Fréttablaðið - 20.05.2010, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 20.05.2010, Blaðsíða 31
FIMMTUDAGUR 20. maí 2010 5 Efnahagslegar þrengingar kalla á lausnir. Þegar minna er um fjármuni og neyslan dregst saman er nauðsynlegt að finna nýjar leiðir til að skila hagnaði, til dæmis með hagstæðara verði og vöru- úrvali í takti við kaupgetu við- skiptavinanna. Í tískuheiminum í dag eru það annars vegar ódýr- ari tískulínur tískuhúsanna sem ganga vel. Hins vegar eru það öfl- ugustu tískuhúsin eins og Chanel eða Louis Vuitton sem ganga vel, engin áhætta er tekin með því að versla þar. En fleira er nú í boði fyrir tískuáhugafólk sem vill ekki eða getur ekki leyft sér að verja jafn miklu fé og áður í tískuneyslu. Töskur frá fínum tískuhúsum eru nú til leigu í einn sólarhring eða meira eftir því sem viðskiptavin- urinn hefur þörf fyrir. Þannig gefst fólki kostur á að nota fína tösku án þess að kaupa hana til dæmis fyrir mikilvægan viðburð eða þá bara til þess að monta sig með án þess að nokkur viti hvað- an taskan kemur. Þó ótrúlegt megi virðast eru margir sem nýta sér þessa þjónustu í dag. Það er því ekki að ástæðulausu að útsjón- arsamir aðilar bjóði nú sömuleiðis kjóla og jakkaföt til leigu og þá er ekki aðeins talað um brúðarkjóla- leigur. Í dag eru sífellt fleiri sem bjóða upp á kvöldkjóla til leigu og þá er að finna í öllum regnbogans litum, mismunandi efnum, sídd- um og sniðum. Á afskaplega við- ráðanlegu verði er hægt að slá ryki í augun á afbrýðisömum frænkum eða „góðum vinkonum“. Einungis þarf að greiða hóflega leigu og tryggingu sem er svo endurgreidd þegar kjólnum er skilað. Hjá viðkomandi leigusala er hægt að velja úr fjölda mis- munandi kjóla og máta á staðnum áður en ákvörðun er tekin um hverju eigi að klæðast. Internetið spilar einnig sífellt stærra hlutverk í fataleigu og heimasíðurnar spretta upp eins og gorkúlur. Í kreppunni hefur nefnilega fjöldi manna hreinsað til í skápunum og komið í leigu ýmsu því sem safnaði ryki í gegn- um netsíður sem sérhæfa sig í fataleigu. Reyndar er ekki aðeins hægt að leigja fatnað heldur nán- ast allt milli himins og jarðar svo sem garðsláttuvélar, bora, útilegubúnað og svo framvegis. Eigendurnir ná sér í vasapening í gegnum leiguna, leigjendurnir finna það sem vantar hvort sem um er að ræða veislubúning eða verkfæri. Eina vandamálið sem upp kemur er að vafasamir aðil- ar leigja ónýtt dót og netsíðurnar þvo hendur sínar af allri ábyrgð. En um slíkt er sjaldan að ræða hvað fatnað varðar. Segja má að þessi leiga sé ákveðið form af endurvinnslu því vissulega dregur hún úr neyslu því viðkomandi leigir það sem hann vantar í stað þess að kaupa það. Ekki er þó líklegt að kaup- menn séu allt of ánægðir með þennan nýja tíðaranda. Bergb75@free.fr Kjólar til leigu Hönnuður ársins ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR Bergþór Bjarnason skrifar frá París Svartur og síður að hætti Matthews Williamson. Hin árlega Genlux BritWeek verðlaunahátíð og tískusýning var haldin á dögunum. Þar hlaut breski hönnuðurinn Matthew Williamsson titilinn Hönnuður ársins. Þá var Alexander McQueen heitinn heiðraður með tískusýningu þar sem farið var yfir feril hans. Þar voru meðal annars sýndar flíkur sem ekki höfðu áður sést á tískupöllum. Seiðandi kjóll eftir Alexander McQueen. Grænmunstraður kjóll eftir Alexander McQueen. ansstudioD www.jsb.is Sumarnámskeið Fjölbreytt 2ja vikna námskeið í allt sumar! Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 Bréfasími 581 3732 • jsb@jsb.is • www.jsb.is E F L IR a lm a n n a te n g s l / H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n JAZZDANS og PÚL námskeið fyrir þá sem elska að dansa og hafa áhuga á að koma sér í gott form • Byrjenda – og framhaldshópar. Áhersla á styrk, liðleika og fjölbreytta dansþjálfun. • Þrjú tímabil, kennt 4x í viku: 31.maí – 10.júní, 14.júní – 24.júní, 28.júní – 8.júlí. • Kennarar eru: Ásdís Ingvadóttir, Guðmunda Pálmadóttir, Irma Gunnarsdóttir og Sandra Ómarsdóttir. Verð fyrir hvert tímabil er 8.900 kr. STRAUMAR AÐ UTAN – klassískur ballett og nútímadans, 14. – 25.júní Krefjandi námskeið fyrir framhaldsnemendur frá 14 ára aldri. • Kennt er 4x 90 mín. í viku. • Tímar kl.19:00 á mán. og mið. og kl.17:30 á þri. og föst. • Kennari: Lilja Rúriksdóttir, listdansnemi við Juilliard í New York. Verð á námskeiði: 10.000 kr. JAZZ -FUSION 14+ Spennandi jazzdansnámskeið fyrir byrjendur og framhaldsnema frá 14 ára aldri. • Þrjú tímabil, kennt 3x í viku: 3.júní – 15.júní, 22.júní – 2.júlí, 6.júlí – 16.júlí. • Kennarar eru: Arna Sif Gunnarsdóttir, Guðmunda Pálmadóttir og Sandra Ómarsdóttir. Verð fyrir hvert tímabil er 7.500 kr. KLASSÍSKUR BALLETT – NÚTÍMADANS, 3.-16.ágúst Krefjandi námskeið fyrir framhaldsnemendur frá 14 ára aldri. • Kennt er 4x í viku, tvöfaldur tími - 90 mín. ballett og 75 mín. nútímadans. • Tímar kl. 16:40 – 19:25, kennt frá mánudegi til fimmtudags. • Kennarar: María Gísladóttir og Inga Maren Rúnarsdóttir. Verð á námskeiði: 18.900 kr. Innritun hafin! Skráning í síma 581 3730 og á jsb@jsb.is Danslistarskóli JSB er samstarfsaðili að Frístundakorti Reykjavíkurborgar. Vertu með í sumar! Strandgötu 43 | Hafnarfirði fridaskart.is S K A R T G R I P A H Ö N N U Ð U R & G U L L S M I Ð U R „Bóluþang“ VEITINGASTAÐUR - VERSLUN - TAKEAWAY Suðurlandsbraut 12 - Sími 557 5880 - www.kruska.is Opið alla virka daga frá 11:00 til 20:00 Tilboðið gildir til 7. júní. Matseðill okkar er endurnýjaður vikulega og er aðgengilegur á heimasíðu okkar, www.kruska.is VORDAGAR HJÁ KRÚSKU 2 FYRIR 1 2 fyrir 1 af rétti dagsins eftir kl. 14.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.