Fréttablaðið - 20.05.2010, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 20.05.2010, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 20. maí 2010 13 STJÓRNMÁL Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, flutti á þriðju- dag setningarræðu á alþjóðlegri ráðstefnu Norður-Suðurstofn- unarinnar sem starfar á vegum Evrópu- ráðsins. Í ræðunni fjallaði Ólafur um breytingar í samskiptum Evrópuríkja og þróunarlanda, sameiginleg- an vanda allra ríkja vegna hættu af óafturkræfum loftlags- breytingum og hvernig breyting- ar á orkukerfum gegndu lykil- hlutverki í baráttunni gegn þeim. Þá benti hann á margvíslegar aðsteðjandi hættur og sagði þær sýna fram á að örlög allra þjóða væru nú samofin. - bþs Forsetinn á alþjóðlegri ráðstefnu: Örlög allra þjóða samofin ÓLAFUR RAGNAR GRÍMSSON NEW YORK, AP „Enginn í ríkis- stjórn Obama svarar mér, hlustar á mig, talar við mig eða les neitt af því sem ég skrifa þeim,“ segir séra Jeremiah Wright, sóknar- prestur Baracks Obama, núver- andi Bandaríkjaforseta. Hann varð þekktur sem and- legur ráðgjafi Obama í síðustu forsetakosningum og olli hneyksli þegar hann hélt fram að ríkis- stjórn landsins breiddi út HIV- veiruna meðal blökkumanna. „Ég er geislavirkur, herra minn,“ segir Wright í svarbréfi til góð- gerðasamtaka sem vinna að hjálparstarfi í Afríku. Þau leituðu aðstoðar Wrights um að greiða fyrir samskiptum við bandarísk stjórnvöld. Prestur Obama ekki í náðinni: Ég er geislavirk- ur, herra minn SJÁVARÚTVEGUR HB Grandi undir- býr nú komandi síldarvertíð. Stefnt er að því að Lundey NS fari til veiða um miðja næstu viku og í framhaldinu munu Faxi RE og Ingunn AK verða send til veiða, að sögn Vilhjálms Vil- hjálmssonar, deildarstjóra upp- sjávarsviðs HB Granda. Vertíðar- byrjunin nú verður á svipuðu róli og í fyrra. Hjá fiskiðjuveri HB Granda á Vopnafirði hefur verið unnið að undirbúningi síldarvertíðarinnar undanfarnar vikur og settur upp nýr og fullkominn búnaður til vinnslu á síld og makríl. - shá Norsk-íslensk síld: Veiðar hefjast GENF, AP Alþjóðleg herferð gegn berklum hefur mistekist. Sérfræðingar segja nauðsynlegt að grípa til róttækra aðgerða. Á síðasta ári smituðust meira en níu millj- ónir manna af berklum. Tvær milljónir þeirra létu lífið af völdum þessa sjúkdóms, sem aldrei í sögu mannkyns hefur hrjáð fleira fólk en ein- mitt nú. Þetta kom fram í sérhefti breska lækna- tímaritsins Lancet nú í vikunni. Árum saman hafa Alþjóðlega heilbrigðisstofnunin WHO og samstarfsaðilar hennar reynt að draga úr útbreiðslu berkla með því að fylgjast vel með því að sjúklingar taki lyfin sín. Þetta hefur ekki breyst þótt stofnunin hafi fyrir tveimur árum áttað sig á því að þessi aðferð dragi ekki úr útbreiðslunni svo neinu nemi. Þeir sem til þekkja segja berkla ekki ein- göngu vera heilbrigðisvandamál, heldur tengist útbreiðsla þeirra mjög fátækt. Berklar breið- ast einkum út á stöðum þar sem of margt fólk býr við erfið skilyrði og hreinlæti er ábótavant. Baráttan gegn berklum þurfi því að taka fleiri þætti með í reikninginn, svo sem húsakynni, menntun og samgöngur. „Forgangsmál til að hafa stjórn á útbreiðslu berkla er að bæta lífsskilyrði og hagvöxt,“ segir Philip Stevens, sérfræðingur hjá hug- myndaveitunni International Policy Network í London. - gb Níu milljónir manna smituðust af berklum á síðasta ári og aldrei í sögunni hefur sjúkdómurinn hrjáð fleiri: Baráttan gegn berklum hefur mistekist TEKUR LYFIN SÍN Alþjóðleg heilbrigðisyfirvöld hafa lagt mikla áherslu á að grannt sé fylgst með því þegar berklasjúklingar taka lyf. NORDICPHOTOS/AFP HAAG, AP Serbnesk stjórnvöld hafa sent stríðsglæpadómstól Samein- uðu þjóðanna í Haag dagbækur Ratko Mladic, sem fundust við húsleit á heimili eiginkonu hans í Belgrad. Mladic var yfirmaður hers Bosníu-Serba í Bosníustríð- inu árin 1992-95 og hefur verið sakaður um margvíslega stríðs- glæpi. Hann hefur verið á flótta frá lokum stríðsins. Dómstóllinn hyggst finna leið til að nota dagbækurnar í máli gegn Radovan Karadzic leiðtoga Bosníu-Serba. - gb Gjöf til stríðsglæpadómstóls: Afhentu dag- bækur Mladic Kannabisræktun stöðvuð Alls fundust 125 kannabisplöntur við húsleit lögreglunnar í gær. Lagt var hald á gróðurhúsalampa og annan búnað. Húsráðandi játaði aðild sína að málinu. LÖGREGLUFRÉTTIR LAUSNIR FYRIR HEIMILI | landsbankinn.is | 410 4000 - 110% aðlögun íbúðalána - Greiðslujöfnun lána - Fjárhagsleg hagræðing - Endurfjármögnun skammtímalána - Eingöngu vaxtagreiðslur í eitt ár - Tímabundin föst greiðsla - Frysting afborgana í allt að þrjú ár - Frestun vegna sölutregðu - Sértæk skuldaaðlögun 25% höfuðstólslækkun lána í erlendri mynt – fyrir heimili Nú eiga viðskiptavinir Landsbankans með lán í erlendri mynt tekin fyrir 8. október 2008 kost á að sækja um 25% höfuðstólslækkun gegn því að lánunum sé breytt í óverðtryggð eða verðtryggð lán í íslenskum krónum. Lausnin er afturvirk og því einnig í boði fyrir einstaklinga sem þegar hafa nýtt sér höfuðstólslækkun lána. Lausnin verður í boði til 30. júlí 2010.* AÐRAR LAUSNIR FYRIR EINSTAKLINGA * N án ar i u p p lý si n g ar u m s ki ly rð i s em þ ar f að u p p fy lla e r a ð f in n a á ve fs íð u L an d sb an ka n s. E N N E M M / S ÍA / N M 4 2 14 8 N B I h f. ( L a n d s b a n k in n ), k t . 4 7 1 0 0 8 - 0 2 8 0 .
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.