Samtíðin - 01.11.1970, Blaðsíða 31

Samtíðin - 01.11.1970, Blaðsíða 31
SAMTÍÐIN 27 Átthagabók HALLDÓRS LAXNESS HALLDÓR LAXNESS hefur oftast komið íslenzkum lesendum á óvart, þegar hann hef- ur sent frá sér bók. Eftir Kristnihald undir Jökli hafa víst ýmsir búizt við annarri furðu, en fá þá í staðinn kyrrláta frásögn um Mos- fellskirkju í Mosfellssveit og nokkur sóknar- börn hennar i nálægri fortíð, hálfgert fræði- rit, en ístráð skáldlegum skemmtilegheitum. Bókin nefnist Innansveitarkronika, útgefandi Helgafell, 182 bls. Mætti hugsa sér, að íiöf- undur hafi skrifað hana af ræktarsemi við átthaga sína. Þessi minningabók „um týnda smámuni í MosfelIssveit“, eins og höf. kemst að orði, leynir ótrúlega á sér. Áður en varir, er þarna komin íslandskronika, þjóðlífslýsing. Hver kannast ekki við þessa staðreynd frá byrj- un aldarinnar: „Bæirnir voru úr torfi nema einstöku hafði gestastofu kalda þar sem gestir voru látnir sitja þángaðtil sló að þeim. Alstaðar var sofið í bastofu, oft á bálkum“ (bls. 18). — Eða við þennan algilda hugs- unarhátt íslenzkra sveitamanna: „Þeir spurðu frétta af sauðfé hvaðanæva af landinu, því alt líf í landinu var einsog þann dag í dag miðað við sauðfé. Til dæmis þegar talað var um veður þá var það eitt sjónarmið ráðandi hversu það mætti henta sauðfé. Gott veður var það veður sem var gott fyrir sauðfé. Gott ár var það þegar óx gras handa sauðfé. Fallegt landslag á íslandi þykir þar sem góð beit er handa sauðfé. Afkoma og sjónar- mið manna í lífinu voru ákvörðuð af þessari skepnu“. (bls. 26). Lýsingin á því, hvernig snillingar leystu hey fyrr á tíð, verður í meðferð Halldórs si- gild frásögn: „Talið var að einginn maður leysti hey úr garði af siíkri snild og Bogi á Hrísbrú. Á veturna var hann að dunda við að jafna stráin í heystálinu hjá sér mik- inn hluta sólarhrings. Hann gerði öll horn afslepp á stabbanum, svo hvergi varð brún. Oft leysti hann stabbann neðanfrá og upp- eftir svo rekjur mynduðust ekki við jarð- botninn, og þegar á leið vetur var stálið hjá honum orðið í laginu einsog skál á valtri stétt, og seinast líkt staupi á fæti; en aldrei raskaðist burðjrþolið í stabbanum. Iðulega var komið að Boga þar sem hann var að fulhnúa stálið einsog maður strýkur sér um kjammana til að finna hvort hann sé nógu vel rakaður. Margir komu í garðinn að berja þetta listaverk augum“. (bls. 28). Þannig streymir frásögn þessarar bókar fram lygn og dýpri en varir með ferskum skáldskaparvinjum á víð og dreif um fróð- leikinn, m. a. 4. kapítula um sálina og kör- ina og 18. kapítula, þar sem segir frá því, er Stefán litli Þorláksson kom næturgestur að Hrísbrú á leið norður í land, en gisti þar í 20 ár og gerðist síðan sá höfðingi dals- ins, að hann kostaði endurreisn Mosfells- kirkju. Innansveitarkronika er að sögn skrifuð með hliðsjón af minningabókastíl. En um harla margt er þessi bók ólík ísl. minningabókum, þótt ekki sé að öðru en málfari, stíl og per- sónusköpun. Ein er sú persóna Kronikunnar, sem hefur af því höfuðstyrk sinn, að lesandinn fær ekki að sjá hana, heldur leyfist honum aðeins að öðlast hugboð um áhrif hennar bak við rás viðburðanna á römmustu mann- gerð bókarinnar. Lausn á MARGT BÝR í ORÐUM á bls. 21: Prent, prenta, prentar, prati, par, pari, part, parti, partir, pera, peran, penta, pentari, pen, pena, penar, penari, renta, rentar, rein, reina, reinar, rar, rati, ratir, rani, rart, rit, rita, rit- ar, ritan, er, ert, erta, ertan, erti, ertin, ertni, ertnir, eta, eti, etin, etir, ein, eina, einar, eir, eira, eirar, err, erra, erri, errin, Erp, Erpi, ern, erni, ernir, erna, enti, entir, net, neta, neti, nei, neita, neitar, nari, narir, nart, narti, nartir, nit, nita, nitar, te, tei, tein, teina, teinar, terri, tepra, trein, treina, tin, tina, tinar, trani, tranir, tap, tapi, tapir, api, apir, at, ati, atir, ar, ari, art, arti, artir, arin, arni, in, irr. „Hvernig stendur á því, aö þú ert sí~ fullur ?“ „Af því ég er sí-þyrstur!“

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.