Fréttablaðið - 20.05.2010, Page 42
30 20. maí 2010 FIMMTUDAGUR
BAKÞANKAR
Ragnheiðar
Tryggva-
dóttur
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
BÍDDU!
Ég held að hún
ætli að kála
mér!
Ertu ekki of
fullur?
Aaalls
ekki!
Ekki það? Hvað
er 8 sinnum 8?
Fiimmtíu
og sjöö!
Uu
Ókei!
Ég er á
leiðinni...
Ég verð að fá
nýjan jakka.
Strax??
Hvað er að
jakkanum sem
við keyptum í
fyrra?
Hann er
aðeins farinn
að gefa sig.
Og svo eru
ermarnar
aðeins of
stuttar.
Ég sæki
bíllyklana...
Viltu setja þetta í
skúffuna þína Solla?
Ég á
þetta
ekki.
Nú, hver
þá?
Ég er
ekki
viss.
Það gæti verið að Sigga,
Soffía, Krissa, Stína, Laila,
Grímhildur, Magnea, Kristín,
Lóa, Arndís, Heiðrún, Gurrý
eða Heiðbjört eigi þá.
Jæja, það
þrengir
hringinn.
Nema að það
sé ekki ein af
bestu vinkon-
um mínum...
Undanfarin kvöld hef ég dundað mér í garðinum heima en hann er í hálf-
gerðri órækt. Grasflötin mosavaxin vegna
skuggans af allt of stórum trjánum í kring
sem hafa fengið að vaxa óáreitt í áratugi
og beðin vaðandi í illgresi. Kerfillinn æðir
yfir páskaliljurnar og kaffærir allt sem
á vegi hans verður. Hann hefur meira
að segja brotið sér leið upp um malbikið
á bílastæðinu utan við grindverkið, svo
mikil er gróskan.
KERFILLINN er óvelkominn gestur í
garðinum mínum og frekur eins og
ofdekraður útrásarvíkingur. Ég hef
reynt að tjónka við hann með litlum
árangri þó þar sem tíminn sem ég
hef til að sinna garðverkum takmark-
ast við hálftíma hér og hálftíma þar.
Hann hefur því í fullu tré við mig og
á hverjum morgni sýnist mér kerfill-
inn hafa dreift sér víðar, hækk-
að, stækkað og lagt undir sig
fleiri vesælar liljur.
ÉG leitaði mér því ráða á
vefsíðu hvernig ráða mætti
niðurlögum kerfilsins og las
þar það sem ég vissi að hann
er erfiður að eiga við. Á vef-
síðu Náttúrufræðistofnunar er
kerfillinn sagður reskitegund,
sem þýðir víst að hann þrífist í
vel röskuðu landi. Hann er hraðvaxta og
duglegur í samkeppni við annan gróður.
Til að ráða niðurlögum hans væri helst til
ráða að beita á hann sauðfé!
ALIN upp á bóndabæ ættu mér að vera
hæg heimatökin að fá kind í garðinn. Ég
er þó hrædd um að kindin yrði óáreiðan-
legur bandamaður sem léti ekki staðar
numið við kerfilinn heldur kroppaði garð-
inn allan niður í svörð. Ég hef líka íhugað
að semja frið við þennan óvin minn. Láta
eins og við deilum garðinum í sátt og að
kerfillinn sé þarna rétt eins og hver önnur
nytjajurt. Það ku víst vera gott að baka
úr honum brauð! Eftirlátssöm yrði ég þá
að tipla í kringum hann og þykjast ekki
sjá hvernig hann reigir sig enn hærra en
í gær.
YFIRGANGURINN í honum er þó einfald-
lega orðinn óþolandi og ekki um það að
ræða að hann fái að sölsa undir sig blett-
inn átakalaust. Við nánari lestur á heima-
síðunni góðu segir að kerfillinn myndi
ekki langlífan fræforða, sem ég gef mér
að þýði að hann sé hálfgerður ræfill þegar
upp er staðið. Þar segir einnig að ef rætur
náist upp ætti björninn að vera unninn.
VOPNUÐ stunguspaða mun ég því ráðast
að rótum vandans í kvöld og vonandi hafa
sigur.
Að rótum vandans
10. HVERVINNUR!
VILTU
VINNA
MIÐA?
STÓRSKEMMTILEG TEIKNIMYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA MEÐ ÍSLENSKU TALI
FRUMSÝND21. MAÍ!
Vinningar afhentir í ELKO Lindum. 149 kr/skeytið.
Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb.
FULLT AF AUKAVINNINGUM
TÖLVULEIKIR • DVD MYNDIR • PEPSI MAX
OG MARGT FLEIRA!
SENDU SMS SKEYTIÐ
ESL HUGO Á NÚMERIÐ 1900
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ MIÐA!