Fréttablaðið - 02.07.2010, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 02.07.2010, Blaðsíða 38
26 2. júlí 2010 FÖSTUDAGUR BAKÞANKAR Brynhildar Björnsdóttur ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Um daginn var ég gestforeldri með dóttur minni í afmæli. Eins og þeir sem eignuðust börn sín að vetri til vita og öfundast endalaust út í er svo ein- falt að halda sumarafmælin úti í garði. Smala saman fullt af krökkum, baka flotta köku og hleypa börnunum svo laus- um í heilbrigðan leik úti í garði. Í þessu afmæli hafði meira að segja verið blásið til hoppikastala þar sem glaðlegur dreki gnæfði yfir gesti og veifaði. GESTIR voru alsælir, hlupu um, veltust af lífsins lyst sem er mikil þegar maður er fjögurra, fimm og sex ára og stukku hæð sína af og til á trampólíni sem var við hliðina á kastalanum. SVO VAR kallað undir tjald til kertablásturs og kökuneyslu. Og sem sú athöfn stóð sem hæst opnuðust himnarnir. OG ÉG meina bókstaflega. Ég hef aldrei séð eins ofboðslega mikið vatn streyma úr lofti á Íslandi, ekki einu sinni á sautjándu júníum bernsku minn- ar, það var einna helst að þrumuskúr í Afríku stæðist saman- burð. Afmælisgestir hikuðu smástund í skjóli tjalds en þóttust svo hafa himin höndum tekið (sem var alveg rétt, eða að minnsta kosti fundið hann seytla milli fingranna), óðu inn í vatnselginn í kastal- anum, skeyttu hvorki um spariföt né skó heldur hentu sér á kaf í kastalasíkið sem nú var innanveggja og svona tíu senti- metrar á dýpt eða dönsuðu regndansa við veðrið sjálft. Innan tíðar var smalað inn og hamflett, föt fundin á þá sem eru gegndrepa og haldið áfram að borða góm- sætar afmæliskökurnar, sem höfðu nú gengið í endurnýjun matarlystar og voru ekki nema pínulítið blautar. Íslensk börn kunna að vera til á íslensku sumri. VEÐUR er mér að skapi. Í útlöndum er oft ekkert skjól fyrir einhverri veður- leysu, slappsveittri velgju og vindsneyð. Hér heima á sumrin er oft sem betur fer almennilegt veður. Hægt að fara í regn- gallann sinn og stígvélin, brjótast á móti vindinum og finna hann lemja sig í andlit- ið, stappa í pollum, verða regnvot eða -ur, koma svo inn eða heim eða á áfangastað og finnast afrek hafa verið unnið, dáðir drýgðar og heitir drykkir og góður matur svo dæmalaust verðskulduð. Að vita að allra veðra er von og geta notið þess og hlakkað til, það er að vera Íslendingur. Í DAG og kvöld er gert ráð fyrir stormi. Lifið og njótið. Gert er ráð fyrir stormi Hvað er að þér? Verð á hlutabréfum hrynur um allan heim! Og? Áttu einhver hlutabréf? Nei! Ertu þess vegna að hlæja? Já! Til hamingju með afmælið! Nauhh! Keyptirðu líka gjöf handa mér? Þetta er æði! takk! Ég vona að kvittunin sé þarna einhvers staðar. Ég bjóst aldrei við að ég yrði spennt fyrir nýrri þvottavél og þurrkara, en ég er það samt. Ég líka. Flottur litur. Já. Snjóstormur er miklu flottari en gamli hvíti liturinn. Eigum við að prófa græjurnar? Ertu klikkaður? Ég set ekki þessi skítugu föt í nýju þvottavélina mína!

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.