Fréttablaðið - 02.07.2010, Blaðsíða 6
6 2. júlí 2010 FÖSTUDAGUR
HAFFRÆÐI Undanfarin tíu ár hefur
svifþörungablómi verið mikill
hér við landið. Ástæðan er öflug-
ir hlýsjávarstraumar sem liggja
upp að landinu. Þörungablóminn
er skaðlaus lífríkinu með öllu og
hefur jákvæð áhrif á andrúms-
loftið.
Hafsteinn Guðfinnsson, sér-
fræðingur hjá Hafrannsókna-
stofnun, útskýrir að sunnan við
landið sé svæði þar sem mikið er
af kalksvifþörungum. „Þeir blóma
hérna fyrir sunnan okkur og svo
berst þetta hingað með straum-
um. Straumarnir liggja þannig að
þetta fyrirbæri er algengast fyrir
Vesturlandi. Hins vegar höfum við
fylgst með svona flekk fara með
öllu Vesturlandi og norður fyrir
Vestfirði.“ Hafsteinn segir að þau
skilyrði geti hins vegar myndast í
hafinu við Ísland að þessar plöntur
blóma. Slíkt fyrirbæri hafi komið
upp fyrir norðan land að sérfræð-
ingum Hafrannsóknastofnunar
aðsjáandi árið 2008.
Hafsteinn segir að þetta sam-
band á milli suðlægari hafsvæða
og þörungablómans hér við landið
hafi verið rakið með gervitungla-
myndum. „Þessar myndir eru
mjög fallegar. Ástæðan fyrir lit-
unum er að utan á frumunum eru
kalkplötur sem endurkasta geisl-
um og mála upp þessa fallegu
mynd.“
Þörungarnir binda mikið kolefni
og eru þess vegna mjög jákvæðir
fyrir andrúmsloft jarðar; þeir éta
í raun koltvísýring.
Kalkþörungablómi hefur ekkert
með eitrun kræklings að gera, eins
og halda mætti. Hins vegar nærist
kræklingur á annarri tegund þör-
unga, náttúrulegra eiturþörunga,
sem gera hold þeirra eitrað
mönnum hluta úr ári. Þessir þör-
ungar geta myndað blóma, en ekki
í slíku magni hér við land að það
sjáist litur af. Erlendis er það þó
ekki óalgengt. svavar@frettabladid.is
Svifþörungablómi í
hámarki við landið
Aðstæður í hafinu við Ísland valda því að þörungablómi sést greinilega á gervi-
hnattamyndum. Þetta fyrirbæri hefur verið árlegt hér við land í áratug og teng-
ist hlýsjávarstraumum. Þörungarnir éta koltvísýring og hreinsa andrúmsloftið.
KALKSVIFÞÖRUNGABLÓMI Kalksvifþörungar (coccolithophores) eru einfrumungar
eða plöntusvif af ættkvíslinni Haptophyla. MYND/NASA/GSFC, MODIS RAPID RESPONSE
fyrir
24002
Úrval vinsælla bóka á 2 fyrir 2400 tilboði
Gleðilegt sumarfrí!
Í þessari bók
kynnumst við lífs-
glöðum dreng sem er
til í allt, þó flest
mistakist. Frábær bók
fyrir alla sem nenna
ekki að lesa og
líka hina!
Jói Planki
segir sögur af
hafmeyjum,
draugum og mönn-
um sem breytast
í kolkrabba ...
LÖGREGLUMÁL Botn virðist fenginn í mál brjóstsykurs-
verksmiðjunnar sem hvarf í Hafnarfirði í fyrra-
sumar. Einungis tveimur dögum eftir að sælgætis-
gerðarmaðurinn Jóhannes G. Bjarnason sagði frá
hvarfi verksmiðju sinnar í Fréttablaðinu fyrir
tæpum þremur vikum hafði ungur maður samband
við hann og gat varpað nokkru ljósi á atburðarásina.
Ungi maðurinn, sem ekki vildi láta nafns síns
getið, sagðist hafa keypt gáminn sem verksmiðjan
var geymd í, ásamt öllu innihaldi hans, af eiganda
hússins sem gámurinn stóð við. Hann hafi einungis
viljað nota gáminn og því fargað innihaldinu,
þriggja milljóna króna brjóstsykursverksmiðjunni,
hjá gámaþjónustunni á Akranesi.
Jóhannes segist ekki hafa farið upp á Skaga til að
kanna hvort eitthvað finnist af verksmiðjunni, en
hann búist frekar við að hún sé orðin að brotajárni
og týnd.
Jóhannes hafði áður kært hvarfið til lögreglu sem
þjófnað en málið var látið niður falla eftir margra
mánaða árangurslausa rannsókn. Nú segist Jóhann-
es ætla að kæra málið á nýjan leik og vonast til þess
að fá skaðann bættan, að minnsta kosti að hluta. - sh
Sakbitinn kaupandi gaf sig fram í kjölfar umfjöllunar Fréttablaðsins:
Sælgætisverksmiðjunni fargað
VERKSMIÐJAN Brjóstsykursverksmiðjan hafði verið starfrækt
á Dalvík. Í henni var framleiddur svonefndur Bitmoli, sem
seldur var í krukkum.
ORKUVEITAN Fulltrúar minnihluta sjálfstæðismanna
og Vinstri grænna í borgarráði létu bóka á borgar-
ráðsfundi í gær að þeir teldu tímabundna ráðningu
Haraldar Flosa Tryggvasonar, starfandi stjórnar-
formanns Orkuveitu Reykjavíkur (OR), á skjön við
hefðir. Ráðning Haraldar var samþykkt á eigenda-
fundi OR í gær.
Borgarfulltrúar flokkanna segja það skjóta
skökku við að ráða stjórnarformann í fullt starf
með um milljón króna laun á mánuði á sama tíma
og OR þurfi að þola mikið aðhald og niðurskurð á
yfirvinnu og fríðindum vegna bágrar skuldastöðu.
Heildarkjör Haraldar miðast við kjör sviðsstjóra
hjá Reykjavíkurborg án fríðinda.
Í tilkynningu frá Heiðu Kristínu Helgadóttur,
aðstoðarmanni borgarstjóra, kom fram í gær að í
starfi stjórnarformanns OR fælist innleiðing á að
veganesti eigenda sé fylgt eftir. Ástæðan fyrir því
að Haraldur er í fullu starfi sé sú að reglubundin
verkefni hans verði fyrirsjáanlega umfangsmeiri á
næstunni en áður í sögu fyrirtækisins. - jab
FRÁ FUNDI BORGARRÁÐS Minnihlutinn í borginni gagnrýnir
skipun starfandi stjórnarformanns OR. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sjálfstæðismenn og VG draga lögmæti stjórnarformanns Orkuveitunnar í efa:
Vilja skoða skipun Haraldar
KÖNNUN Sextíu prósent þjóðarinn-
ar eru mótfallin aðild Íslands að
Evrópusambandinu. Rétt rúmur
fjórðungur er hlynntur aðild en
14 prósent óákveðin. Þetta kemur
fram í nýjasta þjóðarpúlsi Gallup.
Talsvert hefur dregið úr stuðn-
ingi við aðildarviðræður. Fyrir
einu og hálfu ári sögðust 64 pró-
sent styðja aðildarviðræður en
tæplega helmingi færri í febrúar.
Þetta kom fram í kvöldfréttum
RÚV. Þar sagði einnig að innan
við helmingur svarenda teldi sig
þekkja kosti og galla aðildar. - jab
Færri styðja ESB-aðild:
Fáir þekkja
kosti og galla
Eru tilmæli Seðlabankans og
Fjármálaeftirlitsins um vexti
vegna gengistryggðra lána
réttlát?
Já 25,3%
Nei 74,7%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Fylgdist þú með tónleikunum
Iceland Inspires í gær?
Segðu þína skoðun á visir.is
KJÖRKASSINN