Samtíðin - 01.05.1970, Blaðsíða 21

Samtíðin - 01.05.1970, Blaðsíða 21
SAMTÍÐIN 17 UNDUR - AFREK 4» Bandaríkjamenn hafa hlotið flest Nóbelsverðlaun allra þ.ióða. Árið 1968 höfðu samtals 75 þessara verðlauna fallið þeim í skaut, sem hér segir: 6 bókmenntaverðlaun, 19 læknisfræðiverðlaun, 18 eðlisfræðiverð- laun, 19 efnafræðiverðlaun og 13 friðarverð- laun. ♦ Elzti maður, sem hlotið hefur Nóbels- verðlaun, var Frakkinn Ferdinand Buisson (1841—1932). Hann hlaut 86 ára gamall hálf friðarverðlaun Nóbels móti Þjóðverjanum Ludwig Quidde (1858—1941). ♦ Yngsti maður, sem hlotið hefur Nóbels- verðlaun, var Sir William Lawrence Bragg (f- í Adelaide í Suður-Ástralíu 1890). Hann hlaut hálf eðlisfræðiverðlaun Nóbels árið 1915 móti föður sínum, Sir William Henry Rragg (1862—1942). ♦ Yngsti maður, sem hlotið hefur bók- menntaverðlaun Nóbels, var Rudyard Kipling (1862—1936). Hann hlaut verðlaunin 41 árs gamall árið 1907. ^ Yngsti maður, sem hlotið hefur friðar- verðlaun Nóbels, var bandaríski presturinn dr. Martin Luther King. Það gerðíst árið 1964. Dr. King var síðar myrtur, svo sem kunnugt er- Þannig launar heimurinn stundum afrek afburðamanna sinna. ♦ Amazonfljótið er vatnsmesta fljót heimsins. Það eykur vatnsmagn Atlantshafs- ins að meðaltali um 210.000 rúmmetra á sek- úndu. ♦ Stærsta alfræðibók, sem samin hefur verið, var tekin saman af 2000 lærðum Kín- verjum á árunum 1403—’08. Hún var 11.095 handritabindi. Af þeim eru 370 enn varð- Veitt. Vínneyzla barna ÍTALSKIR læknar hafa um þessar mund- ir miklar áhyggjur af vínneyzlu barna þar í landi og telja, að drykkjusiðir þeirra geti orðið þjóðhættulegir. Rannsókn hefur nefni- lega leitt í ljós, að langflest ítölsk börn drekka daglega rauðvín og að 18 af hverjum 100 börnum á aldrinum 6—14 ára fá sér rauð- vínsglas á morgnana, áður en þau fara í skólann. Helmingur ítalskra barna drekkur rauðvin bæði með hádegisverði og kvöld- verði og dámar læknana ekki að öllu þessu vínsulJi. Hafa þeir nú uppi sterkan árúður gegn ,,ofdrykkju“ barnanna, sem hefst að kalla má, meðan þau eru enn í vöggu, eins og læknarnir orða það. En komið hefur á daginn, að örðugt reyn- ist að sannfæra ítalska foreldra um, að vín sé börnum óhollt, segir talsmaður ítaisku heilbrigðismálaráðuneytisins. Kostnaðarsöm ánægja ERLEND blöð segja, ,að demantaskart- gripur sá, sem Richard Burton gaf konu sinni, Elizabeth Taylor, ekki alls fyrir löngu, muni reynast þeim hjónunum lrýsna kostn- aðarsamur. Djásnið kostaði sem svarar um það bii 96 milljónir ísl. króna (gengi í febrú- ar 1970). En hér eru ekki öil kurl kornin til graf- ar, því að nú hefur tryggingarfélagið, sem tekur ái'iega 14,4 millj. kr. fyrir að tryggja skartgiápinn, ákveðið, að frú Taylor megi ekki skreyta sig með honum nema samtals 30 daga ár hvert og í mesta lagi 2 klst. í hvert. skipti. Auk þess gerir íélagið þá kröfu, að frúin hafi ávailt tvo vopnaða varðmenn með sér, þegar hún ber þetta dýra djásn. RÖDD HERSHÖFÐINGJANS: SINAISKAGINN er núna eins og svissnesk- ur ostur, sem ekki er unnt að verja öll götin á. Mosche Dajan. VIÐ greiðum án nokkurs viðbótariðgjalds aukabætur til þeirra, sem slasast alvarlega þrátt fyrir notkun öryggisbelta. Fram yfir aðrar tryggingar greiðum við 50.000 kr. við dauðsfall °g allt að 150.000 kr. við örorku. Kynnið yður þessa mikilsverðu nýjung í ísl. tryggingum. ÁBYRGÐ H.F. — TRYGGINGAFÉLAG FYRIR BINDINDISMENN — Skúlagötu 63 — Reykjavík — Símar: 17455 og 17947.

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.