Fréttablaðið - 20.05.2010, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 20.05.2010, Blaðsíða 30
 20. maí 2010 FIMMTUDAGUR4 Andlit Isabellu Blow var táknmynd tískunnar árið 2007. Nú verða flíkur og munir úr eigu hennar boðnir upp. Isabella Blow var heimsþekkt fyrir sérstakan fatastíl en einnig var hún kunn fyrir að vera með puttann á púlsinum og koma á framfæri efnilegum hönnuðum. Það var hún sem uppgötvaði Alexander McQueen og kom honum á stall með þeim allra bestu. Klæði hennar þóttu all sérstök en nú mun hluti þeirra verða boðinn upp hjá Christies-uppboðshúsinu í London þann 15. september. Á boðstólum verða skór og flíkur eftir John Galliano og Manolo Blahnik auk fjölda hatta eftir Philip Treacy, sem voru hennar ein- kennismerki. Þá munu örugglega margir sækjast hart eftir því að eignast þá níutíu muni eftir Alexander McQueen heitinn sem var einnig góðvinur Isabellu. Á sama tíma og uppboðið fer fram verður gefin út bók um ævi Isabellu Blow. Klæði Isabellu boðin upp Isabella Blow var þekkt fyrir sérstæðan fatastíl. „Ég hef lengi unnið að fylgihlut- um eins og húfum og sjölum og byrjaði til dæmis að búa til hand- stúkur fyrir 30 árum,“ segir Íris Ólöf en skyrtubrjóst eiga hug hennar allan um þessar mundir. Innblásturinn sækir Íris í menningararfinn og eru hæg heimatökin en hún hefur starfað undanfarin átta ár sem safnstjóri Byggðasafnsins Hvols á Dalvík. „Ég var áður fimm ár á Árbæj- arsafni þar sem ég vann sem textílforvörð- ur svo ég hef haft aðgang að menningararf- inum lengi. Í fyrra tók ég svo þátt í sýningu þar sem lista- fólk valdi sér grip af byggða- safninu til að vinna áfram með. Ég valdi skyrtubrjóst við íslenska kvenbúninginn og er að sýna þróunina og afraksturinn núna í Aðalstræti. Skyrtubrjóstin vinn ég úr silki en ég nota náttúruleg efni eins og ull og silki í allt sem ég geri.“ Íris segir skyrtubrjóst ein- göngu hafa verið notuð af konum hér á landi, þá undir íslenska búninginn eins og peysuföt. Erlendis hafi hins vegar tíðkast að karlmenn bæru skyrtubrjóst með blúndum og pífum. „Ég hvet því íslenska karlmenn eindregið til að nota skyrtu- brjóstin, til dæmis utan yfir boli,“ segir Íris sem hefur í nógu að snúast en í dag verður einnig opnuð sýning- in „Heklað í herberginu“ í Kirsuberjatrénu klukkan 17. Þar sýnir Íris hekluð skyrtu- brjóst og hálsskraut, skreytt perlum. „Hekluðu skyrtubrjóstin vann ég úr handspunnu silki- bandi sem ég spann sjálf fyrir 25 árum og hef geymt. Svo mun ég einnig sýna skyrtu- brjóstin á sýningu í Árbæj- arsafni undir yfirskriftinni „Þjóðbúningur í nýrri mynd“, sem verður opnuð núna um mánaðamótin svo það er nóg að gera.“ Nánar má forvitnast um hönn- un Írisar á vefsíðunni www.iris- olof.is. heida@frettabladid.is Silki og hekl um hálsinn Sýning á skyrtubrjóstum og hálsskrauti Írisar Ólafar Sigurjónsdóttur textílhönnuðar stendur nú yfir á Skörinni í Aðalstræti 10. Í dag verður svo opnuð önnur sýning í Kirsuberjatrénu við Vesturgötuna. Íris Ólöf Sigurjóns- dóttir, textílhönn- uður og safnstjóri Byggðasafnsins Hvols á Dalvík. Sýningin í Aðalstræti 10 stendur til 1. júní og er opin alla virka daga milli klukkan 9 og 18 og milli klukkan 12 og 17 um helgar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Hálsskraut Írisar fæst meðal ann- ars í Sirku á Akureyri og safnbúð Listasafns Íslands. Skyrtubrjóst voru notuð af íslenskum konum á öldum áður undir peysuföt. DALVEGI 16c · 201 KÓPAVOGI SÍMI 568 6411 · WWW.RAFVORUR.IS · Tekur 12 Kg · Hljóðlátur · Stórt op > auðvelt að hlaða · Sparneytinn 12 kg Þurrkari Súluhöfða 15 – 270 Mosfellsbæ s: 895 6086 Opnunartímar: mánud. – föstud. milli kl:13:00–18:00 GÆÐA GARN Á GÓÐU VERÐI Bæjarlind 6 - Eddufelli 2 Sími 554-7030 Sími 557-1730 www.rita.is Ný sending frá Str. 36 - 56 Kíkið á heimasíðuna okkar www.rita.is Hringdu í síma ef blaðið berst ekki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.