Fréttablaðið - 02.07.2010, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 02.07.2010, Blaðsíða 19
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 FUGLAVERND og Ferðafélag barnanna verða með fuglaskoðunar- ferð í Gróttu á morgun þar sem áhersla er lögð á að skoða, telja og teikna fugla. Mæting við bílastæði út við Gróttu klukkan 10. 1/2 bolli smjör 1 bolli sykur 2 egg 1 tsk. lyftiduft 1/8 tsk. salt 2 tsk. rifinn sítrónubörkur 1/2 til 3/4 bolli mjólk 1,5 bolli bláber, helst frosin Yfir kökuna 4 msk. sítrónusafi 4 msk. sykur Aðferð: Þeytið egg og sykur þar til það er orðið létt og ljóst. Bætið eggjunum við einu í einu og þeytið vel á milli. Bætið hveiti, lyftidufti, salti og rifn- um sítrónuberki út í ásamt 1/2 bolla af mjólk. Bætið aðeins meiri mjólk í ef þetta virðist vera of þykkt. Blandið bláberjunum varlega við með sleif. Sett í formkökuform og bakað við 185°C í 50 til 70 mínútur. Um leið og kakan kemur úr ofninum stingið þá í hana með prjóni og hellið sítrónu og sykurblöndunni yfir. SÍTRÓNUFORMKAKA MEÐ BLÁBERJUM 10-12 sneiðar „Ég átti alltaf svo mikið af blá- berjum sem ég vissi ekki hvað ég ætti að gera við. Þannig að ég gúgglaði uppskrift að sítrónu- köku og bætti bláberjum við. Mér finnst sítróna og bláber svo rosa- lega góð saman,“ segir Ragna Björg Ársælsdóttir, hjúkrunar- fræðingur og matarbloggari, sem gefur uppskrift að sítrónuform- köku með bláberjum. Ragna breytir oft uppskriftum og gerir að sínum. „Ég held ég geri það eiginlega alltaf. Ég er með miklar skoðanir á því hvað á að fara í matinn og breyti upp- skriftunum því aðeins.“ Ragna hefur mikinn áhuga á matargerð og bakstri. Fyrir nokkrum árum bjó hún til mat- reiðslubók sem hún gaf vinkon- um sínum í jólagjöf. „Ég á fullt af vinkonum sem eru nýkomn- ar í fyrsta eldhúsið sitt og ég gaf þeim uppskriftabók þar sem leið- beiningar voru settar fram skref fyrir skref. Svo komst ég að því um daginn að þær eru enn þá að nota bókina.“ Nú fær Ragna útrás fyrir matreiðsluáhugann á bloggi sínu á síðunni www.ragna.is þar sem hún hóf nýlega að blogga um mat. martaf@frettabladid.is Breytir oft uppskriftum Ragna Björg Ársælsdóttir, nýúskrifaður hjúkrunarfræðingur, hóf fyrir stuttu að blogga um mat. Hún hefur alla tíð haft áhuga á matargerð og hjálpaði móður sinni, sem er lærður kokkur, í eldhúsinu sem barn. Ragna Björg bjó til uppskriftabók handa vinkonum sínum fyrir um sjö árum sem enn er í notkun. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207 Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is 4ra rétta Góð tækifæ risgjöf! Kryddlegin bleikja með rússneskri pönnuköku, dillrjóma og piparrótarsósu Humarsúpa rjómalöguð, með Madeira og grilluðum humarhölum Fiskur dagsins það ferskasta hverju sinni; útfærður af matreiðslumönnum Perlunnar *** eða / Or *** Lambatvenna með steinseljurótarmauki, aspas, rófu, soðkartöflu og basil-myntu gljáa Kókoshnetu Tapioca með steiktu mangói og lychee sorbet Verð aðeins 7.290 kr. tilboðsseðill Hringdu í síma ef blaðið berst ekki

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.