Fréttablaðið - 20.05.2010, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 20.05.2010, Blaðsíða 12
12 20. maí 2010 FIMMTUDAGUR SJÁLFSMYND ÚR PÓLÓSKYRTUM Í Tókíó, höfuðborg Japans, hafa menn verið að dunda sér við að raða saman pólóskyrtum þannig að þær myndi fræga sjálfsmynd Vincents van Gogh. NORDICPHOTOS/AFP Rauðvíns- og hvítvínsglös Verð kr. 2900 Bjórglös Verð kr. 2900 Bjórglös/staup Verð kr. 2900/kr. 1900 Skeifunni 8 og Kringlunni. Sími 588 0640. ÚTSKRIFTARGJAFIR www.casa.is CASA UMHVERFISVOTTUÐ PRENTSMIÐJA 50 ilmandi matseðlar. Oddi – umhverfisvottuð prentsmiðja. Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is LÖGREGLUMÁL Lögregla hefur fellt niður að fullu mál á hendur Sig- urði Hilmari Ólasyni, sem hand- tekinn var í fyrrasumar grunaður um að tengjast einu stærsta fíkni- efnamáli sem komið hefur upp í heiminum. Sigurður fékk sent bréf um niðurfelling- una frá lögregl- unni á höfuð- borgarsvæðinu á mánudag. Þar segir að málið þyki ekki líklegt til sakfellingar og sé því fellt niður. Málið sem enn var til með- ferðar hjá ríkissaksóknara varð- aði meint peningaþvætti Sigurðar í gegnum félagið Hollís ásamt Hol- lendingi og Ísraela. Ríkissaksókn- ari hafði þegar í ágúst í fyrra fellt niður þann anga máls Sigurðar sem sneri að fíkninefnasmygli. Sigurður sat í gæsluvarðhaldi í tuttugu daga vegna málsins, sem snerist um meint smygl á tugum tonna af kókaíni frá Ekvador. Kókaínið fannst um borð í skipi blandað í melassa, eins konar dökkt sýróp, í tugum dunka. Sig- urður sat í varðhaldi vegna máls- ins hérlendis ásamt Ársæli Snorra- syni og Gunnari Viðari Árnasyni. Tenging þeirra við málið var sú að þeir höfðu átt samskipti við áðurnefndan Hollending og Ísra- ela, sem voru grunaðir í málinu risavaxna. Þeir hafa hins vegar ekki verið ákærðir fyrir þátt sinn í því máli, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Þriðji þáttur málsins sneri að smygli á 6,2 kílóum af amfetamíni til landsins. Gunnar Viðar Árnason hlaut nýlega fimm ára fangelsis- dóm fyrir innflutninginn. Sigurð- ur og Ársæll voru í fyrstu grunað- ir um að tengjast því máli en voru ekki ákærðir. Sigurður, sem árið 2001 hlaut þriggja ára fangelsisdóm fyrir innflutning á 30 kílóum af hassi til landsins, segist í samtali við Fréttablaðið ætla að leita réttar síns gagnvart yfirvöldum, enda sé komið í ljós að rannsóknin hafi verið byggð á sandi. Hann hafi að ósekju sætt einangrunarvist í þrjár vikur og legið undir grun um refsivert athæfi í tæpt ár. „Ég vil bara að réttlætið nái fram að ganga og ætla að fara eins langt og ég get með þetta mál,“ segir Sigurður. Ársæll Snorrason, sem einnig sat í varðhaldi vegna málsins en var aldrei ákærður, mun einnig íhuga málsókn gegn ríkinu. Karl Steinar Valsson, yfirmað- ur fíkniefnadeildar höfuðborgar- lögreglunnar, sem hafði málið upp- haflega til rannsóknar, vill ekkert tjá sig um málið á þessu stigi. Telji Sigurður á sér brotið sé eðlilegast að hann leiti réttar síns fyrir dóm- stólum. stigur@frettabladid.is Laus allra mála eftir 11 mánaða rannsókn Lögregla hefur fellt niður mál á hendur Sigurði Ólasyni, sem upphaflega var handtekinn grunaður um tengsl við eitt stærsta fíkniefnamál sem upp hefur komið í heiminum. Sigurður segist ætla að leita réttar síns gagnvart lögreglu. MIKIÐ MAGN Tugir tonna af kókaíni sem fundust í melassadunkum í Ekvador urðu til þess að Sigurður var handtekinn og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Ekki er ljóst hvar rannsókn þess máls stendur ytra, en ýmsir menn sem voru handteknir í Evrópu vegna þess hafa verið fríaðir sök. FRÉTTABLAÐIÐ / AP SIGURÐUR ÓLASON HEILBRIGÐISMÁL Það kerfi sem heil- brigðisyfirvöld hafa sett á laggirn- ar til að ákveða hvaða lyf eru niður- greidd í hverjum flokki hefur þegar leitt til mismununar í heilbrigðis- kerfinu, segir Olgeir Olgeirsson, framkvæmdastjóri Portfarma. Stefna ríkisins er að niðurgreiða aðeins ódýrasta lyfið í hverjum flokki. Því hafa meðal annars lækn- ar mótmælt, þar sem aukaverkanir og virkni lyfja er mismunandi eftir einstaklingum. Þetta kerfi heldur opnum þeim möguleika fyrir efnað fólk að kaupa lyf sem þeim þykir henta best, án niðurgreiðslu. Á sama tíma þurfa þeir sem ekki hafa fé til þess að láta sér nægja þau lyf sem ríkið kýs að niðurgreiða, segir Olgeir. Sjúklingar sem ekki geta notað lyfin sem heilbrigðisyfirvöld niðurgreiða geta sótt sérstaklega um að fá önnur lyf niðurgreidd. Olgeir segir ríkið beinlínis vinna gegn því að lyfjaverð lækki á Íslandi. Dæmi um það sé hækk- un á kostnaði við skráningu nýrra lyfja, úr 115 þúsundum króna í ríflega 1,8 milljónir fyrir um ári. Þjónustan hafi ekki aukist að sama skapi, enda taki nú mun lengri tíma að fá lyf skráð. „Það er búið að reka líkkistu- naglana í þennan iðnað, íslenski markaðurinn er hreinlega ekki áhugaverður lengur,“ segir Olgeir. Hann segir þetta þegar hafa leitt til þess að mun færri ódýr sam- heitalyf séu sett á markað. Þá sé samkeppnin drepin niður með því að niðurgreiða aðeins ákveðin lyf, enda sé þá lítil ástæða fyrir lyfja- fyrirtæki að koma með ódýrari samheitalyf á markað. - bj Framkvæmdastjóri Portfarma segir stjórnvöld hafa búið til mismunun í heilbrigðiskerfinu eftir efnahag: Efnaðir geta valið sér lyf en fátækir ekki SAMHEITALYF Með því að niðurgreiða aðeins ódýrustu lyfin í hverjum flokki tekur ríkið fyrir að fyrirtæki sjái sér hag í að setja ódýr samheitalyf á markað, segir framkvæmdastjóri Portfarma. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.