Fréttablaðið - 20.05.2010, Blaðsíða 51
FIMMTUDAGUR 20. maí 2010 39
Raunveruleikastjarnan og fyrr-
um Playboykanínan Kendra
Wilkinson vill eignast annað
barn með eiginmanni sínum þrátt
fyrir að hafa eignast sitt fyrsta
barn fyrir aðeins sex mánuðum.
Stutt er síðan kynlífsmyndband
með Kendru var gert opinbert og
hefur það skapað erfiðleika innan
hjónabandsins. „Þau vilja annað
barn og Kendra vonar að það
gerist fyrr en síðar. Hún veit að
Hank er miður sín vegna mynd-
bandsins og hún telur að annað
barn geti bjargað hjónabandinu,“
var haft eftir innanbúðarmanni.
Kendra vill
annað barn
ANNAÐ BARN Kendra Wilkinson telur
að annað barn geti bjargað hjónabandi
hennar. NORDICPHOTOS/GETTY
Shiloh Jolie Pitt, dóttir Angelinu
Jolie og Brads Pitt, verður fjög-
urra ára í lok mánaðarins og
hefur stúlkan þegar hafið að
skipuleggja veisluna.
„Maddox var með hermanna-
þema í einu afmæli sínu og Shiloh
vill það sama. Hún fær að öllum
líkindum ný stígvél, leikfanga-
byssur og nýtt rúm sem er í lag-
inu eins og geimskutla í gjöf,“
var haft eftir fjölskylduvini.
„Hún vill helst aðeins leika sér
með leikföng ætluðum strákum,
hún er mikil strákastelpa. Brad
keypti einnig handa henni lítinn
jeppa sem hún getur ekið um á á
lóðinni heima hjá sér.“
Shiloh Jolie
Pitt á afmæli
FÍNAR GJAFIR Shiloh Jolie Pitt fær
margar fínar gjafir þegar hún heldur upp
á fjögurra ára afmæli sitt.
NORDICPHOTOS/GETTY
Fyrirsætan Elizabeth Hur-
ley sagði í nýlegu við-
tali að unnusti hennar,
fyrrverandi, leikar-
inn Hugh Grant, væri
hennar besti vinur.
„Ég á nokkra góða
vini. Eiginmaður
minn er minn besti
vinur dags dag-
lega, systir mín
er minn traust-
asti vinur en
Hugh er besti
vinur minn.
Hann skilur
ýmislegt sem
enginn annar skilur og hann
verður alltaf í fyrsta sæti.
Við höfum verið bestu vinir
í aldarfjórðung og það hlýt-
ur að vera einhvers virði,“
sagði fyrirsætan, en jafn-
framt því að vera góður
fjölskylduvinur er Grant
guðfaðir sonar hennar.
Hugh Grant er bestur
NÁIN Elizabeth Hurley
segir Hugh Grant vera
sinn besta vin.
NORDICPHOTOS/GETTY
Leikkonan fagra, Megan Fox, hefur
látið ýmislegt misgáfulegt flakka í við-
tölum undanfarin ár og hélt því áfram
í nýlegu viðtali við tímaritið Allure.
Innt eftir því hvort hún hafi gaman af
matseld sagðist hún heldur vilja svelta
en að elda ofan í sig sjálf. „Ég held ég
svelti frekar til dauða. Ég held ég kæm-
ist af án matar í að minnsta kosti viku.“
Í viðtalinu ræddi hún einnig um hversu
sýklafælin hún er og segir það erfið-
an sjúkdóm að lifa með. „Ég nota ekki
hnífapörin á veitingastöðum. Ég get
ekki hugsað mér að munnurinn á mér
snerti það sama og þúsund aðrir munn-
ar hafa áður snert. Getur þú ímyndað
þér allar bakteríurnar sem þú gætir
náð þér í? Oj!“
Hrædd við sýkla
SÝKLAHRÆDD Megan Fox notar ekki hnífapör veitingastaða vegna sýklafælni.
NORDICPHOTOS/GETTY