Fréttablaðið - 02.07.2010, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 02.07.2010, Blaðsíða 26
6 föstudagur 2. júlí tíðin ✽ bland í poka ✽ Ómissandi 1 2 Feit med mo eli s 3 4 SVALT OG SEFANDI Ef þú ert stundum þrútin undir augunum er All About Eyes Serum frá Clinique ef til vill eitthvað fyrir þig. Svöl stálkúlan hjálpar til við að eyða bólgu og baugum undir augunum með léttu nuddi. S amkvæmt þeim línum sem lagðar voru á tískupöllunum síð- asta haust eiga menn að vera óhræddir við að blanda saman doppum, röndum og öðrum skemmtilega mynstruð- um flíkum. Stíllinn minnir svo- lítið á þann sem fólk klæddist á tíunda áratug síðustu aldar, litaglaður og skrautlegur. MYNSTUR RÆÐUR RÍKJUM Í SUMAR: RENDUR & DOPPUR Flott Blómamynstrað pils við köfl- ótta stuttermaskyrtu frá meistara Marc Jacobs. NORDICPHOTOS/GETTY Hringrás tískunnar Flottar buxur frá Marc by Marc Jakobs í anda tíunda áratugarins. Gula peysan er líka sérlega sumarleg. NORDICPHOTOS/GETTY Mikið mynstur Hér hefur Dries Van Noten blandað saman mismunandi mynstrum sem mynda eina skemmtilega heild. NORDICPHOTOS/GETTY Hálfur jakki Litríkar buxur og röndóttur jakki, þótt aðeins hálfur sé, frá vorlínu Dries Van Noten. NORDICPHOTOS/GETTY Sumarlegt og flott Æðislegur toppur og léttar buxur frá Marc by Marc Jacobs. NORDICPHOTOS/GETTY Hjólabuxur og leggings Fyrirsæta klæðist skemmtilegum flíkum úr vorlínu Commes des garcons. NORDICPHOTOS/GETTY F atahönnuðurinn Hulda Dröfn Atladóttir hannar flíkur og skart undir heitinu Skugga Donna. Hún útskrifað- ist frá Fatahönnunardeild LHÍ síðasta vor og hefur að eigin sögn hannað af miklum móð frá því í sumarbyrjun. „Ég snéri mér alfarið að hönnun núna í byrjun sum- ars og er bara í því þessa dag- ana. Ég hanna fyrst og fremst kjóla og aðrar flíkur en er að- eins byrjuð að hanna fylgihluti líka. Eins og er reyni ég bara að spila þetta svolítið fingrum fram,“ útskýrir Hulda Dröfn. Aðspurð segir Hulda Dröfn að mikil gróska sé í íslenskri fatahönnun um þessar mund- ir og finnur hún fyrir mikl- um áhuga á íslenskri hönnun bæði frá Íslendingum sjálfum svo og erlendum ferðamönn- um. Hönnun Huldu Drafnar fæst í versluninni Collective of Young Designers sem stað- sett er við Laugaveg 21. - sm Hulda Dröfn Atladóttir hannar kjóla og skart: Af fingrum fram Skugga Donna Hulda Dröfn Atladótt- ir hannar undir heitinu Skugga Donna. Hún segir mikla grósku í íslenskri fata- hönnun í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Nú þegar líður að lokum HM í fótbolta er nauðsyn- legt að taka sér tíma til að sjá þá leiki sem eftir eru. Úrslitin nálgast og spenn- an eykst. Eftir áhorfið er svo hægt að smala vinunum saman í léttan fótbolta- leik úti á túni til að hlaupa af sér bjór- vömbina. Við Íslendingar erum svo heppnir að eiga nóg af náttúrulegum laugum sem finna má hvarvetna á landinu. Næst þegar ekið er út á land er um að gera að finna sér eina slíka til að svamla í því það er fátt betra en að baða sig úti í guðs grænni náttúr- unni. Ís í brauð- formi, ís í boxi og aðrir ísréttir smakk- ast sjaldan betur en í sum- arhitanum. Því ekki að skreppa í léttan göngutúr út í næstu ísbúð og gera vel við sig? Stundvísi er mikill kostur og ættu allir að temja sér þann kost. Það er aldrei gaman að þurfa að bíða eftir einhverj- um sem er seinn á ferð, þó auðvitað komi það fyrir besta fólk endrum og sinnum að verða seinn fyrir. Hafðu kennarann í hendi þér! Æfingakylfur, sem leiðrétta sveifluna á örskömmum tíma Eftir að hafa æft með þessum kylfum snarfækkar höggum á hverjum hring... Komdu við hjá okkur og kynntu þér málið Helluhraun 22 - 220 Hafnarfirði Sími 555 2585 - www.irobot.is Driver, 5 og 7 járn fyrir rétthenta sem örvhenta Hraðamælar, fyrir þá sem vilja jafna sveifluna Allt sem þú þarft… Auglýsingasími

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.