Fréttablaðið - 11.05.2010, Side 36

Fréttablaðið - 11.05.2010, Side 36
24 11. maí 2010 ÞRIÐJUDAGUR folk@frettabladid.is Samkvæmt skilaboðum á vefsíðu Interpol hefur bassaleikarinn Carlos D yfirgefið hljómsveitina. Carlos var án efa þekktasti með- limur hljómsveitarinnar, en hann þykir mikill töffari og náði meira að segja að skyggja á Paul Banks, söngvara og gítarleikara Interpol. „Hann hefur ákveðið að fara aðrar leiðir og setja sér ný mark- mið,“ segir á vefsíðu hljómsveit- arinnar. „Aðskilnaðurinn er óum- flýjanlegur, en við óskum honum velgengni og hamingju. Við verð- um áfram, eins og ávallt, aðdáend- ur þessa hæfileikaríka einstakl- ings.“ Carlos D kláraði nýja plötu með Interpol áður en hann hætti, en verður ekki með hljómsveitinni á tónleikaferðalagi í sumar. Ekki hefur verið tilkynnt hvenær plat- an kemur út, en ljóst er að Inter- pol hitar upp fyrir U2 á árinu sem bendir til þess að platan er vænt- anleg fyrr en síðar. Bassatöffarinn yfirgefur Interpol NÝ PLATA VÆNTANLEG Carlos D, annar frá vinstri, kláraði nýja plötu með Interpol áður en hann yfirgaf hljómsveitina. Gísli Örn Garðarsson tók sig vel út í flottum jakka- fötum á rauða dreglinum þegar stórmyndin Prince of Persia var frumsýnd í West- field-verslunarmiðstöðinni í London. Myndin sjálf fær misjafna dóma í erlendum fréttamiðlum. Þær skinu skært stjörnurnar í kvikmyndinni Prince of Persia: Sands of Time þegar myndin var frumsýnd í London á sunnudags- kvöldið. Um var að ræða eina stærstu frumsýningu í sögu Bret- lands þar sem stuðst var við gervi- hnött og athöfninni sjónvarpað beint til sex landa. Myndin sjálf fékk fremur mis- jafna dóma. Variety segir á heima- síðu sinni að Prince of Persia eigi ekki eftir að ná sömu vinsældum og aðrar myndir framleiðand- ans, Jerry Bruckheimer. „Mynd- in fullnægir fyrst og fremst þörf- um ungra drengja en talar ekki til annarra hópa og mun því ekki ná sama breiða aðdáendahópnum og til að mynda Pirates of the Caribb- ean,“ segir í dóm Variety. Þess ber að geta að ekki er lagt neitt mat á frammistöðu Gísla Arnar en þó er tekið fram að hann leiki leiðtoga leigumorðingja sem leggja allt í sölurnar til að koma prinsinum fyrir kattarnef. Hollywood Report- er segir myndina vera skemmti- lega og að hún líti vel út. Þá séu ævintýrin spennandi en hana vanti sárlega einhverja epík til að hrífa áhorfendur upp úr skónum. Engu að síður má með sanni segja að hlutverk Gísla sé eitt það stærsta í sögu íslenskrar leiklistar. Myndin verður síðan frumsýnd í kínverska kvikmyndahúsinu í Los Angeles 17. maí og þangað hefur Gísla verið boðið. Prince of Persia verður frumsýnd hér á landi 19. maí næstkomandi. freyrgigja@frettabladid.is Gísli Örn glæsilegur á rauða dreglinum í London Gísli Örn tók sig vel út á rauða dreglinum í glæsilegum jakkafötum þegar Prince Of Persia var frumsýnd í London. Hlutverk Gísla er ansi stórt í myndinni. NORDICPHOTOS/GETTY Gemma Arterton, Jerry Bruckheimer og Jake Gyllenhaal er fólkið á bak við Prince of Persia. Hún var glæsileg umgjörðin í kringum frumsýningu Prince of Persia í Westfield-verslunarmiðstöðinni. Sir Ben Kinglsley mætti að sjálfsögðu til frumsýningarinnar ásamt eiginkonu sinni, Danielu Lavender. Kingsley leikur vinnuveitanda Gísla í myndinni. Fyrrverandi andlit Iceland-matvöru- keðjunnar, Kerry Katona, var að sjálf- sögðu meðal gesta en hún hefur verið nánast stanslaust á forsíðum breskra slúðurblaða fyrir allskyns vandræði. > HAMINGJUSAMUR Leikarinn Jude Law er tek- inn aftur saman við fyrrver- andi kærustu sína, leikkon- una Siennu Miller. Þau mættu saman í sérstakan kvöldverð sem haldinn var í Hvíta hús- inu fyrir stuttu og sagðist Law vera sérstaklega hamingjusamur með Siennu. „Ég er mjög ham- ingjusamur. Hún gerir mig mjög hamingjusaman.“ Leikarinn Mickey Rourke segist hafa jafn gaman af því að leika í ódýr- um óháðum kvikmyndum og í stór- myndum, en hann fer með hlutverk illmennisins Ivans Vanko í kvik- myndinni Iron Man 2. „Sumar óháðar myndir geta orðið einum of listræn- ar, það þarf ekki alltaf að taka allt svo alvarlega. Stundum vill fólk bara setjast niður, horfa á kvikmynd og gleyma dagsins amstri.“ Rourke segir mikil þægindi fylgja því að leika í stórmyndum og þar sé stjanað við leikarana. „Þegar ég lék í The Wrestler þá var ekki einu sinni stóll fyrir mig að sitja á. Fyrsta daginn minn við tökur á Iron Man 2 spurði ég starfsmann hvort ég gæti fengið kaffibolla og hann svaraði um hæl: Hvers konar kaffi má bjóða þér?“ Rourke ber að eigin sögn litla virð- ingu fyrir leikurum í dag. „Þú þarft ekki einu sinni að vera hæfileikarík- ur til að verða stórstjarna. Ég ber litla virðingu fyrir flestum leikurum í dag og einu sinni lét ég þá vita af því. En núna þá þegi ég frekar og klappa hundunum mínum.“ Þegir og klappar hundunum sínum VIRÐINGARLEYSI Mickey Rourke ber ekki mikla virð- ingu fyrir leikarastéttinni í dag. NORDICPHOTOS/GETTY HLÍÐARSMÁRI 14· KÓPAVOGUR · OPIÐ 12-18 AÐEINS FIMM VERÐ 500,- 1.000,- 2.000,- 3.000,- 4.000,- ÚTSÖLUMARKAÐUR HLÍÐARSMÁRA 14 OPIÐ ALLA DAGA 12:00-18:00 MIKIÐ ÚRVAL Í STÆRÐ XXL LOKAVIKA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.