Fréttablaðið - 02.07.2010, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 02.07.2010, Blaðsíða 22
2 föstudagur 2. júlí núna ✽ klæðist eins og gyðjur augnablikið Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Valgarður Gíslason Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@365.is sími 512 5432 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 DARRI INGÓLFSSON LEIKARI Það verður farið í sund, útiklefann og gufu. Lambalæri snætt með fjöl- skyldunni. Ætli maður kíki ekki líka smá í bæinn til að skoða mannlífs- flóruna. Á sunnudaginn er svo Vinkonudeit á Á næstu grösum. 4ra rétta tilboðsseðill Verð aðeins 7.290 kr. Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207 Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is Hringdu í síma ef blaðið berst ekki Með meistara Eno Ástralski tónlistarmaðurinn Ben Frost hlaut nýverið Rolex-verð- launin. Að verðlaunum fær Ben að starfa undir handleiðslu tónlistarmannsins Brian Eno næsta árið auk þess sem hann hlýtur peningaverð- laun. Brian Eno er orðinn goðsögn innan tónlistarheimsins en hann hóf feril sinn með hljómsveitinni Roxy Music og hefur unnið með tónlistarmönnum á borð við David Bowie, U2, Cindy Lauper, Cold- play og Grace Jones. Klingenberg í Forynju Á laugardaginn verður Sigríð- ur Klingenberg að vinna í For- ynju á Laugavegi 12. Sigríður mun afgreiða gesti og gangandi milli 13 og 15 og það er um að gera að nýta sér tækifær- ið að fá Siggu til að klæða þig upp. Veig- ar verða í boði og stemningu lofað í búðinni. Stuð á Sódómu Hljómsveitirnar Mínus og Agent Fresco leika saman á tónleika- staðnum Sódómu annað kvöld. Sveitirnar eru báðar að vinna að nýjum breiðskífum og munu því tónleikagestir fá að heyra það allra nýjasta í bland við eldra efni. Mínus hefur þótt eitt besta rokkband landsins og því ættu rokkglaðir borgarbúar að geta slammað saman í góðum gír við nýtt efni frá sveitinni. F atahönnuðurinn Una Hlín Kristjánsdóttir hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir hönnun sína, Royal Extreme, og hefur meðal annars hlot- ið nokkra umfjöllun í erlendum tískutímaritum og bloggum. „Þetta hefur gengið vonum framar. Í ágúst ætla ég að opna Royal Extreme verslun á Lauga- veginum, en mig er búið að dreyma lengi um að opna búð og skapa þannig heilsteypta umgjörð í kringum merkið. Mér var einnig boðið að taka þátt í tískuvikunni í Kaupmannahöfn þann 14. ágúst ásamt fimm öðrum íslenskum hönnuðum.“ Una Hlín heldur utan til Indlands í næstu viku þar sem hún mun fylgja nýrri línu eftir í framleiðslu. Að- spurð segist hún meðal annars hafa sótt innblástur að línunni til frumbyggja Ástralíu og íslenskrar götu- tísku. „Næsta lína inniheldur sextíu hluti og má þar á meðal nefna fatnað, yfirhafnir, fylgihluti, tvær teg- undir af skóm ásamt ýmsu öðru. Ég dvel á Indlandi í þrjár vikur og vinn að næstu línu en ég ætla mér líka að skoða verksmiðjurnar því ég vil ég vera fullviss um að þar sé allt eins og það á að vera,“ útskýrir hún. Una Hlín hefur fengið mikla umfjöllun í erlend- um tískubloggum og tímaritum undanfarna mánuði auk þess sem hönnun hennar birtist í erlendri sjón- varpsauglýsingu fyrir Ford bílaframleiðandann. „Ég held ég geti þakkað Reykjavík Fashion Festival svo- lítið fyrir þá umfjöllun sem ég hef fengið. Ég fékk til að mynda góða dóma í tískutímaritinu Dazeen og út frá því fóru fréttir um Royal Extreme að berast áfram um netheiminn. Þetta er eins og hálfgerður köngu- lóarvefur, þetta breiðist svo hratt út. Síðast þegar ég sló Royal Extreme inn í leitarvél á Netinu þá komu upp um fimm þúsund niðurstöður,“ segir Una Hlín sem er að vonum ánægð með móttökurnar. „Þetta er náttúrulega alveg frábært og það er líka svo ótrú- lega gaman að fá tækifæri til að gera þetta fyrir sjálf- an sig.“ Heimasíða Royal Extreme er www.beroyalex- treme.com. - sm Fatahönnuðurinn Una Hlín Kristjánsdóttir sýnir á tískuviku í Kaupmannahöfn: Konungleg fatalína slær í gegn Efnileg Una Hlín Kristjánsdóttir þykir einn efnilegasti hönnuður landsins í dag og hefur hönnun hennar slegið rækilega í gegn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON STÓRA RASSABÓKIN Klámmynda- leikkonan Alexis Texas stillir sér upp á viðeigandi hátt í sameiginlegu út- gáfuteiti Taschen-útgáfunnar og Play- boy, í tilefni af útgáfu stóru rassabók- arinnar, „The Big Butt Book“. Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, eig-andi Gyðju Collection, vinnur nú að hönnun nýrrar fylgihluta- línu undir nýju nafni, sérstak- lega fyrir Hagkaup. Stefnt er að því að línan komi í verslanir Hag- kaupa í mars 2011 og verði til sölu í takmarkaðan tíma og upplagi. Hún mun samanstanda af skóm, töskum og beltum. Í nýju línunni verður notast við leðurlíki og því miðað við annan markhóp en Gyðja Collection, sem eingöngu er gerð úr hágæðaefn- um. Hún verður með klassískara útliti en Gyðja, þótt handbragð Sigrúnar Lilju muni glögglega sjást. „Við stefnum að sjálfsögðu að því að gæðin verði góð, og ég mun leggja mikið upp úr því að sniðin séu þægileg og hallinn rétt- ur fyrir fætur,“ segir Sigrún Lilja, hæstánægð með samstarfið. Með samstarfinu við Hagkaup fetar Sigrún Lilja í fótspor þekktra erlendra hönnuða, en til að mynda hefur verslunarkeðjan Target feng- ið Jean Paul Gaultier til að hanna línur fyrir verslunarkeðjuna undir sínu nafni, innblásnar af hátísku en á góðum kjörum. - hhs Ný fylgihlutalína frá Sigrúnu Lilju Guðjónsdóttur: Gyðja hannar fyrir Hagkaup Sigrún Lilja Nýja línan hennar kemur í verslun Hagkaupa í mars á næsta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN þetta HELST helgin MÍN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.