Fréttablaðið - 20.05.2010, Blaðsíða 10
10 20. maí 2010 FIMMTUDAGUR
TAÍLAND, AP Miklar óeirðir brutust
út í Bangkok í gær eftir að her-
inn hafði knúið leiðtoga mótmæl-
enda til uppgjafar. Eldar loguðu
víða í borginni og átökin kostuðu
að minnsta kosti sex manns lífið,
þar á meðal ítalska ljósmyndarann
Fabio Polenghi.
Abhisit Vejjajiva forsætisráð-
herra lýsti yfir útgöngubanni í
allri borginni, sem átti að gilda
frá átta í gærkvöld til klukkan sex
í morgun að staðartíma. Fimmtán
ár eru síðan útgöngubanni var síð-
ast lýst yfir í Bangkok.
Kveikt var í nærri sautján
byggingum, þar á meðal kaup-
höll borgarinnar, nokkrum bönk-
um, höfuðstöðvum rafveitunn-
ar og verslunarmiðstöðinni
Central World, sem var ein sú
stærsta í Suðaustur-Asíu. Einnig
brann kvikmyndahús til grunna
og eitthvað var um gripdeildir í
verslunum.
Uppþotin hófust eftir að herinn
hafði lagt til atlögu gegn þúsund-
um rauðklæddra mótmælenda,
sem höfðu lagt undir sig nokkrar
götur í miðborginni og hafst þar
við í nærri tvo mánuði.
Herinn réðst til atlögu snemma í
gærmorgun og beitti mótmælendur
fullri hörku, sem varð til þess að
tveir helstu leiðtogar þeirra lýstu
yfir uppgjöf síðdegis og gáfu sig á
vald lögreglunni. Þeir sögðust með
þessu vilja koma í veg fyrir meira
mannfall, en átökin undanfarn-
ar vikur hafa kostað um fjörutíu
manns lífið.
Abhisit forsætisráðherra reyndi
að bera sig vel í sjónvarpsávarpi
og fullyrti að stjórnin myndi ná
tökum á ástandinu.
Mótmælendurnir krefjast þess
að stjórnin segi af sér og boðað
verði til þingkosninga sem allra
fyrst. Mótmælendur segja stjórn-
ina sitja í skjóli valdaráns hers-
ins haustið 2006 og sé því ekki
lögmæt.
Rauðklæddu mótmælendurnir
eru margir hverjir stuðnings-
menn Thaksins Shinawatra, fyrr-
verandi forsætisráðherra, sem
hrakinn var frá völdum í valdar-
áninu. Aðrir eru fyrst og fremst
að krefjast þess að lýðræði verði
haft í heiðri.
Óeirðir breiddust einnig út til
norður- og norðausturhluta lands-
ins, þar sem andstaðan við stjórn
Abhisits er sterk. Stjórnin er sökuð
um að hygla auðugu valdaklíkunni
sem hefur stjórnað landinu meira
og minna áratugum saman.
gudsteinn@frettabladid.is
Eldar loguðu
um alla borg
Óeirðir í Bangkok kostuðu að minnsta kosti sex
manns lífið í gær. Tugir bygginga brunnu og út-
göngubann var lagt á í fyrsta sinn í fimmtán ár.
BANGKOK BRENNUR Forsætisráðherra Taílands sagðist sannfærður um að íkveikjurn-
ar verði hægt að stöðva. NORDICPHOTOS/AFP
* Flugið frá Reykjavík til Kaupmannahafnar er flogið af Icelandair, þegar um flug til Bangkok er um að ræða.
Öll fargjöld eru fram og tilbaka, með fyrirvara um gengisbreytingar. Fyrstur kemur fyrstur fær. Athugið reglur og skilmála.
Sölutímabil: 19maí – 27maí 2010. Ferðatímabil: 15ágúst – 15október. Staðfest verð þann 7.mai 2010.
fl ysas.is
Þegar fl ogið er með SAS
Engin falin þjónustugjöld
20kg farangur innifalinn
Netinnritun án aukakostnaðar
Eurobonus punktasöfnun
25% barnaafsláttur
Fullt af lágum
fargjöldum liggja í loftinu!
Bókaðu fyrir 27. maí á fl ysas.is
Reykjavík frá (fram og tilbaka)
Oslo kr. Stavanger kr. Reykjavík frá (fram og tilbaka)
Haugesund kr.
Bangkok* kr. …einnig lág fargjöld til allra áfangastaða í Noregi
Til sölu eða leigu bækistöð á Suðurlandi:
Staðsetning: Eyrarbakki í Árborg.
Stærð: 1.705 m2 og skiptist í tvo stóra sali, skrifstofur,
starfsmannaaðstöðu og fl .
Tilvalið sem verkstæði, geymsla, aðstaða fyrir vinnufl okka,
lager, og fl . Stór athafnalóð (3.500 m2) fylgir sem veitir
stækkunarmöguleika síðar. Einnig tilvalið sem gagnaver eða
fyrir framleiðslufyrirtæki.
Hagstætt verð.
Upplýsingar í símum: 661 6800 og 660 1060
LÖGREGLUMÁL Ástæða átakanna, sem urðu
fyrir utan fjölbýlishús við Tröllakór í Kópa-
vogi í fyrrakvöld, er talin vera uppgjör
skulda vegna fíkniefna.
Annar mannanna sem slösuðust gekkst
undir læknisaðgerð í gær vegna beinbrots
í andliti. Hinn var með áverka á baki og
hálsi. Hann var vistaður í fangaklefa eftir
aðhlynningu á slysadeild. Lögregla lagði
hald á hníf, gaddakylfu, öxi og fleiri barefli.
Eftir því sem næst verður komist sátu
þeir sem síðar lenti saman í teiti aðfara-
nótt þriðjudagsins og fram á daginn.
Ágreiningur reis um peningamál sem leiddi
svo til þess að síðar þann dag kom til átaka
milli fólksins í Tröllakór. Sjö manns voru
handteknir, sex karlar og ein kona. Svo virð-
ist sem fjórir hafi verið í árásarhópnum en
þrír í þeim sem ráðist var á. Lögreglu var
snemma gert viðvart um atburðinn og var
fljót á staðinn.
Í tengslum við átökin fór lögregla að leita
manns sem býr í fjölbýlishúsi í hverfinu.
Þar innan dyra reyndust vera rúmlega 250
kannabisplöntur. Húsráðandinn var ekki
vera heima, en hann verður færður til yfir-
heyrslu þegar til hans næst.
Fólkið var yfirheyrt í gær og síðdegis
voru allir lausir úr haldi.
Málið telst að mestu upplýst.
TRÖLLAKÓR Tveir menn voru fluttir á slysadeild eftir
átökin, annar brotinn í andliti.
Hóparnir sem börðust með bareflum í Kórahverfinu í fyrradag höfðu verið saman í teiti fram eftir morgni:
Lenti saman vegna fíkniefnauppgjörs
SKIPULAGSMÁL Miðborg Reykjavík-
ur, innan Hringbrautar, verður
skilgreind sem sérstakt verndar-
svæði ef borg-
arstjórn stað-
festir samþykkt
skipulagsráðs
frá í gær. Í til-
lögu Sigmund-
ar Davíðs
Gunnlaugsson-
ar, formanns
Framsóknar-
flokksins og
fulltrúa flokks-
ins í skipulagsráði, segir að gera
eigi miðborgina að verndarsvæði
til samræmis við það sem tíðkist í
sögulegum miðbæjum í Evrópu og
Norður-Ameríku. Markmiðið sé að
vernda sögulega byggð og stuðla
að því að nýjar framkvæmdir
styrki heildarmynd svæðisins.
- gar
Formaður Framsóknarflokks:
Miðborgin sett
á verndarsvæði
SIGMUNDUR DAVÍÐ
GUNNLAUGSSON
LEIKVÖLLUR ALDRAÐRA Fyrsti leik-
völlur eftirlaunaþega var formlega
opnaður í Hyde Park í London í gær
við töluverða kátínu viðstaddra.
NORDICPHOTOS/AFP