Fréttablaðið - 20.05.2010, Qupperneq 11
FIMMTUDAGUR 20. maí 2010 11
MALAVÍ, AP Dómari í Afríkurík-
inu Malaví hefur fundið tvo karl-
menn á þrítugsaldri seka um
samkynhneigð. Í dag mun dóm-
arinn síðan tilkynna um hvaða
refsingu hann gerir parinu.
Hámarksrefsing fyrir samkyn-
hneigð í Malaví er fjórtán ára
fangelsi.
Steven Monjeza og Tiwonge
Chimbalanga voru handteknir
27. desember í fyrra en þann dag
héldu þeir samkvæmi til að fagna
trúlofun sinni. Samkynhneigð er
bönnuð með lögum í 37 löndum í
Afríku. Réttindi þessa hóps eru
aðeins viðurkennd í Suður-Afr-
íku en jafnvel þar eru sjálfskip-
aðir hópar sem stunda svokall-
aðar „leiðréttingarnauðganir“ á
lesbíum. - gar
Hommapar í Malaví dæmt:
Bíða refsingar
fyrir kynhneigð
AKRANES „Það ástand sem þetta
frumvarp skapar og hefur haft á
rekstur fyrirtækisins Hvals hf.
er algjörlega óviðunandi,“ segir í
ályktun bæjarstjórnar Akraness
vegna frumvarps um leyfisveit-
ingar vegna hvalveiða sem lagt
hefur verið fram á Alþingi.
„Atvinnuástand á Vesturlandi
er grafalvarlegt og nái frumvarp-
ið fram að ganga eru að minnsta
kosti 150 störf í hættu. Það
ástand sem þetta frumvarp skap-
ar og hefur haft á rekstur fyrir-
tækisins Hvals hf. er algjörlega
óviðunandi,“ segir bæjarstjórnin
sem skorar á Alþingi að aftur-
kalla frumvarpið strax svo skipu-
leggja megi veiðar og vinnslu í
sumar. - gar
Vilja hvalafrumvarp burt:
Segja 150 störf
vera í hættu
HVALSKURÐUR Bæjarstjórn vill laga-
frumvarp út úr Alþingi.
MADRID,AP Ríkisstjórn Spánar vill
hækka hátekjuskatt í viðleitni til
að ná tökum á fjárlagahallanum.
Jose Luis Zapatero forsætis-
ráðherra segir flesta Spánverja
ætlast til þess að hinir efnameiri
leggi nú meira af mörkum en
aðrir landsmenn. Hann vill ekki
segja hve mikil skattahækkunin
verður en segir að millistéttinni
verði hlíft.
Seglin verða dregin saman í
ríkisfjármálum, laun ríkisstarfs-
manna verða lækkuð og eftirlaun
fryst. - pg
Spánverjar brúa fjárlagahalla:
Hækka skatta
hátekjufólks
Síbrotamaður fékk eitt ár
Hálfþrítugur karlmaður hefur verið
dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir
þjófnað, nytjastuld og umferðarlaga-
brot. Maðurinn var á reynslulausn
þegar hann framdi brotin. Hann á að
baki langan sakaferil.
DÓMSTÓLAR
Skuldir íþróttafélaga vaxa
Íþrótta- og tómstundaráð Kópavogs
segist hafa áhyggjur vegna aukinn-
ar skuldasöfnunar einstakra deilda
íþróttafélaga bæjarins. Þá ítrekar
ráðið við Breiðablik að skila ráðinu
ársreikningi 2009 fyrir barna- og
unglingastarfið og einnig fyrir þær
deildir sem eru með meistaraflokks-
starfsemi.
KÓPAVOGUR
STJÓRNMÁL Árni Páll Árnason,
félags- og tryggingamálaráðherra,
hefur úthlutað 30 milljónum króna
úr sjóði sem stofnaður var í til-
efni Evrópuársins gegn fátækt og
félagslegri einangrun. 21 verkefni
hlaut styrk en sótt var um framlög
vegna 84 verkefna upp á samtals
rúmlega 200 milljónir.
Verkefnunum er ætlað að auka
fjölbreytni við úrræði og nám-
skeið til að bæta aðstæður atvinnu-
lausra, tekjulágra og fólks með
skerta starfsgetu.
Þeim er líka ætlað að vinna gegn
fordómum og ýta undir félagslega
virkni.
Verkefnin felast meðal annars
í námskeiðum, rannsóknum, sam-
veru og skemmtunum.
Meðal styrkþega eru Heyrnar-
hjálp, Kærleikssamtökin, Sam-
tök kvenna af erlendum uppruna,
Hlutverkasetur og AE-starfsend-
urhæfing, Efling-stéttarfélag og
Hjálparstarf kirkjunnar.
Sem dæmi um verkefni má nefna
að HHhópurinn hyggst auka lífs-
gæði íbúa á Hátúnssvæðinu með
því að rjúfa félagslega einangr-
un, auka samveru og stuðning til
virkrar þátttöku í samfélaginu,
Hildur Jóhannesdóttir og Gunn-
ar Kvaran ætla að bjóða upp á lif-
andi tónlistarflutning fyrir fólk
sem berst við veikindi af geðræn-
um toga, eldri borgara og fanga og
Velferðarsjóður Suðurnesja ætlar
að aðstoða efnaminni foreldra við
að kosta dvöl barna þeirra á leikja-
námskeiðum og sumarbúðum. - bþs
Ráðherra úthlutar 30 milljónum til verkefna í tilefni Evrópuárs gegn fátækt:
Þurfandi mætt með aðstoð og leik
BERJUMST GEGN FÁTÆKT Veggspjöldum
til að vekja athygli á Evrópuárinu verður
dreift um alla álfuna.
LAUSNIR FYRIR FYRIRTÆKI | landsbankinn.is | 410 4000
25% höfuðstólslækkun
lána í erlendri mynt
– fyrir fyrirtæki
Lán færð í 100% af eignavirði gegn eiginfjárframlagi
Miðað er við að skuldir fyrirtækja séu færðar í 100%
af heildar- virði eða endurmetnu eignavirði ef
eigandi greiðir 10% inn á lán fyrirtækis þannig að
skuldir verða 90% af heildarvirði.
Frysting
Hægt er að fá frestun á hluta eða öllum afborgunum
lána í 12-24 mánuði.
Lán færð í 115% af eignavirði án eiginfjárframlags
Miðað er við að skuldir fyrirtækja séu færðar í 115%
af heildarvirði eða endurmetnu eignavirði ef eigandi
leggur ekki til lágmarks eigið fé.
Nú eiga fyrirtæki í viðskiptum við Landsbankann með lán í erlendri mynt tekin fyrir 8. október
2008 kost á að sækja um 25% höfuðstólslækkun gegn því að lánunum sé breytt í óverðtryggð
eða verðtryggð lán í íslenskum krónum. Lausnin verður í boði til 30. júlí 2010.*
AÐRAR LAUSNIR FYRIR FYRIRTÆKI
*
N
án
ar
i u
p
p
lý
si
n
g
ar
u
m
s
ki
ly
rð
i s
em
þ
ar
f
að
u
p
p
fy
lla
e
r a
ð
f
in
n
a
á
ve
fs
íð
u
L
an
d
sb
an
ka
n
s.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
2
14
8
N
B
I
h
f.
(
L
a
n
d
s
b
a
n
k
in
n
),
k
t
.
4
7
1
0
0
8
-
0
2
8
0
.