Fréttablaðið - 20.05.2010, Page 16
16 20. maí 2010 FIMMTUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Hvert stefnir ferðaþjónustan á tímum eldgosa og efnahagsumbrota?
„Í nóvember var ferða-
þjónusta í blóma, náttúra
vinveitt og krónan veik.
Nú blasir við breytt mynd
og blæs á móti,“ sagði
Katrín Júlíusdóttir, ráð-
herra ferðamála, á fundi
Icelandair í gærmorg-
un. Hún taldi sig vita að
vonir aðstandenda fund-
arins hafi staðið til þess
að þegar að honum kæmi
yrði eldgosið í Eyjafjallajökli yfir-
staðið eða í rénun.
Katrín sagði öskuskýið sem
fylgdi eldgosinu í Eyjafjalla-
jökli og röskun sem það hafði í
för með sér á flugi hafa komið á
óvart, jafnt sérfræðingum á sviði
jarðvísinda sem öðrum. „Næstu
mánuði verður það viðfangs-
efni stjórnvalda, vísindamanna
og stofnana að draga lærdóm af
þessari stöðu og við Íslendingar
munum að sjálfsögðu taka fullan
þátt í því starfi. Við þurfum betri
mælingar, vísindalegan grunn
undir aðferðafræði við hættumat,
markvissari viðbragðsáætlanir
og mun ríkara alþjóðlegt sam-
starf í þessum efnum,“
sagði hún.
Ráðherra sagði ýmsan
lærdóm mega draga af
nýliðnum atburðum, svo
sem í því hvernig taka
ætti á móti alþjóðlegum
fréttastofum þegar hér
verða náttúruhamfarir.
„Þær byrja á því að senda
hamfarafréttamenn sína
og ljóst að við vorum að
lenda nokkuð hressilega í þeim,“
sagði hún og taldi umfjöllunina
hafa verið nokkuð neikvæða fram-
an af. Það væri óþarfi enda væri
hér öryggi ferðamanna tryggt og
allar grunnstoðir í lagi þótt gjósi.
Til stóð að kynna í gær á sérstök-
um fundi markaðsátak í ferðaþjón-
ustu vegna áhrifa eldsumbrotanna
í Eyjafjallajökli, en því var frestað
um tvo daga. Á fundi Icelandair
í gær sagði Katrín mikilvægt að
nýta markaðsátakið til að snúa vörn
í sókn og gera veikleika að styrk-
leikum. „Við megum ekki gleyma
því að við erum þrátt fyrir allt stolt
af okkar óstýrilátu náttúruöflum.“
- óká
KATRÍN
JÚLÍUSDÓTTIR
Aðstæður gjörbreyttar
Íslendingar hafa tíma 11.
júní til að sannfæra heim-
inn um að landið sé öruggt
og að hingað sé yfirhöfuð
hægt að ferðast, að sögn
fjölmiðlamannsins Simons
Calder. Nýta þurfi glugg-
ann fram að HM í fótbolta.
Gos í Eyjafjallajökli var
til umræðu á fundi Ice-
landair í gær. Formaður
Evrópusambands flugfélaga
segir heildartap vegna þess,
dagana 15. til 23. apríl, hafa
numið 733 milljónum evra,
eða 117,7 milljörðum króna.
„Undanfarnar vikur hafa verið ein-
stakur tími í sögu flugs hvarvetna
í heiminum,“ sagði Birkir Hólm
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Icelandair, við upphaf fundar sem
félagið stóð fyrir á Hótel Loftleið-
um í gærmorgun um hvert stefndi
í ferðaþjónustu.
Húsfyllir var á fundinum og
kom aðstandendum jafnvel á óvart
hversu vel var mætt. Mæting-
in kann þó að vera til marks um
hversu þá sem starfa við ferða-
þjónustu þyrstir í vísbendingar
um áframhaldið. Viðvarandi gos í
Eyjafjallajökli þýðir enda viðvar-
andi óvissu fyrir geirann.
Aðalfyrirlesarar á fundi Ice-
landair voru Ulrich Schulte-Strat-
haus, framkvæmdastjóri Evrópu-
sambands flugfélaga (AEA), og
Simon Calder, einn kunnasti fjöl-
miðlamaður samtímans á sviði
ferðamennsku, en hann starfar
meðal annars fyrir breska dag-
blaðið Independent, Sky Travel og
BBC Radio.
Höfum þar til HM byrjar
Nokkur blæbrigðamunur var á
erindum fyrirlesaranna. Sá fyrri
dró upp dökka mynd af horfum í
flugiðnaði í Evrópu, meðan Calder
sló á nokkuð létta strengi og stakk
upp á leiðum til að bæta ímynd
Íslands á alþjóðavettvangi.
Calder benti á að skjótt skipist
veður í lofti varðandi þau mál sem
efst eru á baugi í kastljósi fjölmiðla
hverju sinni. Hann segir Ísland
hafa til 11. júní til að koma á fram-
færi skilaboðum um land og þjóð,
þá hefjist nefnilega heimsmeist-
arakeppnin í fótbolta. „Þetta er sá
gluggi sem þið hafið til að sann-
færa fólk um að Ísland sé opið og
vert að heimsækja.“
Eitt af því sem Calder segir að
gosið í Eyjafjallajökli hafi sýnt
Evrópubúum er að Ísland sé nærri.
„Of nærri,“ bætti hann svo glett-
inn við og uppskar hlátur fundar-
gesta.
Núna segir hann því til dæmis
lag að benda á að hér hafi land-
ið margt að bjóða sem ferðalang-
ar hafi hingað til sótt til Nýja-
Sjálands. Munurinn sé sá að til
Íslands sé þriggja tíma flug, en
sólarhringsflug til Nýja-Sjálands.
Þá stakk Calder upp á því að líkt og
bæjarfélög eigi í sambandi við syst-
urbæjarfélög í útlöndum, þá verði
komið upp slíku sambandi eldfjalla.
„Vesúvíus á Ítalíu gæti verið syst-
ureldfjall Eyjafjallajökuls,“ segir
hann og kvað slíkt aldrei hafa verið
gert áður. Ávinninginn kvað hann
vera að vekja á því athygli að þótt
Ísland hafi engan einkarétt á eld-
fjöllum þá sé það tvímælalaust
besti staðurinn til að sjá eitt í ham
á þessari stundu.
Svört ský eru yfir Evrópu
Ulrich Schulte-Strathaus fer fyrir
samtökum sem safna upplýsing-
um um flugiðnað og stunda rann-
sóknir á þróun atvinnuflugs. Hann
fór í máli sínu yfir þær breyting-
ar sem hann telur nauðsynlegar
til að koma flugfélögum í Evrópu
til aðstoðar. Og ef marka má mál
hans þá er aðstoðar þörf, því þau
munu standa höllum fæti í saman-
burði við flugfélög í öðrum heims-
álfum. Hann bendir á að kreppa
ríki í Evrópu og litlar líkur á hag-
vexti, en hann sé í raun forsenda
viðsnúnings í atvinnufluginu.
Auknum umsvifum efnahagslífs-
ins fylgi aukin ferðalög fólks og
meiri fraktflutningar. „Ég hélt að
11. september 2001 hefði verið birt-
ingarmynd allsherjaráfalls fyrir
flugiðnaðinn. Nú hefur komið í ljós
að ég hafði rangt fyrir mér,“ sagði
hann og benti á að farþegum evr-
ópskra flugfélaga hafi fækkað um
20 milljónir milli áranna 2008 og
2009. Þá séu engar horfur á að rétti
úr kútnum á þessu ári.
„Svört ský liggja yfir Evrópu,“
sagði hann og vísaði meðal ann-
ars til þess skaða sem evrópsk
flugfélög hafi orðið fyrir af eld-
gosinu í Eyjafjallajökli ofan í þegar
slæmar horfur í evrópska hagkerf-
inu vegna skuldavanda ríkja Evr-
ópusambandsins og hættu á að
vandi Grikkja smiti út frá sér til
annarra ríkja. Reglur sem flugélög
lúti vegna niðurfelldra fluga þýði
gífurlegan kostnað í bætur og segir
hann beðið niðurstöðu um hvort
þjóðríki megi hlaupa þar undir
bagga. Heildartap evrópskra flug-
félaga vegna röskunar á flugi 15. til
23. apríl vegna gossins í Eyjafjalla-
jökli nemi 733 milljónum evra, eða
nálægt 118 milljörðum króna.
Í máli sínu kallaði Schulte-Strat-
haus eftir aukinni samræmingu og
samvinnu Evrópulanda hvað flug
áhrærir, Evrópa verði gerð að
einu flugstjórnarsvæði, létt verði
af flugfélögum bótaskyldu vegna
óviðráðanlegra atburða. Þá þurfi
að breyta reglum um flug á ösku-
svæðum, því líkön þau sem nú ráði
hættumati, horfi ekki til þéttleika
öskunnar.
HÚSFYLLIR Gróft talið mættu um og yfir tvö hundruð manns á morgunverðarfund
Icelandair í Þingsölum Hótels Loftleiða í gærmorgun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Gosið bætir gráu í
svört ský yfir Evrópu
HEIÐURSGESTIR HJÁLPAST AÐ Ulrich Schulte-Strathaus kemur Simon Calder til aðstoðar við upphaf erindis þess síðarnefnda
þannig að ekki tók nema skamma stund að skipta á milli skyggnusýninga. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Óli Kristján
Ármannsson
oka@frettabladid.is
SUMAR 2010
20-25% AFSLÁTTUR
af útivistarfatnaði frá