Fréttablaðið - 20.05.2010, Page 48
36 20. maí 2010 FIMMTUDAGUR
Nafn Jerry Bruckheim-
er er nátengt hugtakinu
„sumarsmellur“ enda virð-
ist Hr. Hollywood hafa næmt
auga og tilfinningu fyrir því
hvað fjöldinn vill sjá.
Nýjasta kvikmyndin frá Bruck-
heimer er Prince of Persia en all-
nokkrar fréttir hafa verið skrifað-
ar um þá kvikmynd sem skartar
meðal annars Gísla Erni Garðars-
syni í litlu hlutverki. Gísli fær að
spreyta sig gegn mörgum af helstu
stjörnum Hollywood, svo sem Jake
Gyllenhaal, sem er frægastur fyrir
leik sinn í Brokeback Mountain,
Gemmu Arterton en hún er fyrr-
um Bond-pía og svo Ben Kingsley
og Alfred Molina.
Kettir og gígalóar
Bruckheimer er af þýskum gyð-
ingaættum. Hann fæddist í Detroit
og kláraði próf í sálfræði við Mum-
ford-háskólann í Arizona. Hann
sýndi sjónræna sviðinu mikinn
áhuga og hafði myndavél meðferð-
is hvert sem hann fór. Bruckheimer
sneri sér að auglýsingagerð strax
eftir nám; fyrst í Detroit, svo í New
York. Auglýsingarnar vöktu strax
mikla athygli, sópuðu að sér verð-
launum og opnuðu dyr Bruckheim-
er inn í Hollywood.
En það var ekki fyrr en Bruck-
heimer komst í kynni við Paul
Schrader að hjólin fóru að snú-
ast fyrir alvöru. Kvikmyndirn-
ar American Gigalo og Cat Peop-
le urðu til þess að stóru fiskarnir
veittu framleiðandanum athygli.
Stjörnulíf með Simpson
Bruckheimer komst í kynni við
annan framleiðanda að nafni Don
Simpson. Þeir tveir voru jafn ólíkir
og dagur og nótt; Bruckheimer er
jarðbundinn að eðlisfari á meðan
Simpson lifði glamúrlífinu með til-
heyrandi vímuefnaneyslu Afrakst-
urinn var hins vegar ekkert slor;
dansmyndin Flashdance skilaði
þeim félögum 95 milljónum doll-
ara í miðasölu að ekki sé minnst á
Beverly Hills Cop-myndirnar sem
gerðu Eddie Murphy að stórstjörnu
og Top Gun. Líferni Simpson dró
hann til dauða árið 1996 en síðasta
myndin þeirra var The Rock.
Stórlaxinn
Bruckheimer missti örlítið taktinn
eftir andlát Simpson. Armagedd-
on, Gone in Sixty Seconds og hin
arfaslaka Coyote Ugly voru ekki
alveg í samræmi við væntingarn-
ar sem Brukheimer/Simpson-sam-
starfið hafði alið áhorfendur á.
Raunar var það ekki fyrr en með
hinni frábæru stríðsmynd Ridley
Scott, Black Hawk Down, að Bruck-
heimer náði sér almennilega á strik
aftur.
Kvikmyndagagnrýnendur hafa
ekki alltaf verið hrifnir af kvik-
myndum úr smiðju framleiðandans
og þær fá seint þann stimpil að telj-
ast listrænt augnakonfekt. En þegar
Bruckheimer er upp á sitt besta
skila myndirnar því sem til þeirra
er ætlast. Einfaldasta útskýringin
á Bruckheimer-myndum væri að
þetta sé kvikmyndagerð fyrir fólk
sem vill fá sér stóran poka af poppi,
risakók og sjá tvo tíma af hreinu
fjöri. Og framleiðandi sem hefur
gert stórstjörnur úr leikurum á
borð við Richard Gere, Tom Cruise,
Nicolas Cage og Eddie Murphy og
halað inn þrettán milljörðum doll-
ara, tæplega tveim þúsund milljörð-
um íslenskra í miðasölu, hefur, burt-
séð frá öllu tali um list, skilið eftir
sig spor í kvikmyndasögu Banda-
ríkjanna. freyrgigja@frettabladid.is
> DREW TIL OZ
Drew Barrymore hefur bæst í
ört stækkandi hóp kvikmynda-
gerðarmanna sem vilja gera
mynd um ævintýri Dórót-
heu í Oz. Mynd Barrymore á
að segja sögu langalanga-
langaömmubarns Dórót-
heu sem verður að nýta
kraftaskóna frægu til að
vernda jörðina og Oz.
Sannur meistari sumarsmellanna
Kvikmyndin Snabba Cash, eða Fundið
fé eins og hún heitir á íslensku, er sýnd í
íslenskum kvikmyndahúsum um þessar
mundir. Myndin er harðsoðinn og raun-
sær krimmi sem segir sögu undirheima
Stokkhólms frá sjónarhóli glæpamanna.
Aðalpersónurnar eru þrjár: Jorge dóp-
sali sem sleppur úr fangelsi og hyggur
á hefndir, JW sem lætur ríka og fræga
fólkið fá kókaínið sitt og svo Mrado, serb-
neski hrottinn. Þeir eiga það eitt sameig-
inlegt að dreyma um skjótfenginn gróða.
Fundið fé er byggt á samnefndri kvik-
mynd sænska rithöfundarins Jens Lapid-
us. Í viðtali við Fréttablaðið fyrir tæpum
tveimur árum sagðist hann vilja skrifa
allt öðruvísi bók en sænski glæpasagna-
skólinn er þekktastur fyrir með rithöf-
unda á borð við Mankell, Stieg Larsson
og Marklund í kennarahlutverkinu. „Ég
er sannfærður um að ef maður tæki allar
þessar bækur og legði þær hver ofan á
aðra myndirðu fá út eina og sömu bók-
ina,“ sagði Lapidus, sem er lögfræðingur
í Stokkhólmi og hefur varið marga af
alræmdustu misindismönnum Svíþjóðar.
Snabba Cash hefur slegið í gegn á
Norðurlöndunum og samkvæmt fréttum
frá Vesturheimi er Hollywood áhuga-
samt. Því hefur jafnframt verið haldið
fram að sykursæta High Shcool Musical-
stjarnan Zac Effron hafi mikinn áhuga á
að fá hlutverk í endurgerðinni. Sem yrði
dágott hliðarspor frá hans ferli. - fgg
Sænski glæpasagnaskólinn slær í gegn
HÖFUNDURINN Lapidus, höfundur Snabba
Cash, er sjálfur lögfræðingur og hefur varið
marga af alræmdustu misindismönnum
Svíþjóðar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Þetta átti ekki að vera dónaleg fyrirsögn heldur er þetta nafnið
á persónu sem Óskarsverðlaunahafinn Jamie Foxx hefur tekið
að sér að leika í gamanmyndinni Horrible Bosses. Myndinni er
leikstýrt af Seth Gordon og segir sögu þriggja vina sem ákveða
að taka höndum saman og drepa skelfilega vonda yfirmenn sína.
Foxx mun leika svikahrapp sem býðst til að aðstoða þá með
skrautlegum afleiðingum eins og nafn persónunnar gefur til
kynna.
Framleiðendurnir hafa augljóslega mikla trú á handritinu því
þeir hafa leitað til helstu gamanleikara Bandaríkjanna og stjörn-
ur á borð við Owen Wilson, Vince Vaughn og Ashton Kutcher hafa
verið orðaðir við hlutverkin. Þar að auki hafa leikstjórarnir Frank
Oz og David Dobkin íhugað að setjast í leikstjórastólinn.
Gordon getur vart kvartað undan leikarahópnum því forsprakki
vinahópsins verður leikinn af hinum ágæta Jason Bateman,
stjörnunni úr Arrested Development og Juno. Honum til halds og
traust verður Charlie Day úr gamanþáttunum It‘s Always Sunny
in … sem vakið hafa mikla athygli. Yfirmennirnir eru heldur ekki í
lakari kantinum; fyrrum ólátabelgurinn frá Írlandi, Colin Farrell,
mun leika einn og Jennifer Aniston annan. Ekki hefur hins vegar
verið tilkynnt hver verður þriðji feigi yfirmaðurinn.
Jamie Foxx er Cocksucker
Dustin Hoffman hefur samþykkt
að leikstýra nýrri gamanmynd
fyrir breska ríkissjónvarpið,
BBC. Myndin fjallar um tvo
roskna óperu-
söngvara sem
lentu í miklum
deilum á sínum
yngri árum en
ákveða að grafa
stríðsöxina fyrir
tónleika eftir
fund á elliheim-
ili. Um er að
ræða sannkall-
aðan ellismell
því Hoffman
sjálfur er 72 ára
og aðalleikar-
arnir í myndinni
eru heldur engin
unglömb; Maggie Smith verður
76 á þessu ári, Albert Finney er
tveimur árum yngri en hún og sir
Tom Courtenay er 73 ára.
Þetta verður í fyrsta skipti sem
Hoffman sest í leikstjórastólinn,
opinberlega. Hann kom reyndar
að leikstjórn kvikmyndarinn-
ar Straight Time frá árinu 1978
en fékk það starf sitt ekki skráð.
Hoffman situr ekki auðum hönd-
um því hann hyggst endurtaka
hlutverk föður Gaylord Focker í
þriðju myndinni í þessari tragi-
kómisku fjölskyldusögu.
Dustin Hoff-
man leikstýr-
ir fyrir BBC
SAMAN Á NÝ Jamie Foxx og Colin Farrell léku Richardo og Sonny í Miami Vice
eftir Michael Mann. Nú reyna þeir fyrir sér í gamanleik.
DUSTIN HOFFMAN
BRUCKHEIMER OG FRÚ Kvikmyndir Bruckheimers hafa þénað yfir þúsund milljarða í
miðasölu.
MÁ BJÓÐA ÞÉR …
LYGI?
Bræður sitja á glæsilegu veitingahúsi
ásamt eiginkonum sínum. Á yfirborð-
inu virðist allt slétt og fellt en fimmtán
ára synir þeirra hafa framið skelfilegt
ódæðisverk. Hvað skyldu þau ganga
langt til að verja börnin sín?
Kvöldverðurinn var valin bók
ársins í Hollandi árið 2009.
Jóna Dóra Óskarsdóttir þýddi.
FRUMÚTGÁ
FA
Í KILJU
bio@frettabladid.is