Fréttablaðið - 02.07.2010, Side 2

Fréttablaðið - 02.07.2010, Side 2
2 2. júlí 2010 FÖSTUDAGUR NÁTTÚRA Mikill öskubylur var undir Eyja- fjöllum í gær. Ekkert hafði rignt um daginn og fóru vindhviður yfir 40 metra á sekúndu. Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri, segir ekki hafa verið mögulegt að vera utan- dyra þegar hviðurnar voru sem mestar og fokið hafi verið það mikið að skyggni hafi farið undir 300 metra, en vind hafi lægt undir kvöld. „Ástandið hefur ekki verið svona slæmt síðan í gosinu,“ segir Þorvaldur. „Svona þurrkar og vindar eru óvanalegir um hásum- ar. Þetta á eflaust eftir að angra okkur næstu árin.“ Ólafur segir myndugt rósasafn í garðinum á Þorvaldseyri vera farið fyrir bí og rósirnar séu berstrípaðar og tættar eins og að hausti. Öllum skepnum hefur verið haldið innandyra í allt sumar en Ólafur segir ekki hafa komið annað til greina. „Mér hefði ekki liðið vel að vita af kálf- unum úti í storminum,“ segir hann. „Það er sandur í grasrótinni og mikið svifryk sem sest á grasið í sól og hita og það er skemm- andi fyrir skepnurnar.“ Nýbúið var að sá í 35 hektara land við bæinn sem er nú mikið fokið upp í storminum. „Það stendur bara moldarmökkur upp úr tún- inu. Hér er ekki fallegt um að litast,“ segir Ólafur. - sv SKIPULAGSMÁL Kæru eigenda fjög- urra húsa í Mávanesi vegna bygg- ingar tæplega 800 fermetra ein- býlishúss við götuna hefur verið vísað frá úrskurðarnefnd skipu- lags- og byggingarmála. Félag í eigu Árna Haukssonar, fyrrverandi eiganda Húsasmiðj- unnar, keypti í ársbyrjun 2008 húsið í Mávanesi 17. Í frávísun úrskurðarnefndarinnar kemur fram að Árni hafi strax við kaupin haft í huga að rífa húsið og byggja nýtt í staðinn. Það hafi fyrri eig- andi einnig ætlað að gera. „Stærð lóðarinnar hafi hentað vel þar sem sjö væru í heimili og fyrir- sjáanlegt að húsið yrði nokkuð stórt þótt ekki væri það sjálfstætt markmið,“ segir nánar um þetta. Eldra húsið var byggt 1966. Það var 357 fermetrar á einni hæð en nýja húsið verður 786 fermetrar og tvílyft að hluta. Bæjarstjórn Garðabæjar staðfesti byggingar- leyfi fyrir húsinu í janúar á þessu ári. Nýtingarhlutfall lóðarinnar verður umtalsvert hærra en tíðk- ast í Mávanesi. „Kjallari er undir húsinu að vestanverðu sem opn- ast til vesturs enda gefur lands- lagshalli á lóðinni tilefni til þess,“ segir um málið í afgreiðslu bygg- ingarnefndar bæjarins sem telur húsið innan skilmála. Málið var kynnt fyrir næstu nágrönnum. Eigendur fjögurra annarra húsa sem standa fjær Mávanesi 17, húsanna númer 6, 13, 22 og 24 kærðu hins vegar byggingarleyfið. Húsið sé alltof stórt. Það eyðileggi götumyndina, aðgengi að fjöru minnki og ónæði verði mikið af framkvæmdinni. „Það að opnað verði á að efna- menn, innlendir og erlendir, kaupi upp eldri hús, sem byggð hafi verið í samræmi við þær reglur sem gilt hafi og gildi enn á svæð- inu, rífi húsin, eyðileggi yfirbragð gatnanna og byggi síðan hús sem þverbrjóti byggingarskilmála og hækki nýtingarhlutfall lóða sem byggingaraðilar hafi haldið sig við, sé með öllu óásættanlegt,“ segir um málsrök nágrannanna í umfjöllun úrskurðarnefndarinn- ar sem kvað húsið falla vel að lóð og götumynd og ekki breyta yfir- bragði hverfisins að neinu marki. Kærunni væri vísað frá þar sem kærendurnir ættu ekki lög- varða hagsmuni í málinu. Bygg- ingin myndi ekki hafa veruleg áhrif á útsýni frá húsum þeirra. „Verða nágrannar jafnframt að þola tímabundið rask og ónæði sem mannvirkjagerðinni fylgir,“ segir úrskurðarnefndin. gar@frettabladid.is Kjallari er undir hús- inu að vestanverðu sem opnast til vesturs enda gefur landslagshalli á lóðinni tilefni til þess.” BYGGINGARNEFND GARÐABÆJAR „Steinn, ertu ekki að taka full djúpt í árinni?“ „Nei, því eins og málshátturinn segir, botnlaust djúp er bágt að kanna.“ Steinn Kárason er tónlistarmaður sem gaf nýlega út fyrstu plötu sína Steinn úr djúp- inu. Í viðtali í Fréttablaðinu í gær sagði Steinn að platan væri mjög persónuleg og textarnir ristu djúpt í sitt sálarlíf. ÍTALÍA Fimm Íslendingar sem handteknir voru í Mílanó á Ítalíu aðfaranótt miðvikudagsins fyrir drykkjulæti og eignaspjöll, kváðust undrandi á hand- tökunni, þegar lögregla hafði hendur í hári þeirra. Þetta kemur fram á fréttasíðunni Milano Cronaca, þar sem segir að fimm ungir menn hafi breytt einni af götum borgarinnar í sinn eigin skemmtigarð. Þar stukku þeir upp á bíla og milli bílþaka og mynduðu hver annan í ólátunum. Þeim hafði tekist að valda skemmdum á nokkrum bílum, auk þess sem hermt er að þeir hafi líka skemmt nokkur vélhjól, þegar ítölsku lögregluna bar að sem handtók þá og færði á lögreglustöð. Þar voru þeir ákærðir fyrir eignaspjöll. Spurðir hvað þeim hefði gengið til kváðust þeir hafa verið að „skemmta sér“. Að því er fram kemur á fréttasíðunni eru mennirn- ir á aldrinum 23 til 25 ára, þrír háskólanemar, einn viðskiptafræðingur og einn jarðfræðingur. Þeir voru í fríi á Ítalíu. Fréttablaðið freistaði þess að ná tali af þremur hinna meintu ólátaseggja. Ýmist höfðu farsíma- númer þeirra verið aftengd eða símsvarar tóku við skilaboðum sem ekki var svarað áður en blaðið fór í prentun. - jss NÓTT Í MÍLANÓ Ein myndanna af atvikinu sem birtust á frétta- síðunni Milano Cronaca. Góðglaðir, ungir Íslendingar voru hissa á afskiptum ítölsku lögreglunnar: Íslendingar sakaðir um drykkju- læti og eignapjöll í Mílanóborg Nágrannar sætti sig við tvöföldun á húsi Eigandi Mávaness 17 má byggja þar helmingi stærra hús en áður stóð á lóðinni. Íbúar fjögurra húsa í götunni kærðu byggingarleyfið en úrskurðarnefnd segir nýja húsið litlu breyta fyrir þá og að þeir eigi ekki lögvarða hagsmuni í málinu. MÁVANES 17 Hjónin Árni Hauksson og Inga Lind Karlsdóttir keyptu Mávanes 17 og eru að byggja 786 fermetra einbýlishús í stað meira en tvöfalt minna húss sem áður stóð á lóðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR ÖSKUFOK YFIR ÞORVALDSEYRI Öllum skepnum var haldið innandyra í gær. Nýbúið var að sá í land við bæinn en í gær stóð bara moldarmökkur upp úr tún- inu. MYND ÓLAFUR EGGERTSSON MENNING Munnharpa Davíðs Stef- ánssonar frá Fagraskógi rataði heim í Davíðshús á Akureyri í vikunni, eftir að hafa verið löngu talin glötuð. Jón B. Guðlaugsson kom fær- andi hendi á miðvikudag með slitna munnhörpu sem Davíð átti forðum daga en hana hafði Árni Kristjánsson, fyrrverandi tón- listarstjóri Ríkisútvarpsins, gefið Jóni seint á síðustu öld. Árni og Davíð voru miklir vinir og í bókinni Endurminningar sam- ferðamanna skrifaði Árni kafla um Davíð vin sinn og nefnir þar meðal annars að hann hafi orðið vitni að því að skáldið kunni lista- vel að spila á munnhörpu. - sv Hljóðfæri Davíðs Stefánssonar: Rataði aftur í hús skáldsins DAVÍÐSHÚS Skáldið kunni listavel að spila á munnhörpuna. Maðurinn sem lést í vinnuslysi í járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga hét Óskar Stefánsson. Óskar var þrítugur að aldri, fæddur 3. ágúst 1979. Hann var búsettur í Grafarholti í Reykjavík. Hann lætur eftir sig dóttur. Nafn manns- ins sem lést SPURNING DAGSINS SLYS Maður á sjötugsaldri slasað- ist alvarlega þegar grafa valt út í Sandá í Þistilfirði í gær. Talið er að hjólaskófla hafi rekist í brúar- rið og valt grafan eina og hálfa veltu niður bratta brekku og lá maðurinn fastur með fótinn undir hjólaskóflunni í straumharðri ánni í 40 mínútur. Þegar björgunarsveitir mættu á staðinn var maðurinn mjög kaldur og aðeins höfuð hans stóð upp úr ánni. Hann hafði misst mikið blóð og var fluttur með sjúkraflugi til Akureyrar. Ekki er vitað um til- drög slyssins að svo stöddu. - sv Grafa valt niður í Sandá: Gat sig hvergi hreyft í ánni Bóndinn á Þorvaldseyri segir ástand gróðurs slæmt eftir öskubylinn í gær og að myndugt rósasafn sé fyrir bí: Segir öskufokið það versta síðan í gosinu TEXAS, AP Búist er við að olíu- hreinsunarstarf við Mexíkóflóa tefjist um allt að hálfan mánuð vegna fellibylja, sem eru að fara yfir svæðið. Fellibyljatímabil- ið er að hefjast og stendur það fram til nóvemberloka. Veður- fræðingar í Bandaríkjunum óttast að fellibylirnir í ár verði með þeim verstu sem sést hafi. Fellibylurinn Alex fór yfir Mexíkóflóa í gær og olli nokkru tjóni í strandbæjum. Hann fór þó ekki jafn nálægt hreinsunar- svæði við flóann og óttast var. Undir kvöld í gær bráði af Alex og var hann þá orðinn að hitabeltisstormi. - jab Mjög dró úr veðurofsa Alex: Olli tjóni við ströndina FALLIÐ HÚS Fellibylurinn Alex fór ekki jafn nálægt olíuleka BP í Mexíkóflóa og óttast var í gær. Hann olli nokkru tjóni á húsum við ströndina. FRÉTTABLAÐIÐ/AP

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.