Fréttablaðið - 02.07.2010, Blaðsíða 20
2
LISTASAFNIÐ Á AKUREYRI opnar sýninguna Rím
á morgun klukkan 15, þar sem gefur að líta úrval verka eftir
Ásmund Sveinsson í bland við verk listamanna samtímans.
KOM
IÐ Í
VERS
LANI
R
Stútfullt blað
af nýjum uppskriftum
Sparaðu 20%
með því að tryggja þér áskrift á
www.tinna.is eða í síma 565 4610
Opið frá kl. 11–19 í Smáralind
„Ég er að fjalla um eðli áróðurs
og hliðstæðar birtingarmyndir
hans,“ segir Guðbergur Bergsson
rithöfundur, sem hefur undanfarna
daga verið að setja upp sýningu
helgaða áróðri í Saltfisksetrinu í
Grindavík.
Á sýningunni, sem verður opnuð
á morgun, verða meðal annars áróð-
ursveggspjöld úr einkasafni Guð-
bergs til sýnis. „Þetta eru gömul
veggspjöld sem ég hef safnað í 35
ár þegar ég hef dvalist erlendis,
sum allt frá tímum borgarastyrj-
aldarinnar á Spáni; Sovétríkjun-
um, Ítalíu, Portúgal og nýlendum
þess, Mósambík og Angóla og víðar
sem endurspegla ástandið sem var
í þessum löndum,“ útskýrir Guð-
bergur en tekur fyrir að söfnun-
in sé áhugamál heldur hafi mörg
spjaldanna rekið á fjörur hans
fyrir einskæra tilviljun.
Hugmyndina að sýningunni seg-
ist hann hafa fengið í heimsókn til
Berlínar fyrir nokkrum árum.
„Þar var í gangi svipuð sýning en
sú einblíndi aðeins á áróður nasista
auk þess sem lítið af útskýringum
fylgdi með. Ég tek hins vegar mun
fleiri dæmi, læt útskýringar fylgja
með og leiði gestina í gegnum sýn-
inguna við opnun hennar. Auk þess
verður sýnd frægasta áróðursmynd
allra tíma, Sigur viljans eftir Leni
Riefenstahl.“
Guðbergur segir að áróðurs-
veggspjöld séu merkileg fyrir
ýmsar sakir og meðal annars
afhjúpi þau sögu þjóða. „Spjöldin
sýna til dæmis hver fjárhagsleg
staða þessara þjóða var á tiltekn-
um tíma; sum eru gerð af vanefn-
um meðan einhverjum fjármunum
hefur verið varið í önnur. Eins leiða
þau í ljós hliðstæður í áróðri pólít-
ískra andstæðinga. Einræðisherrar
og stjórnmálaleiðtogar andstæðra
fylkinga, eins og Stalín og Roos-
evelt fá svipaða glansmeðferð auk
þess sem þjóðirnar og ólík stjórn-
málaöfl tefla þarna fram sínum
táknum í áróðursskyni.“
Að sögn Guðbergs á þessi sýning
sérstakt erindi til Íslendinga. „Þeir
hafa aldrei lært að skilgreina hvað
áróður er. Gott dæmi um það er
bókin Vinnan göfgar manninn sem
náði vinsældum þegar hún kom út
hér fyrir löngu þótt hún sé eitt
mesta áróðursrit sem hefur verið
skrifað um vinnuþrælkun.“ Sýning-
in verður opnuð á morgun klukkan
14 og stendur yfir til 26. júlí.
roald@frettabladid.is
Birtingarmyndir áróðurs
Guðbergur Bergsson rithöfundur opnar sýningu í Saltfisksetrinu í Grindavík á morgun, þar sem hann
sýnir áróðursveggspjöld sem hann hefur safnað í gegnum tíðina á ferðalögum sínum víða um heim.
Guðbergur Bergsson
leiðir gesti í gegnum
sýningu um áróður
sem verður opnuð í
Saltfisksetrinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA