Fréttablaðið - 02.07.2010, Síða 25
2. júlí föstudagur 5
Andra til Amsterdam, þeir leigðu
sér míkrafón saman og eyddu dög-
unum syngjandi. Báðir hafa þeir
mjög hljómþýðar raddir, eins og
heyra má á plötunni. Hins vegar
voru þeir dálítið lengi að leita að
söngvara fyrir hljómsveitina, áður
en þeir ákváðu að taka sjálfir að
sér sönginn. Af hverju?
Steini: „Við sáum okkur kannski
ekki alveg fyrir okkur standa
fremst á sviðinu og segja „eru ekki
allir í stuði?!“
Andri: „Já, það var þetta með
stuðið … Maður er alltaf eitthvað
að pæla í innviðum tónlistarinn-
ar. Í sálartónlist er söngvarinn ein-
hvern veginn að kreista í sér hjart-
að og kynfærin með. Maður feikar
það ekkert. Það tók okkur svolít-
inn tíma að ákveða að tónlistin
lyti okkar lögmálum. En á endan-
um litast fílingurinn í tónlistinni
af því að við fórum að syngja þetta
sjálfir.“
ERFIÐ TEXTASMÍÐ
Strákarnir í hljómsveitinni semja
lögin venjulega saman, en textana
hafa þeir Andri og Steini séð um,
stundum með erfiðismunum.
Andri: „Flest lögin verða þannig
til að við djömmum saman, svo
tekur einhver það með sér heim
og vinnur áfram. Textana gerum
við tveir svo …“
Steini: „... Fyrirhafnarlaust!“
Andri: „Það er einn stór höf-
uðverkur. Það er erfitt að semja
texta.“
Steini: „Yfirleitt erum við hvor
í sínu landinu og oft vitum við á
endanum ekkert hvor samdi hvað.
Þá er þetta búið að ferðast á milli
okkar margoft, kannski með breyt-
ingu á einu orði í senn.“
Er auðveldara að semja lög en
texta?
Steini: „Já, ég held að öllum
finnist það. Það er miklu auð-
veldara að vera asnalegur í mæltu
máli.“
Þeir hafa samt ekki hugsað sér
að skipta yfir í ensku, þótt það
sé ef til vill auðveldara að leita í
djúpan brunn sálartónlistarinnar
á ensku heldur en íslensku.
Steini: „Það er bara eitthvað svo
geðveikt við að syngja á íslensku.
Það er svo gaman að reyna að
finna einhvern íslenskan vink-
il, því þessi tónlist kemur úr ein-
hverri allt annarri menningu.
Ef við værum að syngja á ensku
værum við í meiri hermikráku-
leik.“
STERKIR OG STÓRIR
Það er ekki hægt að sleppa þeim
Andra og Steina úr húsi án þess
að spyrja af hverju þessi alís-
lenska hljómsveit, sem syngur á
íslensku, dregur nafn sitt af kar-
akter úr tuttugu ára bandarískri
gamanmynd.
Andri: „Við vorum búnir að vel-
kjast í tómi og örvæntingu í marga
mánuði með að finna nafn. Af ein-
hverjum ástæðum söfnuðumst við
saman og vorum að horfa á Police
Academy, sem er ekki í sérstöku
uppáhaldi hjá neinum okkar …“
Steini: „Jú, hún er mjög góð!“
Andri: „Já, já. En svo kom kred-
itlistinn og þá var þetta bara
komið! Nafnið er líka á ensku og
við syngjum allt á íslensku, svo
að mörgu leyti er þetta ekki mjög
lógískt. En okkur þykir alla vega
nógu vænt um Moses til að hafa
tileinkað honum síðasta lagið á
plötunni. Það er óður til nafna
okkar.“
Steini: „Sgt. Moses Hightower
stendur líka fyrir allt það sem
við viljum vera. Hann er sterkur
og stór og segir bara sem skipt-
ir máli …“
Andri: „Nei, nú ertu kominn í
ruglið!“
✽
b
ak
v
ið
tj
öl
di
n Fullt nafn og gælunafn:
Steingrímur Karl Teague. Himna-
lengjan, Baunagrasið, Lalli ljósa-
staur.
Aldur:
26.
Hverfið þitt:
Var með flottasta póstnúmer heims
í Hollandi, 1111xx, en nú er ég bara
vestan við læk.
Hjúskaparstaða:
Viðkvæm staða í augnablikinu á milli mín
og nýja píanósins. Sjáum hvað gerist.
Frægasti ættingi þinn:
Mamma.
Helsti áhrifavaldur:
Kolbeinn kafteinn. Fari það í fimmtán fróðleiksfúsar
flyðrur frá Fáskrúðsfirði! Hundrað haugdrukkn-
ir hafnarverkamenn í Havana! Nei, ég á langt í
land ennþá.
Hljóðfærin í lífi þínu:
Hljómborð stór og smá.
Í fyrra lífi varstu:
Svo syndsamlega stoltur af djúpri og karlmann-
legri rödd minni að ég fékk það sem ég átti skilið í
þessu lífi.
Ljósmyndasamkeppni Panasonic og Vísis
Taktu þátt í ljósmyndasamkeppni.
Deildu þínum bestu myndum með
okkur og þú átt möguleika á glæsi-
legum verðlaunum. Að auki er
þráðlaus Panasonic KXTG1311 sími
dreginn út í hverri viku.
Skilafrestur til 21. ágúst 2010.
Allar nánari upplýsingar á visir.is.
1. VERÐLAUN 2. VERÐLAUN 3. VERÐLAUN
PANASONIC BD65
Vandaður Blu-ray spilari með
minniskortarauf til að skoða
ljósmyndirnar úr myndavélinni.
PANASONIC G2
Glæný og byltingarkennd
myndavél með útskiptanlegum
linsum og snertiskjá.
PANASONIC TZ10
Hágæða myndavél með 12x aðdrætti,
GPS og fjölmörgum möguleikum.
SÝNDU ÞÍNAR
BESTU HLIÐAR