Fréttablaðið - 02.07.2010, Blaðsíða 43

Fréttablaðið - 02.07.2010, Blaðsíða 43
FÖSTUDAGUR 2. júlí 2010 31 FÓTBOLTI Roy Hodgson var í gær ráðinn knattspyrnustjóri Liver- pool og skrifaði hann undir þriggja ára samning. Hann var áður stjóri Fulham og náði góðum árangri en tekur nú við af Rafael Benitez. Liverpool gekk illa á síðasta tímabili og Hodgson segist ætla að koma liðinu aftur í fremstu röð. „Efst á listanum er að ná betri árangri en á síðasta tímabili og koma liðinu aftur í Meistaradeild Evrópu,“ sagði Hodgson. Hann sagði enn fremur að það hefði aldrei komið til greina hjá sér að taka við þjálfun enska landsliðsins og að hann stefndi á að halda sterkustu leikmönnum Liverpool í félaginu. „Það er mitt markmið að sinna mínu starfi vel bæði fyrir félagið og fólkið í Liverpool,“ sagði Hodgson enn fremur. - esá Hodgson ráðinn til Liverpool: Kem liðinu aft- ur í fremstu röð ROY HODGSON Nýr knattspyrnustjóri Liverpool var ráðinn í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY FÓTBOLTI Gana getur komist á spjöld sögunnar með því að verða fyrsta Afríkuþjóðin til að komast í undanúrslit í heimsmeistara- keppni. Til þess þarf liðið að hafa betur gegn Úrúgvæ í fjórðungs- úrslitunum í kvöld. Úrúgvæ komst síðast í undan- úrslit á HM árið 1970 en liðið varð heimsmeistari árin 1930 og 1950. Úrúgvæ hefur enn ekki tapað leik á mótinu en liðið varð í efsta sæti A-riðils og sló út Suður-Kóreu í 16 liða úrslitunum. Gana er eina Afríkuliðið sem komst í útsláttarkeppnina og það er í annað skiptið í röð sem það gerist. Það hefur aldrei fyrr komist í fjórðungsúrslitin. Leikurinn hefst klukkan 18.30 í kvöld. - esá Úrúgvæ-Gana í kvöld: Söguleg stund fyrir Afríku? ASAMOAH GYAN Lykilmaður í landsliði Gana en hann hefur skorað sjö af ellefu mörkum liðsins á árinu. NORDIC PHOTOS/AFP FÓTBOLTI Við komum hing- að til að vinna – ekki spila fallegan fótbolta. Þetta má lesa úr orðum bæði Dunga og Berts van Mar- wijk sem mætast með lið sín í átta liða úrslitum HM í dag. Brasilía er í fyrsta sæti á styrkleikalista FIFA og Holland í því fjórða. „Við komum til að vinna, ef við getum spilað fallegan bolta í leiðinni er það bara fínt. En ég sagði líka þegar ég tók að mér þetta starf að við verðum líka að læra hvernig á að vinna ljótu leikina,“ sagði van Marwijk sem hefur úr öllum sínum leikmanna- hópi að skipa. Sömu sögu er ekki að segja af Dunga sem verður án Ramires, sem er í banni, Elano, sem er meiddur og þá er Felipe Melo tæpur. Þeir hafa allir spilað mikið og því er miðja Brasilíu þunn- skipuð þar sem Julio Baptista er einnig tæpur. Gilberto Silva byrj- ar og Kleberson, fyrrum leikmað- ur Manchester United, gæti fengið tækifærið eða Josue. Þetta verður fjórða viðureign Hollands og Brasilíu á HM, hvor þjóð hefur unnið einn leik og þau hafa gert eitt jafntefli. „Við vitum að það verða alltaf væntingar um að Brasilía vinni en að vera sigurstranglegastir hjálpar þér ekki að verða heimsmeistari,“ segir Dunga. „Sumir efuðust um að við myndum standa okkur að lokum en því lengra sem við kom- umst því meira eykst sjálfstraustið. Við vonumst til að komast alla leið í úrslitin, aðalat- riðið er að vinna, ekki hvernig við vinnum,“ sagði þjálfarinn. Leikurinn hefst klukk- an 14.00 í dag. - hþh Brasilía og Holland mætast í fyrsta stórleik átta liða úrslita HM í dag: Sigur en ekki fallegur fótbolti númer eitt BERT VAN MARWIJKDUNGA FÓTBOLTI Pele hefur enn og aftur gagnrýnt Diego Maradona. Nýj- asta árás Pele virðist vera til- hæfulaus og komi til að trufla Maradona í undirbúningi fyrir leikinn gegn Þýskalandi. Brasilíumaðurinn Pele sagði í síðasta mánuði að Maradona hefði bara tekið starfið að sér af því hann vantaði pening. Marad- ona svaraði með því að segja að Pele ætti heima á safni. „Hann er ekki góður þjálfari af því lífsstíll hans er undarlegur og það getur ekki gengið vel í leik- mannahópnum,“ sagði Pele sem vekur þó furðu þar sem leikmenn Argentínu virðast elska að spila fyrir Maradona. - hþh Pele um Maradona: Lélegur þjálfari VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 INNIHELDUR AUK STIGVAXANDI AFSLÁTTAR. 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000 SUMARMÓTIN LÍFLEGIR OG SKEMMTILEGIR ÞÆTTIR UM ÖLL HELSTU SUMARMÓT YNGRI FLOKKA Í FÓTBOLTA VEIÐIPERLUR ÓMISSANDI ÞÁTTUR FYRIR ALLA VEIÐIMENN ÞAÐ ER ÓDÝRARA AÐ SKEMMTA SÉR HEIMA FORMÚLA 1 SILVERSTONE, HOCKENHEIM OG BÚDAPEST PEPSI DEILDIN HÖRKULEIKIR Í BEINNI OG PEPSIMÖRKIN MEÐ MAGNÚSI GYLFA OG TÓMASI INGA GOLF EVRÓPUMÓTARÖÐIN PGA MÓTARÖÐIN HERMINATOR STÓRSTJÖRNURNAR MÆTA Á HERMINATOR GÓÐGERÐARMÓTIÐ Í GOLFI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.