Fréttablaðið - 02.07.2010, Side 4
4 2. júlí 2010 FÖSTUDAGUR
1 Fjármála-fyrirtæki hefja
innheimtuaðgerðir
á grundvelli tilmæla
Seðlabankans og
FME.
2Viðskipta-vinur neitar að borga
samkvæmt nýju
skilmálunum.
3 Fjármálafyr-irtækið stefnir viðskiptavin-
inum til greiðslu
skuldarinnar.
4Héraðsdóm-ur tekur málið fyrir og kveður
upp dóm um það
hvort leiðin sem yfir-
völd hafa markað er í
samræmi við lög.
5 Niðurstöð-unni er áfrýjað til Hæstaréttar
sem kveður upp
endanlegan dóm.
Leiðin að dómi Hæstaréttar
Ranglega var farið með nafn hátíðar-
innar Brú til Borgar í blaði gærdags-
ins. Það eru Hollvinir Grímsness sem
halda hátíðina og fer hún fram um
aðra helgi.
LEIÐRÉTTING
FRÉTTASKÝRING:
Hvernig ratar hin nýja leið yfirvalda
til að gera upp gengistryggð lán fyrir
Hæstarétt?
Hálft til eitt ár getur liðið þar til
héraðsdómur kemst að niðurstöðu
um það hvort leið yfirvalda til
að endurreikna ólögmæt gengis-
tryggð lán stenst lög, ef slíkt mál
hlýtur ekki sérstaka flýtimeð-
ferð. Þetta segja lögfræðingar sem
Fréttablaðið hefur rætt við.
Seðlabankinn og Fjármálaeft-
irlitið beindu á miðvikudag þeim
tilmælum til fjármálafyrirtækja
að endurreikna
lánin miðað
við hag-
stæð-
ustu vexti Seðlabankans á lánstím-
anum. Fjármálafyrirtækin lýstu
því mörg hver yfir þegar í gær
að þau hygðust fara að tilmælun-
um og hefja innheimtuaðgerðir á
nýjan leik.
Ljóst er að það mun koma til
kasta dómstóla að kveða upp úr
með það hvort þessi leið samræm-
ist lögum. Gylfi Magnússon, efna-
hags- og viðskiptaráðherra, sagði
í fyrradag að ríkisstjórnin hefði
heimildir fyrir því innan úr dóms-
kerfinu að slík niðurstaða úr hér-
aðsdómi kynni jafnvel að liggja
fyrir snemma á haustmánuðum.
Þeir lögfræðingar sem Frétta-
blaðið hefur rætt við telja það
mikla bjartsýni. Ef málið fái ekki
flýtimeðferð fyrir dómi sé nær
að miða við hálft til eitt ár, að því
gefnu að deiluaðilar leggi sig fram
um að flýta málinu og vera sam-
mála um staðreyndir, svo ekki
þurfi mikla
gagnaöflun og
vitnaleiðslur.
Þá á Hæsti-
réttur enn
eftir að taka
málið fyrir,
sem einnig getur tekið drjúgan
tíma.
Samkvæmt lögum um meðferð
einkamála getur aðili máls óskað
eftir flýtimeðferð ef málið er höfð-
að vegna athafna eða ákvörðunar
stjórnvalds og „brýn þörf er á skjótri
úrlausn, enda hafi hún almenna þýð-
ingu eða varði stórfellda hagsmuni
hans“. Ekki er hins vegar víst að
þetta ákvæði eigi við um málin sem
rísa munu vegna gengistryggingar-
innar. Samtök atvinnulífsins skor-
uðu í gær á stjórnvöld að beita sér
fyrir því að málin fái flýtimeðferð.
Ekki megi dragast lengur en tvo til
þrjá mánuði að fá niðurstöðu.
Til að málið endi að nýju fyrir
dómstólum þarf skuldari að neita
að greiða afborganir af láni sínu
samkvæmt hinni nýju reikniaðferð
Seðlabankans og FME. Fjármála-
fyrirtækið getur þá stefnt honum
til greiðslu skuldarinnar og það er
síðan dómstólsins að skera úr um
lögmæti skilmálanna.
Komist Hæstiréttur að því að leið
yfirvalda sé ólögmæt þarf að kokka
upp nýja reiknireglu og líklega að
láta einnig reyna á hana fyrir dómi.
stigur@frettabladid.is
Gæti tekið heilt ár
án flýtimeðferðar
Ef ágreiningur um uppgjör gengistryggðra lána fær ekki sérstaka flýtimeðferð
gæti liðið heilt ár þar til niðurstaða fæst um það í héraðsdómi hvort leið yfir-
valda samrýmist lögum. Lagaákvæði um flýtimeðferð á ekki endilega við.
VANDMEÐFARNIR
Óvissunni um upp-
gjör gengistryggðu
lánanna er enn ekki
lokið og gæti jafnvel
varað í vel á annað ár.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VERSLUN Forsvarsmenn Intersports
telja starfsfólk á afgreiðslukössum
verslunarinnar misnota aðstöðu
sína til að selja skyldmennum
sínum vörur með afslætti. Þetta
kemur fram í svari fyrirtækisins
til Persónuverndar.
Intersport hefur krafið við-
skiptavini sem kaupa vörur með
afslætti um að gefa upp kennitölu
til skráningar. Maður einn gerði
athugasemdir við þetta til Per-
sónuverndar sem leitaði skýringa
frá Intersporti. Fyrirtækið sagði
kennitöluskráninguna vera hluta
af „innra eftirlitskerfi“. Kassa-
kerfið leyfi aukaafslátt á kassa
vegna ýmissa mála.
„Sést hafði, þótt erfitt að færa
sönnur á það, að starfsfólk lét
skyldfólk njóta ákveðinna kjara
sem alla jafna hefðu ekki átt að
vera í boði. Því var brugðið á það
ráð að ekki væri hægt að veita
aukaafslátt á kassa nema með því
að skrá kennitölu viðkomandi við-
skiptamanns,“ segir í skýringum
Intersports.
Persónuvernd segir skráningu
kennitalnanna ekki hafa verið
vegna viðskipta við kvartandann
heldur í þágu eftirlits með starfs-
mönnum Intersports. „Niðurstað-
an var sú að skráningin hafi ekki
verið nauðsynleg vegna viðskipt-
anna og þar með ekki heimil,“
segir Persónuvernd. - gar
Bannað að skrá kennitölur viðskiptavina vegna kaupa á afsláttarvörum:
Intersport segir starfsfólk sitt svindla
INTERSPORT Fyrirtækið segir að sést
hafi til starfsmanna veita skyldmennum
afslátt sem þeir áttu ekki rétt á.
STJÓRNMÁL Sjálfstæðisflokkurinn
fengi mest fylgi ef kosið yrði til
Alþingis nú, samkvæmt könn-
un sem Miðlun ehf. vann fyrir
Morgunblaðið.
Könnunin var netkönnun sem
var unnin á netinu frá 11. til 28.
júní. Landsfundur Sjálfstæðis-
flokksins fór fram 25. og 26. júní.
Samkvæmt henni fengi Sjálf-
stæðisflokkurinn 34,6 prósent
atkvæða, Samfylkingin fengi 23,8
prósent og Vinstrihreyfingin -
grænt framboð fengi 21,5 prósent.
Framsóknarflokkurinn myndi fá
7,6 prósent atkvæða og Hreyfingin
5,9 prósent. - þeb
Könnun fyrir Morgunblaðið:
Sjálfstæðisflokk-
urinn stærstur
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
28°
31°
33°
25°
34°
31°
24°
24°
22°
24°
31°
25°
32°
22°
33°
19°
22°Á MORGUN
Strekkingur yst á V-fjörð-
um, annars hægari.
SUNNUDAGUR
Hæg breytileg átt víð-
ast hvar á landinu.
13 16
16
1311
16 17
12
1312
17
15
14
16 13
10
13
13
14
13
12
7
6
8
6 5
7
5
7
8
14
15
7
HELGIN
Það verður dálítil
væta á landinu um
helgina en vindur
verður fremur hæg-
ur víðast hvar og
veður milt. Heilt á
litið er veðurútlitið
best á Suðvestur-
og Vesturlandi þar
sem saman fara
minnst væta og
mest hlýindi.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
VIÐSKIPTI Heildarviðskipti með
hlutabréf námu 1.221 milljón
króna í síðasta mánuði. Það var
143 milljónum krónum minna en
í apríl, samkvæmt upplýsingum
Kauphallarinnar.
Viðskipti með hlutabréf Marels
og Össurar námu tæpum 85 pró-
sentum af heildarviðskiptum á
hlutabréfamarkaði.
Íslandsbanki var með næstum
þrjátíu prósenta hlutdeild á mark-
aðnum í júní. Á hæla bankans
komu Saga Capital, með 23,5 pró-
senta hlutdeild, og Landsbankinn,
með 10,4 prósent. Hlutdeild Saga
Capital á hlutabréfamarkaði nam
47,2 prósentum í lok júní. - jab
Minni viðskipti með hluta:
Marel og Össur
nær einráð
BYGGÐAMÁL Dagur B. Eggertsson,
formaður borgarráðs, segir að
engin ákvörðun hafi verið tekin í
borgarráði varðandi lækkun fast-
eignamats. Fundað verði um málið
í næstu viku.
Karl Björns-
son, fram-
kvæmdastjóri
Sambands
íslenskra sveit-
arfélaga, segir
misjafnt hvern-
ig sveitarfélög-
in hafa brugðist
við svona breyt-
ingum áður
með lækkun eða
hækkun álagningaskatta.
„Það er ekki hægt að útiloka
neitt,“ segir Karl. „Sveitarfélögin
verða hvert um sig að ákveða
hvernig bregðast eigi við
lækkuninni.“ - sv
Lækkun fasteignamats:
Engin ákvörð-
un tekin enn
VIÐSKIPTI Hlutabréfavelta dróst saman
milli mánaðanna maí og júní.
Segir upp á Landspítala
Hulda Gunnlaugsdóttir, forstjóri
Landspítalans, hefur sagt upp störf-
um. Hún var ráðin forstjóri spítalans
um miðjan október árið 2008 en fór
svo í ársleyfi í september árið eftir.
STJÓRNSÝSLA
DAGUR B.
EGGERTSSON
Ísólfur færir sig um set
Ísólfur Gylfi Pálmason, fyrrum þing-
maður, hefur tekið við starfi sveitar-
stjóra í Rangárþingi eystra. Ísólfur
var áður sveitarstjóri í Hrunamanna-
hreppi en við því starfi hefur tekið Jón
Valgeirsson lögfræðingur.
RANGARÞING EYSTRA
SAMFÉLAGSMÁL Göngugarpurinn
Vignir Arnarson er nú staddur
í Hellemobotni í Noregi. Vignir,
sem er 43 ára, hefur verið á
göngu síðan 27. júní en þá lagði
hann upp frá Bogsfirði. Göngu-
leið Vignis er um 500 kílómetr-
ar og ferðast hann án matar og
drykkjar. Slíkt mun ekki hafa
verið gert áður.
Á leiðinni safnar Vignir áheit-
um til styrktar barnastarfi
Blindrafélagsins. Vignir á unga
dóttur sem þjáist af ólæknandi
augnsjúkdómi. - sv
Gengur til góðs í Noregi:
Vigni miðar vel
í gönguferðinni
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
GENGIÐ 01.07.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
201,5954
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,87 127,47
189,64 190,56
156,36 157,24
20,99 21,112
19,497 19,611
16,338 16,434
1,4378 1,4462
187,8 188,92
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Glæsilegur sófi 174 sm ásamt hliðarborði, hentar
vel á pallinn, svalirnar eða sólstofuna.
Opið: Má. - Fö. 12 - 18
Lau. 11 - 15
Kauptúni 3 • 210 Garðabær • S 771 3800 • www.signature.is
Helgartilboð!
Knut útisófi með hliðarborði.
kr. 149.900
Listaverð
kr. 198.500