Fréttablaðið - 11.05.2010, Page 46

Fréttablaðið - 11.05.2010, Page 46
34 11. maí 2010 ÞRIÐJUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 LÆRDÓMUR VIKUNNAR LÁRÉTT 2. bæta við, 6. í röð, 8. dýrahljóð, 9. bergmála, 11. tveir eins, 12. gljáun, 14. gáleysi, 16. sjó, 17. mjög, 18. hætta, 20. frá, 21. málmhúða. LÓÐRÉTT 1. könnun, 3. tveir eins, 4. hvel, 5. örn, 7. smáræði, 10. temja, 13. dvelja, 15. fugl, 16. aska, 19. ónefndur. LAUSN LÁRÉTT: 2. auka, 6. rs, 8. urr, 9. óma, 11. ii, 12. fágun, 14. vangá, 16. sæ, 17. all, 18. ógn, 20. af, 21. tina. LÓÐRÉTT: 1. próf, 3. uu, 4. kringla, 5. ari, 7. smávægi, 10. aga, 13. una, 15. álft, 16. sót, 19. nn. „Ég er til að mynda að hlusta á Eyrbyggju sem Þorsteinn frá Hamri les. Mér finnst oft þægi- legt að hafa talað mál þótt það gerist stundum að ég dotti undir því. Ef útvarpið verður fyrir valinu þá er það Rás 1, útvarp hins hugsandi manns. Og þar eru ryþmi og djass mín deild. Jón Jóel Einarsson, eigandi ferðaþjónust- unnar Út og vestur. Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 9-17. ...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn... Blaðberinn bíður þín Skoðanakannanir benda til þess að Besti flokkur Jóns Gnarrs nái fjórum mönnum inn í borgar- stjórn Reykjavíkur. Þetta myndi þýða að Jón Gnarr, einn eftirsótt- asti skemmtikraftur landsins, yrði í fullu starfi við að gera borgina að betri stað fyrir borgarbúa. Þetta gæti einnig þýtt að sjónvarpsþátt- ur, leiksýning og leikverkaritun yrðu í uppnámi. Sjálfur segir Jón Gnarr borgarmálin vera í forgangi, allt annað fái að sitja á hakanum. Magnús Geir Þórðarson, leikhús- stjóri Borgarleikhússins, vildi ekki tjá sig í samtali við Fréttablaðið hvort Jón Gnarr myndi hætta sem hirðskáld Borgarleikhússins ef hann næði kjöri sem borgarfulltrúi í komandi sveitarstjórnarkosning- um. Hann vildi heldur ekki segja neitt til um hvort honum þætti það eðlilegt að Jón Gnarr sæti sem full- trúi Besta flokksins í borgarstjórn og væri um leið á launum hjá Borg- arleikhúsinu sem hirðskáld. „Við munum bara skoða þessi mál af yfirvegun þegar þar að kemur. Hún er skrítin þessi pólitík og Jón er búinn að vera á fullu síðan hann byrjaði hjá okkur. Ef einhver breyting verður á hans högum þá ræðum við það náttúrulega,“ segir Magnús Geir sem taldi ekki tíma- bært að ræða þessi mál. Jón Gnarr sjálfur sagði að hann myndi ræða þetta við Magnús Geir þegar þar að kæmi. „Þetta eru bara nokkr- ir tölvupóstar og einhver símtöl,“ segir Jón sem var ekki reiðubúinn að tjá sig um hvort hann myndi láta af starfi sínu sem hirðskáld Borg- arleikhússins, nái hann kjöri. Ragnar Bragason leikstjóri er annar sem verður að bíða og sjá hvað kemur upp úr kjörkössun- um í lok maí. Ráðgert er að Vakt- ar-hópurinn komi saman í ágúst til að leggja drög að nýrri seríu sem er algjörlega ótengd Ólafi Ragnari, Georg og Daníel og á að gerast á geðveikrahæli. Ragnar segist bara ætla að taka sér stöðu fyrir utan skrifstofu Jóns í Ráðhúsi Reykja- víkur ef hann kemst í borgarstjórn. „Ætlaði hann ekki annars að hygla vinum sínum? Var það ekki á stefnuskránni?“ spyr Ragnar sem segist ætla að kjósa Jón og Besta flokkinn í næstu kosningum, jafn- vel þótt það þýði smá vesen fyrir næstu verkefni. „Ef Jón verður kosinn þá verðum við bara að bíta í það súra eplið og leysa okkar mál á einhvern annan hátt.“ Ísleifur B. Þórhallsson, sem hyggst setja upp sýningu með grín- leikhópnum Fóstbræðrum, segir það vissulega hafa verið vitað að listamennirnir í hópnum væru með fullt af öðrum verkefnum í gangi. „Við munum stilla okkur af í sam- ræmi við þetta, við vissum auðvitað að hann væri á leiðinni í framboð en sáum þessa velgengni kannski ekki fyrir,“ segir Ísleifur en bætir því við að Fóstbræður, hvernig sem aðkoma Jóns Gnarrs verður, verði frumsýnd í mars 2011. freyrgigja@frettabladid.is RAGNAR BRAGASON: BÍÐ BARA FYRIR UTAN SKRIFSTOFU JÓNS Grínframboð Jóns Gnarrs kemur vinum hans misvel Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi hefur náð samningum við bandaríska stórleik- arann Robert De Niro um að leika í spennumynd- inni The Killer Elite. Þar með eru línur að skýr- ast í þessari ævisögulegu kvikmynd sem byggð er á lífi og starfi sérsveitarmannsins Sir Ranulph Fiennes. Sigurjón segir nafn De Niro góða viðbót við leikarahóp myndarinnar. „Þetta gefur henni náttúrulega byr undir báða vængi og þetta verð- ur stærsta kynningarmyndin á Cannes, allavega verður þetta sú kvikmynd sem er með stærstu stjörnunum,“ segir Sigurjón en tökur eru að hefj- ast í Ástralíu. Sigurjón, sem hefur unnið með mörgum af stærstu kvikmyndastjörnum heims, viðurkennir að hann sé bæði sæll og glaður með að hafa náð De Niro. „Þetta verkefni lítur vel út. Þótt leikstjórinn, Gary McKendry, hafi ekki áður gert svona stóra mynd þá hefur handritið spurst vel út og umboðsmenn hafa látið sína skjólstæð- inga vita af því. Það segir sitt ef De Niro ákveður að leika í myndinni,“ segir Sigurjón. Varla þarf að hafa mörg orð um feril De Niro. Eftir hann liggja margar af frægustu persónum kvikmyndasögunnar, svo sem Travic Bickle úr Taxi Driver og Vito Corleone úr Godfather 2. Auk De Niro leika þeir Jason Statham og Clive Owen í myndinni auk Dominics Purcell, þekktastur fyrir leik sinn í Prison Break. Eins og áður segir er myndin byggð á ævisögu Sir Ranulphs Fiennes sem kom út árið 1993 og olli miklu fjaðrafoki á sínum tíma. Enda upplýsti Fiennes þá um tilveru SAS-sérsveitanna sem bresk stjórnvöld höfðu þvertekið fyrir að væru til. - fgg Sigurjón fær De Niro í næstu mynd STÓRLAX Robert De Niro er einn frægasti kvikmynda- leikari sögunnar og hann mun leika eitt aðalhlutverk- anna í næstu kvikmynd Sigurjóns Sighvatssonar. „Ég hlýt að vera svona skelfilega erfiður í samstarfi, andfúll og geð- stirður á morgnana,“ segir Sig- valdi Kaldalóns, dagskrárstjóri útvarpsstöðvarinnar FM 957 og eini liðsmaður morgunþáttar- ins vinsæla Zúúber. Sigga Lund og Gassi Ólafsson, samstarfsfólk Svala til sex ára, hafa bæði til- kynnt að þau séu hætt störfum og ætli að snúa sér að einhverju öðru, Sigga nú síðast í gær. Sigvaldi, oftast kallaður Svali, upplýsir að þau hafi áttað sig á því að þátturinn Zúúber væri búinn að syngja sitt síðasta og því hafi verið ákveðið að hætta með þáttinn. Sjálf- ur hyggst hann þó halda áfram að vakna með Íslendingum í útvarp- inu. Og nú í nýjum þætti sem mun að öllum líkindum nefnast Svali og félagar og hefst 17. maí. Svali hefur þegar fengið til liðs við sig þau Erp Eyvindar- son og Höllu Vilhjálmsdóttur sem verða með vikuleg innslög í formi hrekkja eða annarra skemmtileg- heita. Þá mun Jóhanna Vigfús- dóttir einnig verða fastur gestur í þessum nýja morgunþætti en með Svala í hljóðstofu verður Kristj- án Ingi Gunnarsson. Kristján er ekki ókunnur fjölmiðlaumhverf- inu því hann var einn liðsmanna sjónvarpsþáttarins Ópsins ásamt þeim Ragnhildi Steinunni og Þóru Tómasdóttur. Í þennan her eiga síðan eftir að bætast fleiri. „Já, er ekki betra að hafa sem flesta í kringum sig þannig að áfallið verði minna þegar einhver hættir,“ segir Svali og hlær. - fgg Svali safnar liði í nýjan morgunþátt EINN EFTIR Svali situr einn eftir í hljóðverinu eftir að þau Gassi og Sigga Lund hættu í morgunþættinum Zúúber. Hann hefur fengið Erp Eyvindarson og Höllu Vilhjálms- dóttur til að vera með sér í nýjum morgunþætti. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Skítamórall brá undir sig betri fætinum fyrir skemmstu og spilaði á litlum stað í Kaupmanna- höfn sem heitir því skemmtilega nafni Skarv. Tónleikarnir gengu ágæt- lega að sögn Arngríms Fannars Haraldssonar, gítarleikara sveitarinnar, þótt hann viðurkenni að vissulega hefðu fleiri mátt berja sveitina augum. Þar kunna að spila inn í mistök vertsins á Skarv. Skítamóralsmenn sendu nefnilega mynd af sveitinni sem hægt væri að nota á auglýsingu en staðarhaldaranum fannst upplausn- in ekki vera nógu mikil. Þannig að hann gúgglaði hljómsveitina í þeirri von að finna betri mynd. Auðvitað er ekki hægt að gera þá kröfu til dansks tónleikahaldara að hann þekki muninn á Skítamóral og Á móti sól. Sem kom auðvit- að á daginn að hann gerði ekki. Því gúgglið sveik Danann ansi laglega og á auglýsingu fyrir tónleika Skítamórals í Kaupmannahöfn var því mynd af Magna Ásgeirssyni og félögum undir fyrirsögninni „Skíta- mórall-Live“. Svo skemmtilega vildi til að eldheitur aðdáandi Á móti sól sá umrædda auglýsingu, sendi til söngvarans Magna sem hafði víst ansi gaman af. Tónlistarkonan Hafdís Huld fær á baukinn í nýjasta tölublaði Reykjavík Grapevine, sem kom út fyrir helgi. Gagnrýnandinn Sindri Eldon tekur fyrir plötu hennar, Synchronised Swimmers, og sparar ekki stóru orðin. Hann segir plötuna svo heilalausa að stemningin sé eins og hjá Brady Bunch-fjölskyldunni, væru meðlimir hennar á prósaki og að hún sé gagnslaus eins og tilraunir til að lækna hátíðaþunglyndi. Sindri klykkir svo út með því að segja að ef þunglyndi hafi ekki þegar drepið hlustandann myndi platan sjá um það með ömurlegum forheimskandi tilburðum … - fgg, afb FRÉTTIR AF FÓLKI VEISTU SVARIÐ Svör við spurningum á síðu 8 1 Á Providence-golfvellinum í Flórída í Bandaríkjunum. 2 Carlo Ancelotti. 3 Valdimar Svavarsson. SMÁ UPPNÁM Velgengni Besta flokksins hefur komið mörgum á óvart. En hún gæti líka sett strik í reikninginn hjá nokkrum verkefnum leikarans. Sjónvarpsþáttur sem Ragnar Bragason ætlaði að gera með Jóni gæti verið í smá uppnámi líkt og Fóstbræðrasýn- ing Ísleifs B. Þórhallssonar. Þá vildi Magnús Geir Þórðarson, leikhús- stjóri Borgarleikhússins, ekki tjá sig hvort Jón yrði áfram sem hirðskáld leikhússins ef svo færi að Jón kæmist inn í borgarstjórn. Jón vildi heldur ekki taka af öll tvímæli þar um.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.