Fréttablaðið - 02.07.2010, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 02.07.2010, Blaðsíða 8
8 2. júlí 2010 FÖSTUDAGUR Auglýsingasími Allt sem þú þarft… BANDARÍKIN Níu bandarískum vef- síðum sem buðu upp á ólöglegt nið- urhal á kvikmyndum var lokað í gær. Síðurnar höfðu sumar boðið upp á niðurhal á glænýjum mynd- um eins og Toy Story 3 og Iron Man 2 innan sólarhrings frá því að þær voru frumsýndar. Lokun síðnanna er stærsta aðgerð sinnar tegundar og liður í stórum aðgerðum bandarískra stjórnvalda til að stemma stigu við ólöglegu nið- urhali á sjónvarpsefni, kvikmynd- um og tónlist. Samanlagt heimsóttu 6,7 milljónir manna heimasíðurnar níu í hverjum mánuði. Auk þess sem síðunum var lokað voru eignir á fimmtán banka- og fjárfestingareikningum gerðar upp- tækar og húsleitir gerðar í Norður- Karólínu, New York, New Jersey og Washington. Rannsókn lögreglunn- ar fór fram í ellefu ríkjum og einn- ig í Hollandi. Rúmlega 100 manns unnu að rannsókninni. Aðgerðin í gær er sú fyrsta sinn- ar tegundar, en hingað til hefur sjónum mest verið beint að ólög- legum DVD-diskum. Nú var í fyrsta sinn ráðist af fullum krafti á heimasíður sem bjóða ólöglegt niðurhal og græða ýmist á sölu auglýsinga eða frjálsum framlög- um. Nú stendur aðeins á síðunum níu að þeim hafi verið lokað af yfirvöldum. John Morton, yfirmaður inn- flytjenda- og tollastofnunarinn- ar ICE, sagði málið upphafið að löngu ferli þar sem reynt verði að ráða niðurlögum ólöglegra niður- halssíðna. Hann sagði jafnframt að hann vissi vel að það hefði ekki tekist með þessari einu aðgerð. „En ef einhver síða kemur upp aftur, þá komum við aftur.“ Stjórnvöld hafa sagst ætla að grípa til frekari aðgerða, mögu- lega með lögsóknum og fangelsis- dómum. thorunn@frettabladid.is Lokuðu ólög- legum síðum Bandarísk yfirvöld lokuðu í gær níu vefsíðum sem buðu upp á ólöglegt niðurhal á kvikmyndum og sjónvarpsefni. Stærsta aðgerð yfirvalda í þessum málum. 7,6 milljónir sóttu síðurnar á mánuði. TOY STORY 3 Teiknimyndin er meðal þeirra sem hafa verið í boði á ólöglegum niður- halssíðum, og var komin þangað nokkrum klukkustundum eftir að hún var frumsýnd í bíó. BRETLAND Breska ríkisstjórnin hefur lokið bóta- greiðslum til breskra togarasjómanna sem misstu atvinnuna í kjölfar þorskastríðanna við Íslendinga á áttunda áratugnum. Heildargreiðslur til hundr- aða sjómanna frá Aberdeen, Grimsby og Hull nema um 60 milljónum punda, eða rúmlega ellefu milljörðum króna. Þetta var tilkynnt í breska þinginu í gær af atvinnumálaráðherranum Ed Davey. Bótagreiðslu- kerfinu var komið á fót af stjórn Verkamanna- flokksins sem nýlega lét af völdum. Var því komið á eftir langa baráttu bresku sjómannasamtakanna fyrir því að sjómönnum yrði bættur atvinnumiss- irinn. Þess ber að geta að þá höfðu útgerðir fengið ríflegar bætur eftir að hluta breska togaraflotans var fargað vegna verkefnaleysis. Þingmaðurinn Frank Doran vakti hins vegar athygli á því á þinginu í gær að margt benti til þess að mistök í stjórnsýslu hefðu valdið því að hópur sjómanna hefði ekki fengið bætur eins og þeim ber. Þingmenn frá Hull og Grimsby vinna að athugun á því hvort ástæða sé til þess að bíða með að leggja kerfið af. Þegar liggja fyrir erindi frá 300 sjómönnum sem hafa farið fram á bætur en ekki fengið. Bætur til einstakra sjómanna geta numið allt að 20 þúsund pundum eða jafnvirði tæplega 3,8 milljóna króna. - shá Bresk yfirvöld hafa greitt um ellefu milljarða króna til sjómanna sem misstu vinnuna eftir þorskastríðin: Bótasjóði breskra togarasjómanna lokað ÞORSKASTRÍÐ Í ALGLEYMI Her- og varðskip fönguðu athyglina í þorskastríðunum. Fjölmargir sjómenn misstu atvinnu sína í kjölfarið. 1. Hvað heitir formaður stjórn- ar Ríkisútvarpsins? 2. Í hvaða væntanlegu kvik- mynd sækist Robin Williams eftir hlutverki aðalskúrksins? 3. Með hvaða handboltaliði mun Bjarni Fritzson spila á næsta tímabili? SVÖR Á SÍÐU 34 Kynntu þér frábæra kaupauka á ring.is Ring er ný farsímaþjónusta á vegum Símans. Fyrir 1.990 kr. áfyllingu á mánuði færðu 1500 mín/SMS á mánuði til að hafa samband við alla innan GSM kerfis Símans og 990 kr. inneign til að hringja í fólk í öðrum kerfum. www.facebook.com/ringjarar 50% afsláttur 50% af verði bíómiða fyrir Ringjara 5Ekki vera sökker! VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.