Fréttablaðið - 02.07.2010, Page 28
föstudagur FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS
FRÁBÆR
FÖSTUDAGUR
Fríða Rakel Kaaber, eig-
andi verslunarinnar Ein-
stakar ostakökur.
1
2
3
4
5
2. JÚLÍ 2010
Ég mundi fá mér tofu samloku á C
is for Cookie og lesa þar í blaðinu
að búið væri að hreinsa upp alla
BP olíuna.
Næst yrði ég sótt af vinkonum
mínum og við mundum fá okkur
sprett í náttúrulauginni við Hvera-
gerði og skella okkur svo í humar-
veislu í hádeginu á Stokkseyri.
Þá myndi ég fara á Kaffismiðjuna
þar sem ég mundi hitta Haruki
Murakami, sem vill
auðvitað ekkert frekar
en að eyða eftirmið-
deginum í að spjalla
við mig um verk sín.
Ég og unnusti minn
færum svo í Hljóm-
skálagarðinn með hana
Kisu, þar sem hún væri
á einhvern undraverðan
hátt búin að læra að grípa
frisbídisk.
Loks myndi ég grilla
fisk með stórfjöl-
skyldunni, setjast svo
á pallinn með hvítan
rússa og skyndilega
átta mig á því um hvað
Mulholland Drive
raunverulega er.
Sumarið er tíminn
Nuddolíur, sleipiefni, og trylltur titringur með Durex Play.
Með Durex Play er alltaf tími fyrir gleði.
www.durex.is
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
Allt sem þú þarft…