Fréttablaðið - 20.05.2010, Blaðsíða 6
6 20. maí 2010 FIMMTUDAGUR
ALÞINGI Það mundi kosta 229 millj-
arða króna að lækka höfuðstól verð-
tryggðra lána heimila í íslenskum
krónum um 20 prósent.
Þetta kemur fram í skriflegu
svari Gylfa Magnússonar, efna-
hags- og viðskiptaráðherra, við
fyrirspurn Sigríðar Ingibjargar
Ingadóttur, þingmanns Samfylk-
ingarinnar.
Hún spurði um kostnað Íbúða-
lánasjóðs, Lánasjóðs íslenskra
námsmanna, lífeyrissjóða og ann-
arra aðila, sem veita verðtryggð
lán í íslenskum krónum til heim-
ila, ef ákveðið yrði að lækka höfuð-
stól lánanna um 10 prósent annars
vegar en 20 prósent hins vegar.
Greiðslubyrði 40 ára meðalláns
hjá Íbúðalánasjóði mundi lækka úr
55.000 krónum á mánuði í 49.600
krónur við tíu prósenta lækkun
höfuðstóls en í 44.000 krónur við
20 prósenta lækkun, segir í svari
ráðherrans. Er þá miðað við láns-
tíma og lánskjör að meðaltali.
Greiðslubyrði 20 milljóna króna
láns á sömu kjörum færi úr 91.000
krónum á mánuði í 82.000 krónur
við tíu prósenta lækkun höfuðstóls
en í 73.000 krónur við tuttugu pró-
senta lækkun. Í öllum dæmum er
miðað við 40 ára lánstíma og 4,61
prósent vexti.
Fram kemur í svarinu að lækk-
un höfuðstóls námslána hefði ekki
áhrif á greiðslubyrði til skemmri
tíma, þar sem afborganir eru tekju-
tengdar. Áhrifin kæmu fram í því
hve langan tíma tekur að greiða lán
niður og mundi sá tími styttast því
meir sem launin eru hærri.
Niðurfelling hefði áhrif á fjár-
hag ríkisins, segir í svari Gylfa
Magnússonar. Réttindi sjóðsfélaga
í Lífeyrissjóði ríkisstarfsmanna
og Lífeyrissjóði hjúkrunarfræð-
inga haldast óbreytt þótt höfuð-
stóll eigna sjóðsfélaga yrði færður
niður. Vegna þess þyrfti ríkissjóð-
ur að gangast í ábyrgðir eða hækka
mótframlög til sjóðanna svo hægt
yrði að mæta lækkun höfuðstóls.
Hjá almennum lífeyrissjóðum
standa aðeins eignir sjóða undir
réttindum. Því yrði að skerða
greiðslur til lífeyrisþega vegna
lækkunar á höfuðstól lífeyris-
sjóðslána, að sögn ráðherrans.
Loks þyrfti ríkið að leggja fram fé
til Íbúðalánasjóðs til að mæta höf-
uðstólslækkun. Skýringin á því er
sú að eiginfjárhlutfall sjóðsins er
þegar undir viðmiðunarmörkum.
peturg@frettabladid.is
20 prósenta lækkun
kostar 229 milljarða
Efnahags- og viðskiptaráðherra hefur lagt fram útreikninga á kostnaði Íbúða-
lánasjóðs, LÍN, lífeyrissjóða og banka við lækkun höfuðstóls verðtryggðra lána.
SLYS Sigurður E. Ragnarsson, forstjóri
BYKO ehf., sendi frá sér yfirlýsingu í gær
vegna slyss sem varð á laugardag í leiktæki
sem verslunin seldi. Þriggja ára drengur
slasaðist alvarlega og lést á mánudagskvöld
á Barnaspítala Hringsins vegna áverka sem
hann hlaut í slysinu.
Í yfirlýsingunni segir: „Um helgina varð
sá hörmulegi atburður að ungt barn lést af
slysförum. Við viljum votta aðstandendum
okkar innilegustu samúð. […] Þegar svona
hörmulegir atburðir eiga sér stað er rétt
að taka viðkomandi vöru úr sölu á meðan á
rannsókn stendur, óháð því að varan uppfylli
skilyrði og kröfur. Það gerðum við strax –
okkur þykir það einfaldlega rétt að gera.“
Í yfirlýsingu Sigurðar kemur fram að leik-
tækið uppfylli staðla og kröfur sem gerðar
eru um leiktæki til einkanota á einbýlislóðum
eða lokuðum raðhúsalóðum. Þegar sala hófst á
tækinu fyrir nokkrum árum var Löggildingar-
stofa fengin til að skoða tækið. Ítarlegar leið-
beiningar á íslensku fylgja um uppsetningu og
notkun tækjanna, segir jafnframt í yfirlýs-
ingu fyrirtækisins.
Hákon Hákonarson, afi drengsins, gagn-
rýndi í viðtali við Fréttablaðið í gær að
kaðlarólur séu enn til sölu á Íslandi. Eins telur
hann það rökleysu að leiktækið uppfylli örygg-
iskröfur. „Þegar keypt eru leiktæki fyrir lítil
börn hlýtur maður að ganga að því vísu að
tækið sé barnvænt en ekki stórhættulegt.“ - shá
Forstjóri BYKO sendir frá sér yfirlýsingu vegna banaslyssins í Grafarvogi:
Leiktækið tekið úr sölu eftir slysið
VERIÐ SELT UM ÁRABIL BYKO hefur tekið leiktækið úr
sölu á meðan að á rannsókn málsins stendur.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Kostnaður við 20% lækkun verðtryggðs höfuðstóls
Lánastofnun 10% lækkun 20% lækkun
Íbúðalánasjóður 57,6 112,5
LÍN 5,8 12,1
Lífeyrissjóðir* 10,1 20,2
Bankar og sparisjóðir 44 85
Tölur í milljörðum króna
* Aðeins stærstu lífeyrissjóðir; þ.e. VR, LSR og Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga.
HÖFUÐSTÓLSLÆKKUN Gylfi Magnússon, viðskipta- og efnahagsráðherra hefur látið
reiknað út kostnað við lækkun höfuðstóls verðtryggðra lána heimilanna.
MOSKVA, AP Fyrrum auðkýfing-
urinn Mikhail Khodorkovskí er
hættur í hungurverkfalli sem
stóð í sólarhring.
Khodorkovskí ákvað að fara
í hungurverkfall til að vekja
athygli á því að dómstólar í Rúss-
landi hafi sniðgengið reglur um
að þeir sem ákærðir eru fyrir
hvítflibbaglæpi geti losnað úr
fangelsi gegn tryggingu.
Khodorkovsky afplánar átta
ára fangelsisdóm fyrir skattsvik
auk þess sem hann er ákærður
fyrir að hafa svikið 25 milljarða
Bandaríkjadala frá olíufyrirtæk-
inu Yukon, sem var áður í hans
eigu. - shá
Mikhail Khodorkovskí:
Hungurverkfall
stóð í einn dag
KHODORKOVSKÍ Bæði málin gegn
honum eru talin eiga sér pólitískar
rætur. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Franklín Stiner hefur
verið dæmdur í átta mánaða
fangelsi fyrir vörslu fíkniefna á
heimili sínu.
Lögregla fann við húsleit í
október 2008 rúm 150 grömm
af amfetamíni, 32 grömm af
kókaíni, lítilræði af hassi og 23
e-töflur. Í apríl 2009 fundu lög-
reglumenn aftur fíkniefni hjá
Franklín. Þá var Franklín með
skammbyssu og skotfæri. Hann
sagðist hafa verið að gera byss-
una upp og að hann hafi stungið
henni ósjálfrátt á sig. - jss
Með fíkniefni og byssu:
Franklin Stiner
í fangelsi
DÓMSTÓLAR Litháískur karlmaður
skal sendur héðan til Færeyja
þar sem hann á að bera vitni
í smyglmáli, samkvæmt dómi
Hæstaréttar. Einn þriggja dóm-
ara skilaði sératkvæði og taldi
skilyrðum fyrir brottvísun
mannsins ekki fullnægt.
Maðurinn er í haldi hér á landi
ásamt tveimur löndum sínum
eftir að þrjú kíló af metamfeta-
míni og 4.200 e-töflur fundust
í bíl sem var á leið til landsins
með Norrænu. Tveir Litháar eru
í haldi í Færeyjum og vilja Fær-
eysk yfirvöld fá manninn héðan
til þess að gefa skýrslu í málinu.
- jss
Lithái skal til Færeyja:
Vitni í smygl-
máli sent utan
REYKJAVÍK Borgarstjórn Reykja-
víkur ætlar að auglýsa eftir sér-
fræðingum til að skipa þriggja
manna nefnd til að gera rann-
sókn á stjórnkerfi og stjórnsýslu
Reykjavíkurborgar.
Er það gert á grundvelli tillögu
Þorleifs Gunnlaugssonar, VG.
Er nefndinni ætlað að rannsaka
hvort gætt hafi verið eðlilegrar
hlutlægni og heiðarleika við fjár-
hagslegar ákvarðanir og hvort
einstakir aðilar eins og verktakar,
bankar og fyrirtækjasamsteypur
hafi fengið óeðlilega fyrirgreiðslu
og hafi, beint eða óbeint, haft
áhrif á pólitískar ákvarðanir og
hagnast á þeim. - bþs
Borgarstjórn Reykjavíkur:
Auglýst eftir
sérfræðingum
Gosbændur fá eyðijörð
Landbúnaðarráðuneytið hefur ráð-
stafað eyðijörðinni Lágu-Kotey tíma-
bundið í þágu þeirra bænda sem búa
við mesta erfiðleika vegna öskufalls
af völdum eldgossins í Eyjafjallajökli.
STJÓRNSÝSLA
Kæmi til greina að þú hættir
við að ferðast um Suðurland í
sumar vegna eldgossins í Eyja-
fjallajökli?
JÁ 37,1%
NEI 62,9%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefur þú fylgst með fyrstu
umferðunum í íslensku knatt-
spyrnunni í sumar?
Segðu þína skoðun á visir.is
KJÖRKASSINN