Samtíðin - 01.05.1970, Blaðsíða 20
16
SAMTÍÐIN
landa, sem áður höfðu hjálpað okkur, litu
stofnun Ísraelsríkis óhýru auga.“
Fyrstu árin varð Shin Beth að bjargast
við hina alkunnu skipulagsgáfu ísraels-
manna og margvíslega reynslu starfsmanna
sinna eftir mótspyrnuhernað þeirra við Eng-
lendinga og baráttuna við Þjóðverja í seinni
heimsstyrjöldinni. Þarna voru að verki menn,
sem barizt höfðu í her bandamanna, myndað
mótspyrnusamtök í þýzkum fangabúðum og
skipulagt skæruflokka í skógum Póllands og
Rússlands. Höfuðstyrkur Isers Harels var í
því fólginn, að hann gat byggt starfsemina
á reynslu mannvals frá þeim 75 þjóðum, er
stofnað höfðu Ísraelsríkið. Mannþekkingu
og tungumálakunnáttu þessa fólks voru eng-
in takmörk sett. Auk þess hafði það gegnt
trúnaðarstörfum í mörgum löndum og átti
þar víða sterk ítök og marga vini og stuðn-
ingsmenn. En nú er eðlilegt, að menn spyrji:
Hver er þessi Iser Harel, sem Ben Gurion fól
hið mikla vandaverk að stofna leyniþjónustu
ísraels? Áður en því er svarað, er rétt að
bæta því við, að Iser Harel skóp leyniþjón-
ustuna í sinni mynd; þess vegna urðu styrk-
leiki og veikleiki hennar spegilmynd af skap-
ferli hans sjálfs. Hann veitti stofnuninni auk
þess forstöðu 15 ár, en hvarf frá henni í reiði
eftir ósamkomulag við Ben Gurion.
Iser Harel fæddist í Vitebsk við Dvínu-
fljót í Rússlandi, sama bænum og listmálar-
inn Chagal, sem við birtum grein um í 10.
blaði SAMTÍÐARINNAR 1968. Vitebsk var
þá aðsetur margra Gyðinga og gagnsýrð af
erfðavenjum þeirra og trúarbrögðum. Iser
fluttist til Palestínu snemma á 4. tug aldar-
innar. Hann gekk inn í landið gegnum enska
tolleftirlitið með aleigu sína í lítilli hand-
tösku og stórt brauð undir hendinni. Inni í
því leyndist skámmbyssa hans.
Hann vann fyrst að því að tína appelsínur
af trjám í Sarondalnum, en síðan á sam-
yrkjubúi (kibbutz). Þá lét hann skrá sig í
mótspyrnuhreyfinguna Haganah og lenti í
leyniþjónustu hennar. Eftir stofnun ísraels-
ríkis féllst hann á tilmæli Bens Gurions um
að endurskipuleggja upplýsingaþjónustu Ha-
ganahs. Síðan hvarf hann „undir jörðina"
ásamt ríkinu, ef svo mætti að orði kveða.
Nafn hans var aldrei nefnt á opinberum vett-
vangi. Aldrei sást mynd af honum í blöðun-
um, og nafn hans var ekki í símaskránni.
Hann var svo dularfull persóna, að eitt sinn
^ er hann veifaði leigubíl í New York og bíl-
stjórinn spurði, hvert ætti að aka, svaraði
Iser: „Mér þykir leitt, að ég má ekki segja
yður það.“
Iser kunni því vel að starfa á laun, en
honum var það raunar lífsnauðsyn. Ný-naz-
iskur félagsskapur hafði lagt fé til höfuðs
honum. Hann ferðaðist einnig til landa, þar
sem setið var um líf hans. En hann kunni
ávallt bezt við sig í fremstu víglínu og miklu
betur en í höfuðstöðvum sínum í Tel Aviv.
Hann kvaðst aldrei vera hræddur. Annað-
hvort sagðist hann hafa vanið sig af því eða
vera svona af Guði gerður. Sér væri ekki
fyllilega ljóst, hvoru hann ætti kjark sinn
að þakka. Aldrei kvaðst hann hafa verið með
gerviskegg né blá gleraugu á ferðum sínum
til útlanda. Hann dulbjó sig aldrei, en gekk
hins vegar undir mörgum nöfnum. Einu sinni
brá honum mjög í brún. Hann var þá stadd-
ur á stórum erlendum flugvelli og heyrði
gervinafn sitt kallað upp í hátalaranum. En
þá kom í ljós, að annar maður með því nafni
var í sömu flugvél og hann!
Útlit hans gei'ði honum auðveldara að
dyljast. Hann er smávaxinn, en þybbinn
nokkuð. Um hann mætti viðhaía hæpnustu
mannlýsingu, sem til er á íslenzku: Hann er
eins og fólk er flest! Hann stjórnaði sjálfur
fjölda rannsókna, af því að honum fannst
það ganga betur, m. a. leitinni að Eichmann,
og var viðstaddur, þegar hann var tekinn
fastur. Þá fannst Iser Harel hann hafa unnið
helgistarf! Enda þótt leitin að Eichmann
reyndist auðveldari en mörg önnur störf Shins
Beths, taldi Iser hana mikilvægasta þeirra
allra frá þjóðlegu og sögulegu sjónarmiði.
Talið er, að orsökin fyrir því, að Iser sagði
af sér forstjórastarfi við Shin Beth hafi ver-
ið skoðanamunur þeirra Bens Gurions á
starfsemi þýzkra vísindamanna í Egyptalandi.
Iser hefur sagt, að ef Ben Gurion hefði ekki
skipað Shin Beth að hætta afskiptum sínurn
af þeim málum, myndi starfsemi leyniþjón-
ustunnar hafa borið skjótari árangur en
raun varð á.
Meir Amit tók við forstöðu leyniþjónust-
unnar af Iser Harel, en hefur einnig látið af
því starfi, eins og áður er getið, og veitir nú
forstöðu stærsta iðnfyrirtæki Israels. Því er
haldið leyndu, hver nú stjórnar Shin Beth,
en starfsemin er rekin með miklum dugnaði
og vísindalegri nákvæmni, og duldir þræðir
hennar teygja sig víða um lönd.