Fréttablaðið - 20.05.2010, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 20.05.2010, Blaðsíða 21
FIMMTUDAGUR 20. maí 2010 21 Þrískipting valdsins í lýð-ræðisríkjum milli fram- kvæmdarvalds, löggjafarvalds og dómsvalds hvílir á þeirri grundvallarhugsjón, að engum valdþáttanna þriggja er ætlað að drottna yfir hinum tveim. Þeim er ætlað að vegast á. Þaðan er runnin hugmyndin um vald- mörk og mótvægi (e. checks and balances), þar sem hver vald- þáttur veitir öðrum gagnkvæmt aðhald og eftirlit. Ef einn vald- þáttanna þriggja virðist ætla að vaxa hinum tveim yfir höfuð eða beygja sig undir hina tvo, þarf að bregðast við til að gæta þess jafnræðis, sem að er stefnt. Slíku jafnræði er ekki til að dreifa hér á landi eins og dæmin sanna. Hér hefur framkvæmd- arvaldið beygt bæði löggjafar- valdið og dómsvaldið undir vilja sinn gegn anda stjórnarskrár- innar og ef til vill einnig gegn bókstaf hennar, svo sem færi mun gefast til að gaumgæfa við þá löngu tímabæru endurskoð- un eða endursamningu stjórnar- skrárinnar, sem nú stendur fyrir dyrum. Í 60. gr. stjórnarskrár- innar er vikið berum orðum að þrískiptingu valdsins, en þar segir: „Dómendur skera úr öllum ágreiningi um embættis- takmörk yfirvalda.“ Hér er vikið með beinum hætti að eftirlits- hlutverki Hæstaréttar gagnvart öðrum valdhöfum. Óskorað traust Stjórnmálaflokkarnir hafa ára- tugum saman látið undir höfuð leggjast að endurskoða stjórn- arskrána. Tregðan virðist end- urspegla ófýsi flokkanna til að deila framkvæmdarvaldinu með löggjafanum og dómskerfinu. Í þessu ljósi þarf að skoða tillögu mína um umskipun og aukið sjálfstæði Hæstaréttar, áður en fjöldi mála, sem tengjast banka- hruninu, kemur til kasta réttar- ins, svo sem ég lýsti á þessum stað fyrir viku. Tillagan helgast af nauðsyn þess að treysta stöðu Hæstaréttar í væntanlegum málarekstri, sem kann að varða fyrrum handhafa framkvæmd- arvaldsins og embættismenn auk eigenda og stjórnenda bank- anna. Hæstiréttur verður alltaf, og ekki sízt við þær aðstæður, sem nú eru uppi, að verðskulda Að glíma við Hæstarétt Þorvaldur Gylfason prófessor Í DAG fullt og óskorað traust fólksins í landinu. Kjarni málsins er sá, að lög- gjafinn eða framkvæmdar- valdið getur þurft að skipta sér af Hæstarétti, ef staða hans verður of veik gagnvart hinum tveim eða ef hún verður of sterk. Tillaga mín um endur- skipun Hæstaréttar í samhengi við umskipun dómskerfisins, svo sem stjórnarskráin leyfir, hvílir á þessari forsendu. Fyrir stjórnvöldum hafa lengi legið tillögur frá dómarafélaginu og öðrum um að umskipa dómsvald- inu með því að fjölga dómstigun- um úr tveim í þrjú, svo að nýtt millidómstig taki við málum, sem áfrýjað er úr héraði, og Hæstiréttur dæmi aðeins í þeim málum, sem mikilvægust eru talin, og hafi þá betri skilyrði en hann hefur nú til að standa vel að verki. Sé þetta gert, er hægt að leggja niður störf allra dómara í Hæstarétti samkvæmt skýrri heimild í 61. grein stjórnar- skrárinnar, en þar segir um dómara: „… og ekki verða þeir heldur fluttir í annað embætti á móti vilja þeirra nema þegar svo stendur á, að verið er að koma nýrri skipun á dómstól- ana.“ Þá er hægt að skipa dóm- ara í Hæstarétt upp á nýtt með nýrri aðferð, þar sem erlendir sérfræðingar verða fengnir til að hjálpa til við að meta hæfi umsækjenda og girða fyrir land- lægan klíkuskap og nápot. Fyrri dómarar hefðu sama rétt og aðrir til að sækja um störfin. Fordæmi Roosevelts Svipaður vandi kom upp í Bandaríkjunum í stjórnartíð Franklins D. Roosevelt forseta. Hann náði fyrst kjöri 1932 og hófst fljótlega handa um ýmsar aðgerðir og umbætur til að lyfta landinu upp úr kreppunni, sem Herbert Hoover, forveri hans í Hvíta húsinu, hafði látið afskiptalausa í þeirri trú, að markaðsöflin myndu sjálfkrafa reisa efnahagslífið við og eyða atvinnuleysinu. Roosevelt átt- aði sig að vísu ekki á því líkt og sænska ríkisstjórnin um sama leyti, að hægt væri að nota aukin útgjöld ríkisins og minni skatt- heimtu til að örva atvinnulífið eins og iðnríkin hafa nú gert til að forða heimsbúskapnum frá kreppu. Forsetinn skildi samt, að sértækar staðbundnar ráð- stafanir gátu gert gagn. Og þá rak hann sig á Hæstarétt, sem felldi sum bjargráðin úr gildi á þeirri lagalegu forsendu, að þau stæðust ekki stjórnarskrána. Roosevelt grunaði Hæstarétt um fylgispekt við andstæðinga umbótaáætlunar sinnar og taldi, að við svo búið mætti ekki standa. Hann hótaði því 1937 að beita sér fyrir lagabreytingu í þá veru, að fjölgað yrði í Hæsta- rétti í ljósi þess, að margir dóm- arar voru þá á áttræðisaldri, svo að efast mátti um starfsþrek þeirra. Hæstiréttur skildi skila- boðin og stóð ekki eftir þetta í vegi fyrir kreppuráðstöfunum Roosevelts. Æ síðan hafa þessi skilaboð Roosevelts til Hæsta- réttar þótt orka tvímælis. Sumir telja, að Roosevelt hafi með þessu móti ýft stjórnmálaerj- ur um réttinn og í honum langt fram í tímann. Aðrir benda á, að skilaboðin hrifu. AF NETINU Hrokapirringur Forystulið stjórn- málaflokka talar gjarna um nauðsyn þess að hvetja fólk til þátttöku, virkja krafta og hugmynd- ir, leyfa grasrótinni að njóta sín, fá sem flesta með í gott og uppbyggilegt starf og allt hitt góða sem við viljum gera. „Glæpur“ frambjóðenda Besta flokksins – í huga hinna ráðsettu stjórnmálamanna – er að þau virkjuðu sig sjálf og þurftu enga stjórnmálaflokka til. Þau eru sjálfsprottin grasrót, uppfull af hugmyndaríki og sköpunarkrafti, jafnvel ærslum og gleði. Og viti menn: Fólk kann vel að meta þau. Það er auðvitað fjandi fúlt fyrir atvinnustjórnmálamenn sem vildu gjarna vera skemmti- legir eða kunna að tala við fólk á mannamáli. En kommon. Hættiði þessu væli. http://www.herdubreid. is/?p=1834 Karl Th. Birgisson Dagskrá fundarins er 1. Sk‡rsla stjórnar 2. Ger› grein fyrir ársreikningi 3. Tryggingafræ›ileg úttekt 4. Nýjar reiknitöflur 5. Fjárfestingarstefna sjó›sins kynnt 6. Önnur mál Ársfundur 2010 Allir sjó›félagar, jafnt grei›andi sem lífeyrisflegar, eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum. Sjó›félagar eru hvattir til a› mæta á fundinn. Stjórn Söfnunarsjó›s l ífeyrisréttinda Ársfundur Söfnunarsjó›s lífeyrisréttinda ver›ur haldinn a› Borgartúni 29, Reykjavík á 4. hæ›, fimmtudaginn 20. maí 2010 og hefst kl. 16.30. Reykjavík 19. 04. 2010 Auglýsingasími Allt sem þú þarft…
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.