Fréttablaðið - 02.07.2010, Side 12
12 2. júlí 2010 FÖSTUDAGUR
Ár Laun Verð á skyri Fjöldi Verð á banana Fjöldi
2006 297.000 238 1.248 162 1.833
2007 303.000 236 1.284 159 1.906
2008 324.000 277 1.170 199 1.628
2009 334.000 283 1.180 273 1.223
2010 337.340 292 1.155 280 1.205
FRÉTTASKÝRING
Hefur íslenskt verðlag lagast?
Til að fá marktækan samanburð á
verði milli landa er nauðsynlegt að
hafa í huga kaupmátt íbúa þeirra
landa sem verið er að bera saman.
Í flestum ríkja þriðja heimsins eru
matvæli þannig ódýrari en þekkist á
Vesturlöndum. Það þýðir hins vegar
ekki að íbúar þriðja heims ríkja séu
betur settir því sem hlutfall af laun-
um þeirra eru matvæli dýrari en
Vesturlandabúar eiga að venjast.
Niðurstöður úr evrópskri könn-
un, sem gerð var vorið 2009, á verði
matvæla, áfengis og tóbaks í ýmsum
löndum Evrópu voru birtar í vik-
unni. Samkvæmt henni var verðlag
matvæla fjórum prósentum hærra
hér á landi en að meðaltali í ríkjum
Evrópusambandsins. Um er að ræða
mikla breytingu frá sambærilegri
könnun sem gerð var árið 2006 en
þá var verðlag hæst á Íslandi eða
61 prósenti hærra en að meðaltali í
Evrópusambandinu. En hvað þýðir
þetta? Borga Íslendingar minna
fyrir matvæli en áður eða eru aðrar
ástæður þarna að baki?
Skýringarnar á þessari breytingu
er aðallega að finna í gengisfalli
krónunnar en frá 1. apríl 2006 til 1.
apríl 2010 hækkaði gengisvísitala
krónunnar um 91 prósent sem þýðir
að virði hverrar krónu fór nærri því
að helmingast. Þessi gengisveiking
hefur valdið því að fyrir íslenskar
krónur fæst þeim mun minna af
vörum erlendis.
Samanburðurinn sem birtist í
evrópsku könnuninni er sá að borið
er saman verð á ákveðinni körfu af
vörum í löndunum í bandarískum
dollurum. Árið 2006 þurfti 161 doll-
ara til að kaupa vörur á Íslandi sem
kostuðu 100 dollara að meðaltali í
Evrópu en nú þarf einungis 104 doll-
ara. Því er einungis um verðlækkun
að ræða frá sjónarhóli útlendinga.
Lægra verð hér en áður borið saman
við Evrópulönd skýrist því af því að
verðmæti íslensku krónunnar hefur
hrunið. Um leið hafa laun Íslendinga
lækkað jafn mikið, og í sumum til-
fellum meira, í dollurum talið svo
hér er síður en svo um kjarabót að
ræða fyrir Íslendinga.
Á sama tímabili hefur kaupmáttur
launa innanlands, skilgreindur sem
laun umfram verðbólgu, dregist
saman um 9,1 prósent. Þetta þýðir
að fyrir laun í dag sem eru sam-
bærileg við laun í apríl 2006 fæst 9,1
prósenti minna af vörum. Auk þess
hafa skattahækkanir valdið því að
fólk hefur minna umleikis en þá, þó
launin séu sambærileg. Þó matvæla-
verð sé svipað og í Evrópu þá verja
Íslendingar hlutfallslega mun hærri
hluta af tekjum sínum í matvæli rétt
eins og áður. magnusl@frettabladid.is
Íslenskur almenningur hefur
orðið fyrir miklum búsifjum
Samanburður á verði milli landa segir lítið ef ekki er tekið tillit til ólíks kaupmáttar. Kaupmáttur hefur
dregist saman á undanförnum misserum en auk þess fæst minna en áður erlendis fyrir íslenskar krónur.
Einfaldur mælikvarði á kaupmátt launa er að velja
eina vöru og skoða verð hennar í samanburði við
laun á mismunandi tímum.
Fréttablaðið skoðaði verð á einu kílói af
skyri og einu kílói af banönum á árunum
2006 til 2010 á vef Hagstofunnar. Sé verð
borið saman við meðallaun kemur í ljós
að fyrir regluleg mánaðarlaun full-
vinnandi launamanns á almennum
vinnumarkaði mátti kaupa 1.248
kíló af skyri árið 2006 en
1.155 kíló árið 2010. Eins
var hægt að kaupa 1.833
kíló af banönum árið 2006
en 1.205 kíló árið 2010.
Hvað má kaupa fyrir mánaðarlaunin?
250
200
150
100
apríl ´06 apríl ´07 apríl ´08 apríl ´09 apríl ´10 júlí ´10
117,7
200,8
Gengisþróun krónunnar
Þróun kaupmáttar
120
115
110
105
100
95
apríl ´06 apríl ´07 apríl ´08 apríl ´09 apríl ´10 maí ´10
98,2
103,9
NORTHAMPTON Aska úr Eyjafjalla-
jökli gerði það að verkum að
krabbameinslæknir hjá ríkisspít-
alanum í Northampton í Eng-
landi tafðist erlendis í fríi og upp-
skurðum hjá spítalanum þurfti að
seinka töluvert.
Krabbameinssjúklingum fækk-
aði um níu prósent á þessu tíma-
bili, ekki vegna lækkunar í tíðni
krabbameins, heldur meðal ann-
ars vegna þess að þeir þurftu að
bíða svo lengi eftir greiningu og
meðferð sökum fjarveru lækna.
Stjórn spítalans er að vinna í mál-
inu og skipuleggja endurbætur.
- sv
Eyjafjallajökull stoppar lækna:
Tafir í krabba-
meinsmeðferð
EYJAFJALLAJÖKULL Gosið olli töfum í
flugi um heim allan. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SVALANDI Skógarbjörninn Janosch,
sem býr í dýragarðinum í Münster
í Þýskalandi, kældi sig niður í gær.
Hitinn mældist um 30 gráður í vestur-
hluta landsins í gær. NORDICPHOTOS/AFP
NEYTENDAMÁL Ráðgjafarstofunni
bárust alls 1.623 umsóknir árið
2009 og er það mesti fjöldi sem
stofunni hefur borist. Flestar
voru vegna greiðsluerfiðleika,
eða 1.184. Mikill meirihluti
þeirra sem sóttu um ráðgjöf er
búsettur á höfuðborgarsvæðinu,
eða 72 prósent.
Heildarskuld meðalumsækj-
anda á árinu 2009 nemur rúmum
31 milljón króna, sem er hækk-
un um 120 prósent frá árinu á
undan. Vanskil aukast um 99 pró-
sent á milli ára og eru bílalán það
sem vega mest. Aukning vanskila
þeirra lána á milli ára er 481
prósent. - sv
Vanskil aukast um 99 prósent:
Bílalán algeng-
ust í vanskilum
VIÐSKIPTI Iceland Express ætlar
að hefja flug til Orlando í Flór-
ída í október. Matthías Imsland,
forstjóri Iceland Express, segir
leiðina vera mjög vinsæla meðal
Íslendinga og gott svigrúm sé
fyrir samkeppni á markaðnum.
„Fólk er spennt fyrir því að
fá samkeppni á þessari leið,“
segir Matthías. „Þetta er stór
markaður og við verðum mjög
líklega mun ódýrari heldur en
samkeppnisaðilinn.“
Matthías segir einnig að flug
Iceland Express til Kanada muni
halda áfram og það sé mikill
áhugi hér á landi fyrir Manit-
oba. „Þetta er mjög góður fram-
tíðarstaður. Það er mikið af Vest-
ur Íslendingum sem búa þar og
það eru engin flug frá Manitoba
til Evrópu.“
Guðjón Arngrímsson, upplýs-
ingafulltrúi Flugleiða, segir að öll
samkeppni sé af hinu góða.
„Þetta er frjáls markaður og
við fögnum samkeppni hvar og
hvenær sem er.“
Lausleg athugun á verðsaman-
burði flugfélaganna tveggja leiddi
í ljós að Icelandair rukkar nú rúm-
lega 30 þúsund krónum meira en
Iceland Express fyrir sambærileg
flug. Guðjón segir ástæðuna vera
að ódýrustu sæti Icelandair séu nú
þegar bókuð. - sv
Iceland Express hefur áætlunarflug til Orlando í Flórída í haust:
Gott svigrúm til samkeppni
GUÐJÓN
ARNGRÍMSSON
MATTHÍAS
IMSLAND
UMFERÐ Dregið hefur úr mynd-
un raða við gatnamót Reykja-
nesbrautar og Bústaðavegar
eftir að ný stilling umferðar-
ljósa var virkjuð fyrir nokkru.
Þar er nú vinstri beygja bönnuð
frá Bústaðavegi á álagstímum á
morgnana og síðdegis, en þá er
ástandið verst.
Biðraðir teygðu sig langt
eftir Sæbrautinni og einnig inn
á Miklubraut með tilheyrandi
töfum og slysahættu, en sam-
kvæmt upplýsingum frá lögregl-
unni hafa biðraðir ekki verið
teljandi frá því að stillingum var
breytt. - sv
Breytt stilling umferðarljósa:
Skilar árangri
REYKJAVÍK
Fiskislóð 1 Sími 580 8500
mánud.–föstud. 10–18 Laugard. 10–16
COLEMAN-ferðagasgrill
Verð 49.900 kr.
ellingsen.is
CAMPINGAZ-kælibox
Verð 16.100 kr.
PRIMUS-pottasett
Verð 3.800 kr.
SONCA-tjaldljós
Verð 10.691 kr.
COLEMAN-stóll m/örmum
Verð 8.990 kr.
Vaknaðu við fuglasöng