýtt og staðfært af flytjendum
Sviðsetning: Gunnar B. Guð-
mundsson
Fyrirbærið Hafnarfjarðarbrand-
arar öðlaðist nýja merkingu þegar
hópur skólafélaga þar sunnan að
tók að láta á sér bera í opinberu
lífi. Þar fóru fremstir í flokki árs-
hátíðarskemmtikrafturinn Steinn
Ármann, þéttur og vanmetinn leik-
ari, og Davíð Þór Jónsson, renglu-
legur lífskúnstner sem markaði sér
skákir á ýmsum sviðum: textahöf-
undur, eilífur guðfræðistúdent og
fullorðin sál frá unga aldri. Saman
eru þeir þessa dagana að flytja
uppistand þýtt og umskorið frá
enska grínistanum Ricky Gervais.
Gervais er merkilegt fyrirbæri, síð-
sprottinn arftaki þeirrar kynslóð-
ar breskra grínista sem nýlega var
sýnt fram á að hafði lagt til örfá
prósent af skets um í Heilsubæl-
ið. Gervais stikar jaðarinn á hinu
boðlega í sýningum sínum, fetar
þröngt bil milli fordóma og ofboðs.
Hann er trúr uppruna sínum, breskt
samfélag, breskir og breyskir siðir
eru hans akur. Og nú hafa menn
talið það henta íslenskum mark-
aðsaðstæðum að flytja tvær af
þekktum efnisskrám hans yfir á
íslensku. Uppistand er þetta ekki
lengur, heldur ekki eftirherma, því
textinn sem gera má ráð fyrir að
Davíð hafi umsnúið og aðlagað er
býsna íslenskur og alþjóðlegur um
leið. Stór hluti af þessum húmor er
sprottinn þegar menn stinga hausn-
um í klofið á sér: blautt er það, og
talið allt klámfengið. Ungum hóp
áhorfenda á föstudagskvöld-
ið var vel skemmt, alla vega
strákunum, því mikið
var hlegið og dátt.
Hvort stelpunum
var eins skemmt
veit ég ekki:
þetta er mikill
tittlingahúm-
or, gaura-
grín.
Steinn
og Davíð
eru báðir
fyndnir
menn, Davíð
móralskur,
Steinn meira
absúrd,
báðir orðn-
i r þau l -
vanir að
láta brandarann falla á réttum
stað, þekkja andrúmið, kunna list-
ina. Þeir þurfa ekki að láta hátt
og mikið, spaugið er sett fram af
öryggi, fumlaust, og leikið á sal-
inn. Mér hefur alltaf þótt gaman
að sjá þá segja brandara. Þeir eru
fyndnir strákar. Víst hefði ég kosið
að þeir settu saman sitt eigið efni,
byggðu sitt eigið gervi í stað Gerv-
ais. Ég efast ekki um að þeir gætu
það vel ef einhver tryði á þá í slíkt
uppistand. Það mátti líka heyra á
íslenskun efnis Bretans að þeir voru
óhræddir að takast á við ósvífni um
þekktar íslenskar persónur, Hann-
es Hólmstein og Jónínu Ben. Það
var ekki græskulaust grín heldur
grimmt.
Þeir eru báðir á sviðinu í senn í
tvískiptu prógrammi en annar held-
ur sig til hlés meðan hinn blaðrar.
Þeir eru mækaðir upp og það er löst-
ur. Á föstudag lenti Steinn í vand-
ræðum með mækinn sinn og hvað
gerðist? Hann varð skýrari, tók
betur um orðin, vandaði sig meira
við flutninginn. Grínistinn þarf að
tala beint og skýrt við áhorfendur.
Það er partur af prógramminu, að
kunna að hitta milli hlátranna, láta
heyra í sér og verða að treysta á að
talið heyrist af flytjandanum sjálf-
um. Í svo litlum sal sem Litla svið
Borgarleikhúss er á ekki að nota
mæk.
Þegar litið var á heimasíðu Borg-
arleikhúss kom í ljós að það kost-
ar sitt að hlæja í tvo tíma; nýlegar
fréttir um endurbyggingu Austur-
bæjarbíós benda til að þar skap-
ist nýr vettvangur fyrir grín sem
þetta og vonandi finna þeir Davíð
og Steinn hjá sér löngun til að halda
áfram á þessu sviði, gera
sitt eigið efni um okkar
eigið umhverfi, okkar
eigin Hafnarfjarðar-
brandara.
Páll Baldvin Baldvinsson
Niðurstaða: Klámfengið
og gróft gaman flutt af
mikilli list.
Ármann og Þór þora
Kvennakórinn Vox feminae heldur
tónleika í Íslensku óperunni á morg-
un kl. 20 og 13. maí kl. 16. Þar flytur
Vox feminae, ásamt Sigrúnu Hjálm-
týsdóttur, einsöngvurum úr röðum
kórfélaga, félögum úr Karlakórn-
um Fóstbræðrum og Stúlknakór
Reykjavíkur fjölda þekktra óperu-
kóra og aría við undirleik úrvals
hljóðfæraleikara. Undirleik ann-
ast Antonía Hevesi píanó, Elísabet
Waage harpa, Hallfríður Ólafsdótt-
ir flauta, Svavar Bernharðsdóttir
víóla og Eggert Pálsson páka.
Listrænn stjórnandi er Margrét
J. Pálmadóttir kórstjóri sem jafn-
framt hefur spunnið tónlistinni leik-
rænt og skemmtilegt ívaf. Hér er á
ferðinni söngveisla þar sem unn-
endum óperutónlistar gefst einstakt
tækifæri til að njóta hrífandi verka
eftir tónskáld á borð við Verdi, Moz-
art, Offenbach, Strauss og Wagner
í flutningi öndvegis tónlistarfólks.
Miðar fást hjá midi.is og opera.is.
Vox Feminae syngur í Óperunni
TÓNLIST Sigrún Hjálmtysdóttir treður
upp með kvennakórnum Vox feminae á
morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ath. kl. 20. í Langholtskirkju
Söngsveitin Fílharmónía flutti um
helgina Heimsljós, sálumessu eftir
Tryggva M. Baldvinsson, og verð-
ur flutningurinn endurtekinn í kvöld
klukkan 20.
> Ekki missa af
opnunartónleikum Listahátíðar
á morgun. Amadou & Mariam
frá Malí koma hingað til lands
með stóra hljómsveit og sann-
kallaða heimstónlistarstemn-
ingu sem lofuð hefur verið í
hástert og samanstendur af
rafmagnsgíturum, kúbverskum
lúðrum, egypskum ney-
flautum, sýrlenskum fiðlum,
indverskum tablas-trumbum
og margvíslegum ásláttar-
hljóðfærum frá Malí.
Rjúkandi sala er á sýningu Vesturports í Borgar-
leikhúsinu á Rómeó og Júlíu en hin rómaða
sýning frá 2002 hefur farið víða en snýr nú aftur
að þessu sinni á stóra svið Borgarleikhússins.
Þegar er uppselt á sjö sýningar og örfáir miðar
voru til í gær á sýningar 8. og 9. júní. Þegar hefur
verið bætt við aukasýningum en árskortagestir
nýttu sér margir í haust að verkið var á dagskrá
Borgarleikhússins á þessu vori. Aukasýningar
verða 13., 18., 19. og 20. júní og ættu áhugasamir
að tryggja sér miða í tíma.
Önnur sýning Vesturports í samstarfi við LR
í Borgarleikhúsi, Faust, er líka á fjölum stóra
sviðsins og eru þrjá sýningar í sölu hjá Borgar-
leikhúsinu: 20., 27. og 29. maí. Faust er svo á
leið til London næsta haust og er frumsýning þar
fyrirhuguð 1. október og verður sýnt í sex vikur
samfleytt. Sýningin verður sýnd sjö sinnum í viku-
og er því ljóst að 42 sýningar á uppsetningunni
verða í boði fyrir erlenda leikhúsgesti. Sýningin
verður hluti af afmælisdagskrá Young Vic-leik-
hússins sem fagnar 40 ára afmæli sínu í haust.
Selst vel á Rómeó og Júlíu
LEIKLIST Góð aðsókn er á Rómeó og Júlíu og hefur
verið bætt við aukasýningum. Ólafur Darri, Björn
Hlynur og Víkingur Kristjánsson í hlutverkum sínum.
MYND: SIGURÐUR JÖKULL.
Tate Modern fagnar um þessar
mundir tíu ára afmæli og er af því
tilefni efnt til hátíðarinnar No Soul
For Sale sem stendur dagana 14. til
16. maí. Þangað er boðið til þátttöku
fjölda sjálfstæðra listastofnana víðs
vegar að úr heiminum og verða full-
trúar Íslands þar félagar úr Kling &
Bang: Hekla Dögg Jónsdóttir, Sirra
Sigrún Sigurðardóttir og Ásdís Sif
Gunnardóttir.
Hekla Dögg og Sirra Sigrún setja
upp verkið Tower Of Now sem er
súla eða turn sem rís 35 m upp í
Túrbínusalnum (Turbine Hall) gerð
úr pappírsstrimlum úr posa rúll-
um. Súlan skapar rými sem verður
vettvangur síbreytilegrar mynd-
bands- og skúlptúrinnsetningar og
Ásdís Sif Gunnarsdóttir frumsýn-
ir 20 mínútna myndbandsverk sem
hún kallar You are there in close up
with your signature at the bottom of
the frame.
Alls er boðið sjötíu framsæknum
stofnunum til hátíðarinnar sem eru
sóttar um kringluna alla frá Shang-
haí to Rio de Janeiro og leggja þær
undir sig hinn rómaða sýningarsal,
Túrbínusalinn. Opnunin fellur inn
í safnanóttina í London þegar lista-
stofnanir og önnur söfn verða opin
til miðnættis, föstudags- og laugar-
dagskvöld.
Tate Modern var opnað 12. maí
2000 og hafa gestir þyrpst þangað:
45 milljónir gesta hafa sótt safnið
heim og er aðsókn þangað ein helsta
rósin í hnappagati listagyðjunnar.
Þar á Ólafur Elíasson stóran hlut
en sýning hans var mikið aðdrátt-
arafl á sínum tíma og setti sýning-
arstjórum þar mark sem síðan er
miðað við.
Kling í Tate Modern
MYNDLIST Túrbínusalurinn verður í vor
vettvangur sýningaraðila víða um lönd.
Hekla Dögg sýnir þar á vegum Kling &
Bang. MYND FRÉTTABLAÐIÐ
LEIKLIST Steinn
Ármann, þéttur og
vanmetinn leikari, er
fyndinn í gríni eftir Ricky
Gervais í Borgarleikhúsinu.
VIÐ LOKUM SKÍFUNNI LAUGAVEGI!
AFSLÁTTUR
AF ÖLLU!
ALLT Á AÐSELJAST!
LAUGAVEGUR 26Athugið! Gildir aðeins í Skífunni Laugavegi 26
Opið alla daga 12 - 18.