Fréttablaðið - 20.05.2010, Page 21
FIMMTUDAGUR 20. maí 2010 21
Þrískipting valdsins í lýð-ræðisríkjum milli fram-
kvæmdarvalds, löggjafarvalds
og dómsvalds hvílir á þeirri
grundvallarhugsjón, að engum
valdþáttanna þriggja er ætlað
að drottna yfir hinum tveim.
Þeim er ætlað að vegast á. Þaðan
er runnin hugmyndin um vald-
mörk og mótvægi (e. checks and
balances), þar sem hver vald-
þáttur veitir öðrum gagnkvæmt
aðhald og eftirlit. Ef einn vald-
þáttanna þriggja virðist ætla
að vaxa hinum tveim yfir höfuð
eða beygja sig undir hina tvo,
þarf að bregðast við til að gæta
þess jafnræðis, sem að er stefnt.
Slíku jafnræði er ekki til að
dreifa hér á landi eins og dæmin
sanna. Hér hefur framkvæmd-
arvaldið beygt bæði löggjafar-
valdið og dómsvaldið undir vilja
sinn gegn anda stjórnarskrár-
innar og ef til vill einnig gegn
bókstaf hennar, svo sem færi
mun gefast til að gaumgæfa við
þá löngu tímabæru endurskoð-
un eða endursamningu stjórnar-
skrárinnar, sem nú stendur fyrir
dyrum. Í 60. gr. stjórnarskrár-
innar er vikið berum orðum
að þrískiptingu valdsins, en
þar segir: „Dómendur skera úr
öllum ágreiningi um embættis-
takmörk yfirvalda.“ Hér er vikið
með beinum hætti að eftirlits-
hlutverki Hæstaréttar gagnvart
öðrum valdhöfum.
Óskorað traust
Stjórnmálaflokkarnir hafa ára-
tugum saman látið undir höfuð
leggjast að endurskoða stjórn-
arskrána. Tregðan virðist end-
urspegla ófýsi flokkanna til að
deila framkvæmdarvaldinu með
löggjafanum og dómskerfinu. Í
þessu ljósi þarf að skoða tillögu
mína um umskipun og aukið
sjálfstæði Hæstaréttar, áður en
fjöldi mála, sem tengjast banka-
hruninu, kemur til kasta réttar-
ins, svo sem ég lýsti á þessum
stað fyrir viku. Tillagan helgast
af nauðsyn þess að treysta stöðu
Hæstaréttar í væntanlegum
málarekstri, sem kann að varða
fyrrum handhafa framkvæmd-
arvaldsins og embættismenn
auk eigenda og stjórnenda bank-
anna. Hæstiréttur verður alltaf,
og ekki sízt við þær aðstæður,
sem nú eru uppi, að verðskulda
Að glíma við Hæstarétt
Þorvaldur Gylfason
prófessor
Í DAG fullt og óskorað traust fólksins í landinu.
Kjarni málsins er sá, að lög-
gjafinn eða framkvæmdar-
valdið getur þurft að skipta sér
af Hæstarétti, ef staða hans
verður of veik gagnvart hinum
tveim eða ef hún verður of
sterk. Tillaga mín um endur-
skipun Hæstaréttar í samhengi
við umskipun dómskerfisins,
svo sem stjórnarskráin leyfir,
hvílir á þessari forsendu. Fyrir
stjórnvöldum hafa lengi legið
tillögur frá dómarafélaginu og
öðrum um að umskipa dómsvald-
inu með því að fjölga dómstigun-
um úr tveim í þrjú, svo að nýtt
millidómstig taki við málum,
sem áfrýjað er úr héraði, og
Hæstiréttur dæmi aðeins í þeim
málum, sem mikilvægust eru
talin, og hafi þá betri skilyrði en
hann hefur nú til að standa vel
að verki.
Sé þetta gert, er hægt að
leggja niður störf allra dómara
í Hæstarétti samkvæmt skýrri
heimild í 61. grein stjórnar-
skrárinnar, en þar segir um
dómara: „… og ekki verða þeir
heldur fluttir í annað embætti
á móti vilja þeirra nema þegar
svo stendur á, að verið er að
koma nýrri skipun á dómstól-
ana.“ Þá er hægt að skipa dóm-
ara í Hæstarétt upp á nýtt með
nýrri aðferð, þar sem erlendir
sérfræðingar verða fengnir til
að hjálpa til við að meta hæfi
umsækjenda og girða fyrir land-
lægan klíkuskap og nápot. Fyrri
dómarar hefðu sama rétt og
aðrir til að sækja um störfin.
Fordæmi Roosevelts
Svipaður vandi kom upp í
Bandaríkjunum í stjórnartíð
Franklins D. Roosevelt forseta.
Hann náði fyrst kjöri 1932 og
hófst fljótlega handa um ýmsar
aðgerðir og umbætur til að
lyfta landinu upp úr kreppunni,
sem Herbert Hoover, forveri
hans í Hvíta húsinu, hafði látið
afskiptalausa í þeirri trú, að
markaðsöflin myndu sjálfkrafa
reisa efnahagslífið við og eyða
atvinnuleysinu. Roosevelt átt-
aði sig að vísu ekki á því líkt og
sænska ríkisstjórnin um sama
leyti, að hægt væri að nota aukin
útgjöld ríkisins og minni skatt-
heimtu til að örva atvinnulífið
eins og iðnríkin hafa nú gert til
að forða heimsbúskapnum frá
kreppu. Forsetinn skildi samt,
að sértækar staðbundnar ráð-
stafanir gátu gert gagn. Og þá
rak hann sig á Hæstarétt, sem
felldi sum bjargráðin úr gildi á
þeirri lagalegu forsendu, að þau
stæðust ekki stjórnarskrána.
Roosevelt grunaði Hæstarétt
um fylgispekt við andstæðinga
umbótaáætlunar sinnar og
taldi, að við svo búið mætti ekki
standa. Hann hótaði því 1937 að
beita sér fyrir lagabreytingu í
þá veru, að fjölgað yrði í Hæsta-
rétti í ljósi þess, að margir dóm-
arar voru þá á áttræðisaldri,
svo að efast mátti um starfsþrek
þeirra. Hæstiréttur skildi skila-
boðin og stóð ekki eftir þetta í
vegi fyrir kreppuráðstöfunum
Roosevelts. Æ síðan hafa þessi
skilaboð Roosevelts til Hæsta-
réttar þótt orka tvímælis. Sumir
telja, að Roosevelt hafi með
þessu móti ýft stjórnmálaerj-
ur um réttinn og í honum langt
fram í tímann. Aðrir benda á, að
skilaboðin hrifu.
AF NETINU
Hrokapirringur
Forystulið stjórn-
málaflokka talar
gjarna um nauðsyn
þess að hvetja fólk
til þátttöku, virkja
krafta og hugmynd-
ir, leyfa grasrótinni
að njóta sín, fá sem flesta með í
gott og uppbyggilegt starf og allt
hitt góða sem við viljum gera.
„Glæpur“ frambjóðenda Besta
flokksins – í huga hinna ráðsettu
stjórnmálamanna – er að þau
virkjuðu sig sjálf og þurftu enga
stjórnmálaflokka til. Þau eru
sjálfsprottin grasrót, uppfull af
hugmyndaríki og sköpunarkrafti,
jafnvel ærslum og gleði.
Og viti menn: Fólk kann vel að
meta þau. Það er auðvitað fjandi
fúlt fyrir atvinnustjórnmálamenn
sem vildu gjarna vera skemmti-
legir eða kunna að tala við fólk á
mannamáli.
En kommon. Hættiði þessu
væli.
http://www.herdubreid.
is/?p=1834
Karl Th. Birgisson
Dagskrá fundarins er
1. Sk‡rsla stjórnar
2. Ger› grein fyrir ársreikningi
3. Tryggingafræ›ileg úttekt
4. Nýjar reiknitöflur
5. Fjárfestingarstefna sjó›sins kynnt
6. Önnur mál
Ársfundur 2010
Allir sjó›félagar, jafnt grei›andi sem lífeyrisflegar,
eiga rétt til fundarsetu á ársfundinum.
Sjó›félagar eru hvattir til a› mæta á fundinn.
Stjórn Söfnunarsjó›s l ífeyrisréttinda
Ársfundur Söfnunarsjó›s lífeyrisréttinda ver›ur
haldinn a› Borgartúni 29, Reykjavík á 4. hæ›,
fimmtudaginn 20. maí 2010 og hefst kl. 16.30.
Reykjavík 19. 04. 2010
Auglýsingasími
Allt sem þú þarft…